Jökull


Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 15

Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 15
LaugarcL. 7. april. Hægviðri, sæmilega bjart veður. Hiti -f- 15 C. Héldum suðvestur að Svía- hnúkum og síðan norður og vestur á Gríms- vötn. Sigurjón fór með hæðarmæli upp á Svía- hnúka. Reyndum mælingar á tveim stöðum á vötnunum. Fundum pytt með rjúkandi vatns- sytru norðan undir Grímstindi, en svo vil ég nefna hæstu öxl Svíahnúka. Vatnið seytlaði austur á bóginn. Sunnud. 8. apríl. Þokumugga um nóttina í S22, létti til um morguninn og gerði fagurt veð- ur. Okum norður á Dyngjujökul, mældum viS S28, S29, S30 og S31, sem var nyrzti áætlaður mælistaður þar. Var þokumóða síðari hluta dags, en veður ágætt. Um kvöldið var snúið aftur suðvestur á bóginn (262 gráður misv.) og mælt í S32. Síðan tjaldað. Mánud. 9. apríl. Logn, þokumóða, kollheið- ur. Haldið áfram í sömu stefnu, mælt í S33. I S34 heppnaðist mæling ekki. Vindur var vax- andi af NA, og var því hætt við að fara norð- vestur á Bárðarbungu til mælinga. Reynt var að mæla við S36, en árangur enginn eða vafa- samur. Var néi kominn allmikill skafrenning- ur og þýðingarlaust að reyna mælingar. Ókum við því fram hjá S37 og S38, en skildum eftir stengur með flöggum á báðum stöðum. Héld- um norðvestur á jaðar Köldukvíslarjökuls, fundum þar tjaldstað Árna Stefánssonar og Bandaríkjamanna frá nóv. 1950. Voru þar skíði, benzíndúnkar og nokkuð af matvælum. Þriðjud. 10. april. NA-strekkingur. Þykkt loft. Héldum kyrru fyrir. Undir kvöldið þyngdi vindinn og gekk í stórhríð. Stóð svo þangað til á föstudagskvöld. Þá lygndi og létti til undir myrkrið. Laugard. 14. april. Gott og bjart veður kl. 6 um morguninn, en dimmt í suðri og snælegt. Grófum upp sleða og tjöld, og var mikið verk, því að snjórinn var mjög harður eftir stór- viðrið. Komumst af stað kl 10 Þá var komin þokumugga Ókum fyrst 8 km í áætlaða stefnu til S38 en fundum ekki Héldum þá áfram og leituðum S37, en fundum ekki vegna dimm- viðris. Urðum að setjast þar að kl. 13,25 og lágum þar veðurfastir þangað til á Miðvikudag 18. apríl. Um morguninn var NA-kaldi, skafrenningur og dimmviðri. Brott- för undirbúin um morguninn, en síðan beðið átekta fram um hádegi. Var þá reynd mæling, en árangur nokkuð óviss. Kl. 16 var haldið af stað og ekið 12,5 km til S39. Sást rofa til Kerl- inga og Hamarsins, er þangað kom. Eftir mæl- ingu við S39 var ekið til S40 og mælt þar í rökkurbyrjun. Frá S40 héldum við kl. 20,20 og ókum í myrkri og muggu 7,5 km beint í austur, í áttina að Pálsfjalli. Ekki sáum við Pálsfjall, þegar við settumst að, en biðum morgundagsins með óþreyju. Fnnmtudag 19. april. Um 5-leytið var orð- ið sæmilega bjart af degi. Veður var stillt og talsvert skyggni. Pálsfjall var skammt frá okk- ur og bar aðeins sunnanhallt við Þórðarhyrnu. Ókum suður fyrir Pálsfjall og tókum svo stefnu rétt norðan við Þórðarhyrnu. Reyndum mæl- ingu á háskarðinu við S41. Austan á skarðinu varð fyrir okkur mikil jökulgjá og brött brekka niður að Skeiðarárjökli. Komumst þó slysa- laust niður og gerðum mælingu í S42 kl. 14. Þaðan héldum við í þoku suður Skeiðarárjökul, mældum við S43 og tjölduðum við S44. Sást þá óljóst til Færinestinda, Súlutinda og Eystra- fjalls. Föstudag 20. april. Hægviðri, sæmilegt skyggni um morguninn. Brann tjald Árna. Héldum 1,3 km vestur á bóginn og mældum við S45. Reyndist þykkt þar um 360 m. Jökull- inn var allmjög sprunginn. Frá S45 hallar nið- ur að Grænalóni. Umliverfis vatnið að austan er sléttur jökull, en á vatninu eru ísborgir margar, sem gnæfa yfir jökulinn. Virðist því vera fullt í vatnsstæðinu, og má búast við, að það hlaupi í sumar. Hefðum farið að vatn- inu eða út á það, ef veður hefði ekki versnað með snjómuggu, er tók fyrir alla útsjón. Héld- um við svo aftur til S44 og bjuggumst til ferð- ar norðaustur á hájökul. Mældum við S46 og S48 og héldum svo áfram til S50. Svartaþoka var á og snjómugga, svo að við fórum eingöngu eftir áttavita og vegmæli. Er við hefðum átt að nálgast S50, fundum við allt í einu mikinn hliðarhalla (til vinstri) og urðum því að breyta stefnu til norðurs og aka 80—90 m undan brekku á h. u. b. 2 km vegalengd. Vorum við þá komnir á jafnsléttu. Gerðum mælingu og settumst að nálægt miðnætti. Undirhlíðar Esju- fjalla ná lengra norður og vestur en sýnt er á uppdrættinum. Laugard. 21. april. Hægviðri, en mikil snjó- koma og dimmviðri. Héldum kyrru fyrir. Sunnudag 22. apríl. Logn, allgott skyggni, rofar til sólar. Sér vel til Esjufjalla í suðri, og virðast norðurhlíðar þeirra meir atlíðandi en á uppdrætti. Tókum stefnu N 70 E (réttv), ók- 13

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.