Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1951, Qupperneq 7

Jökull - 01.12.1951, Qupperneq 7
Hér er meðalhiti 10 ára tímabiia á undan at- hugunarári borinn saman við meðallagshita á Fagurhólsmýri á árunum 1901 — 1930, en hann er 4.1 stig. Hitinn er 1.5 stigum hærri 1928—1937 en 1885—1894. Hafi snælínan hækkað um 300 m á milli þeirra tímabila svarar það til 100 m fyrir 0.5 st. — Árin 1928—1937 voru jöklar hraðminnk- andi og höfðu verið um undanfarin 10—15 ár. Snælínan var því áreiðanlega orðin hærri en í meðalárferði. Hér hefur á víxl verið talað um snælinu, hjarnmörk og jökulmörk. Á þessu getur verið nokkur munur. Þ. Thoroddsen rniðar snælínu- hæð við neðri mörk sísnævis á fjöllum og „neðstu rönd hjarnsnjóar á hájöklum“ (2). Hjarnmörk eru í raun og veru rönd hjarnsnjóar í meðalári. Ahlmann gerir ekki mun á hjarnlínu og snjólínu á Heinabergsjökli (4). Hins vegar miðar lrann jökulmörk við hæstu bungur, sem jökullausar eru, og tekur fram, að þau séu mun hærri en hjarnmörkin eða snælínan. Flestir skriðjöklar úr sunnanverðum Vatna- jökli hafa stytzt um nærfellt 1000 m á síðustu 20 árum. Jafnframt hafa þeir þynnzt, en um það er vitneskja lítil. Ef Vatnajökull væri nú horf- inn allt 1 einu og árferði héldist eins og verið hefur til jafnaðar síðustu 25—30 ár, mundi jök- ullinn ekki koma aftur nema á hæstu bungurn- ar. Frá 1932—1950 hefur Breiðamerkurjökull stytzt um tæpa 50 m á ári að meðaltali. Með svipuðu áframhaldi yrði hann full 200 ár að styttast um 10 kílómetra, en þá mundi líka verða svipað umhorfs á Breiðármörk og á land- námsiild. En jtetta gæti minnt á það, að jökl- ar eru seinir að eyðast og einnig seinir að mynd- ast, þótt talsverðar breytingar verði á veðurfari. Enginn efi er á því, að hlýviðrisskeið hafi kom- ið hér eftir síðustu ísöld — eins og annars staðar á Norðurlöndum. — I Noregi er talið, að árs- hiti hafi orðið allt að 3 stigum meiri en nú er og snælína 350—400 m hærri (6). Af samanburði á hitabreytingum hér á landi og í Noregi (5), virðast þær nærri samstiga í báð- um löndum. Mun því láta nærri, að árshiti hér á landi hafi verið 2—3 st. hærri en nú gerist. Þá hvarf Vatnajökull að mestu, nema jökulhúfur sátu eftir á Öræfajökli, Bárðarbungu, Kverk- fjöllum og Esjufjöllum. Á Breiðubungu voru skaflar, en ekki samhangandi jökull. Breiða- merkurmúli varð vaxinn skógi, og þá mynduð- ust mómýrar miklar á Breiðármörk, þar sem nú er jökull. Sýnir taflan á næstu bls„ hvernig ÞYKKTARMÆLINGAR. Mælingast. Jökulhæð. Þykkt. Jökulstæði. Hæð í m. yfir sjávarmál. S 1 500 475 25 S 4 1120 590 530 S 6 1400 570 830 S 7 1410 740 670 S 8 1370 720 650 S 9 1300 690 610 S 10 1240 580 660 S 11 1160 530 630 S 19 A 1420 730 690 S 19 1480 800 680 S 20 1580 880 700 S 21 1620 630 990 S 26 1540 1040 500 S 27 1360 580 (?) 780 (?) S 28 1620 750 870 S 29 1500 600 900 S 30 1355 560 795 S 31 1245 605 640 S 32 1410 485 925 S 33 1540 440 (?) 1100 (?) S 34 1780 550 1230 S 37 1540 575 965 S 39 1400 640 760 S 40 1200 500 700 S 41 1450 650 (?) 800 S 42 1180 450 730 S 43 940 370 570 S 44 750 550 200 S 45 730 360 370 S 46 880 570 310 S 48 1220 550 (?) 670 (?) S 50 1540 830 710 S 55 14501) 690 760 Staðsetningar: S1—S4 á Breiðamerkurjökli; S6—S8 i Norðlingalœgð; S9—S11 á Bruarjökli; S19—S26 Norðlingalœgð til Grímsvatna; S27 á Grímsvötnum; S28 á Kverkfjallahrygg; S29—S33 á Dyngjujökli; S34 austan i Bárðar- bungu; S37 austur af Hamri; S39 austur af Kerlingum; S40 á Siðujölili; S41 norðan Þórð- arhyrnu; S42 austan undir Þórðarhyrnu; S43—S48 á Skeiðarárjökli; S50 og S55 norð- an Esjufjalla. (Sbr. mynd á 3. bls.). 1) Samkvæmt uppdrættinum, en að réttu lagi um 1600 m. 5

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.