Jökull - 01.12.1951, Page 8
*
I
A Breiðamerkurjökli. Breiðamerkurfjall og Örœfajökull í baksýn.
Tímabil Árshiti Hjarnmörk
Hlýviðrisskeið eftir ísöld 6-7 st. 1300-1500m
Járnöld á Norðurlöndum um 3.5 — 800-
Söguöld o. s. frv. 5 - 1050-1100-
Ca. 1600-1800 3 - 650- 700-
1901-1930 4.1 - 900-
1931-1950 5 - 1050-1100-
mætti hugsa sér breytingar á veðráttu og jökl-
um liér á landi.
Er hér einkum miðað við sunnanverðan
Vatnajökul bæði urn hitafar, snjóalög og hæð
hjarnmarka. — Ber vitanlega að líta með full-
kominni varúð á ofanritaðar hitatölur á löngu
liðnum öldum. Þær eru aðeins tilraun, sem
kynni að geta orðið umræðugrundvöllur í sam-
bandi við frekari rannsóknir.
Tilfærsla á hjarnmörkum jökulsins, eins og
hér er gert ráð fyrir, hefur mjiig mikil áhrif á
safnsvæði hans og þar af leiðandi á skriðjökla
frá honum. Er ekki rúm til þess að ræða það
frekar hér. —
Oræfin norðan og vestan Vatnajökuls eru í
regnvari af meginjöklinum. Þar er því þurr-
viðrasamt og oft sólríkt. Þar er því jökullaust
með öllu og hjarnmörkin 200—400 m hærri en
að sunnan og austan. Telur Þ. Thoroddsen hæð
Athugasemdir
Jökull á hæstu bungum.
fökull eykst og skríður niður í dalbotna.
Jökull minni en nú.
Jökull gengur fram, umlykur Breiðamerkurfjall.
Jökull breytilegur.
Jökull minnkar ört.
snælínu þar 1300—1400 m, en Ahlmann um eða
yfir 1350 m (2, 3, 4).
Rit: 1. Brian Roberts: The Cambridge Expedi-
tion to Vatnajökull, 1932, Geografical
Journal 1933.
2. Þ. Thoroddsen: Lýsing Islands 2. bindi.
3. Sami: Island, Grundriss d. Geographie
u. Geologie I—II, Petermanns Mitteil-
ungen, 1905—1906.
4. H. W: son Ahlmann ancl Sigurdur
Thorarinsson: Vatnajökull IV., Geogra-
fiska Annaler 1937-40. Stockholm 1943.
5. Jón Eythórsson: Temperature Varia-
tions in Iceland. Geogr. Annaler 1949.
6. Rolf Nordhagen:De Senkvartære Klima-
vekslinger í Nordevropa og deres
betydning for kulturforskningen, Oslo
1933.
6