Jökull - 01.12.1951, Síða 12
Upp Breiðamerkurjökul. Skriðbill með sleða í eftirdragi. Þverártindsegg og Fellsfjall í baksýn.
Ljósm.: Á. Stefánsson.
JÓN EYÞÓRSSON:
Fransk-íslenzki Vatnajökulsleið-
angurinn, marz-apríl 1951
Til leiðangursins var stofnað af Rannsókna-
ráði ríkisins og Grænlandsleiðangri P. E. Victors.
Lagði Victor til tvo snjóbíla, mælingatæki og tvo
menn: Alain Joset mælingameistara og Stephan
Sanvelian ökumann og bifreiðavirkja. Rann-
sóknarráðið kostaði leiðangurinn að öðru leyti,
lét smíða tvo stóra almínsleða í Landssmiðjunni,
lagði til vistir, benzín og annan fararbúnað.
Þrír íslendingar voru í förinni: Jón Eyþórsson,
sem var fararstjóri, Arni Stefánsson vélfræðing-
ur og Sigurjón Rist vatnamælingamaður. Kost-
aði Raforkumálaskrifstofan för Sigurjóns til [ress
að gera mælingar á snjóaliigum á jöklinum. Árni
tók m. a. litkvikmynd af ýmsum atriðum ferð-
arinnar.
Hér er ekki rúm til þess að rekja ná-
kvæmlega undirbúning og fararbúnað leið-
angursins. Vegna snjóbílanna var hægt að taka
meiri og jafnframt traustari fararbúnað en
nokkur annar rannsóknaleiðangur hefur áður
haft í jökulferðir hér á landi. Verður hér á
eftir aðeins stiklað á helztu atriðum leiðang-
ursins eftir dagbók minni.
Leiðangurinn var ferðbúinn h. 13. marz.
Þann dag fór Sigurjón Rist með Herðubreið
áleiðis til Llornafjarðar og hafði með sér mest
allan farangur leiðangursins: sleða, benzín og
matvæli.
Kl. 16, sama dag lögðu upp á tveim skriðbíl-
um (Weasels) frá Reykjavík þeir Árni Stefáns-
son, Alain Joset og Stephan Sanvelian. Kom-
ust þeir að Selfossi um kvöldið, þótt veður væri
afleitt austan fjalls og engir bílar aðrir gætu
komizt leiðar sinnar. Daginn eftir, miðvikudag
14. marz, komust þeir að Vík, og næsta dag að
Klaustri, 16. marz fóru þeir yfir Skeiðarársand,
en urðu að setjast að hjá Sandfelli um kvöldið,
vegna þess að belti bilaði í þriðja sinn, og vara-
beltin voru ekki nema tvö, er þeir lögðu upp.
Héldu þeir svo að Fagurhólsmýri á öðrum
skriðbílnum snemma morguns á laugardag
17. marz.
Herðubreið kom til Hornafjarðar aðfaranótt
fimmtudags 15. marz. Um hádegi sama dag fór
Sigurjón Rist með allan farangur sinn á tveim-
ur bílum út að Jökulsá. Næstu tvo daga, 16. og
17. marz, flutti hann dótið með aðstoð Kví-
10