Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 2
Helgarblað 14.–17. nóvember 20142 Fréttir Sendi út villandi fréttatilkynningu D anski lagaprófessorinn Erik Werlauff, sem unnið hefur lögfræðilegt mat á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Al Thani-málinu yfir þeim Hreiðari Má Sigurðssyni og Ólafi Ólafssyni, var gagnrýndur harkalega í Danmörku haustið 2008 fyrir að selja hlutabréf sem hann átti í danska bankanum Bonusbanken fyrir millj- ónir danskra króna í aðdraganda gjaldþrots hans. Morgunblaðið greindi um helgina frá lögfræðimatinu en samkvæmt Werlauff hefðu dómstólar í Dan- mörku ekki dæmt fyrir umboðssvik eða markaðsmisnotkun í málinu þar sem sannanir um ásetning til slíkra brota hefðu ekki þótt nægjanlega góðar. Werlauff vann matið fyrir lög- menn þeirra Hreiðars Más og Ólafs og var því í vinnu fyrir þá þegar hann vann verkið. Mál Werlauffs vakti athygli í Dan- mörku um svipað leyti og verið var að ganga frá Al Thani-viðskiptun- um á Íslandi, í lok september 2008 – í miðri alþjóðlegu fjármálakrísunni og bankahruninu á Íslandi. Werlauff var stjórnarformaður Bónusbankans en faðir hans, Erik Werlauff, var stofn- andi hans. Bónusbankinn var yfir- tekinn af danska bankanum Vestjysk bank í septemberlok 2008. Þá hafði Werlauff selt mest af hlutabréfum sín- um í bankanum en hann gerði það að mestu nokkrum mánuðum áður. Seldi fyrir 17 en keypti fyrir eina Werlauff er sérfræðingur í viðskipta- lögfræði og hefur meðal annars tjáð sig um skyldur stjórnarmanna í fyrir tækjum samkvæmt dagblaðinu Nordjyske. Í aðdraganda falls Bónus- bankans seldi hann hlutabréf í bank- anum fyrir um 17 milljónir danskra króna, ríflega 350 milljónir króna á gengi dagsins í dag. Werlauff seldi bréf sín áður en þau hrundu í verði og náði hann því að bjarga hluta af eign- um sínum fyrir horn. Sala Werlauffs á þessum hluta- bréfum var hins vegar ekki kunn þegar hann greindi frá því í fréttatil- kynningu í ágúst 2008 að hann og 86 ára gömul móðir hans hefðu keypt hlutabréf í Bónusbankanum fyrir eina milljóna danskra króna vegna þess að þau tryðu á bankann. Frétta- tilkynningin var send út þann 25. ágúst, daginn eftir fall Hróarskeldu- bankans. Vitnað er orðrétt í fréttatilkynn- inguna í bókinni „Andre folks penge“ sem út kom í Danmörku fyrr á árinu. Í henni sagði: „Samkvæmt bestu jót- lensku háttum á maður að kaupa hluti þegar þeir eru ódýrir og það teljum við mamma að eigi við nú um hluta- bréf í Bónusbankanum. Þess vegna höfum við kíkt í sparihirslur okkar og fundið dálítið af fé til að kaupa hluta- bréf í Bónusbankanum fyrir 1.000.000 danskra króna. […] Við teljum ennþá vera líf í Bónusbankanum og hluta- bréfum hans og þess vegna kaup- um við einn skammt til viðbótar fyrir 1.000.000. […] Þannig háttar til um þessar mundir að ef maður á sparifé á lausu þá er um að gera að kaupa dá- lítið meira af hlutabréfum fyrir það.“ Mánuði síðar hrundi Bónusbank- inn. Ekki fór fram nein skoðun á við- skiptum Werlauffs með hlutabréfin eða þeirri fréttatilkynningu sem um ræðir hér þar sem hann sagði sannar- lega frá því að hann hefði keypt hluta- bréf í honum fyrir milljón danskra króna en lét þess ógetið að hann hefði selt fyrir sautján milljónir. Fréttatilkynning Kaupþings Í fréttatilkynningu frá Kaupþingi þann 22. september 2008, rúmum tveimur vikum fyrir fall bankans voru viðskipti sjeiksins Al Thanis með hlutabréf í bankanum kynnt. Tilkynn- ingin var birt á vef Kauphallar Íslands. Þar var meðal annars haft eftir Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaup- þings: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani velkominn í hlut- hafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjár- festa að bankanum og því er ánægju- legt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohamed í framtíð- inni.“ Það sem segja má að sé líkt með þessum tveimur málum, upphæð- irnar eru auðvitað langt frá því að vera sambærilegar, er að sendar eru út upplýsingar um viðskipti til al- mennings og markaða sem eiga að sýna fram á að trú ríki gagnvart til- teknu fjármálafyrirtæki. Í báðum til- fellum reyndist sú trú ekki vera rétt. Fréttatilkynning Werlauffs hafði engar lagalegar afleiðingar fyrir hann en tilkynning Kaupþings átti þátt í af- leiðingum fyrir þá sem sættu ákæru í Kaupþingsmálinu. Munur á fræðum og framkvæmd Þegar upp komst um sölu Werlauffs á hlutabréfum í Bónusbankanum gekkst hann við því að ekki væri nægj- anlega skýrt kveðið á um það í lögum hvað stjórnarmenn mættu og mættu ekki starfa sinna vegna. Hann sagði auk þess að talsverður munur væri á því að lesa og túlka lög annars vegar og svo hins vegar því þegar maður sjálfur væri þátttakandi. „Eitt er að kunna að lesa sjókort; annað er að stýra skipinu.“ Átti Werlauff þar við muninn á því að hafa fræðilegt álit á einhverju annars vegar og svo hins vegar því hvernig menn bregðast sjálfir við í tilteknum aðstæðum. Nær Wer- lauff þarna ágætlega utan um þann freistnivanda sem hann virðist telja að geti fylgt því að stýra banka eða fjármálafyrirtæki. Fræðin geta sagt eitt á meðan framkvæmdin getur leitt til hins gagnstæða þar sem aðstæð- ur geta knúið á um það í huga stjórn- andans. n n Vinnur fyrir Kaupþingsmenn n Var stjórnarformaður banka sem hrundi Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Villandi Erik Werlauff sagðist hafa keypt bréf fyrir eina milljón danskra en sagði ekki frá því að hann hefði þá þegar selt fyrir 17 milljónir danskra. Úr aðalmeðferð Al Thani-málsins Dómunum í Al Thani-málinu var vísað til Hæstaréttar Íslands og verður málið tekið til meðferðar þar á næstunni. Hér sjást þeir Hreiðar Már Sigurðs- son, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson fyrir dómi ásamt lögmönnum sínum. Mynd SIgTryggur ArI„Við teljum ennþá vera líf í Bónus- bankanum og hlutabréf- um hans. 154 vopn haldlögð Tollstjóri haldlagði samtals 154 vopn fyrstu níu mánuði ársins 2014. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá tollstjóra. Þar kemur fram að í flestum tilvikum hafi verið um að ræða eggvopn, sem voru 62 talsins. Haldlagðar byssur voru 44 tals- ins en þar af voru tæplega 40 loftbyssur. Þá voru haldlögð 25 hand- eða fótjárn og önnur vopn voru 19 talsins. Í tilkynningu toll- stjóra segir loks að þá hafi þrjár raf byssur, eða svokallaðir taserar, verið haldlagðir auk 276 gramma af sprengipúðri. Á myndinni hér að ofan má sjá hluta þeirra vopna sem lagt var hald á. Ofsótti mæðgur Faðir tveggja stúlkna skal sæta nálgunarbanni næstu sex mánuði gangvart þeim og móður þeirra, sem er fyrrverandi eigin- kona hans. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar, sem staðfesti dóm héraðsdóms. Mat héraðsdóms og Hæsta- réttar er að mæðgunum stafi mikil hætta af manninum. Hann hafi valdið þeim miklu ónæði og áhyggjum með skilaboðasending- um. Þá hefur hann setið fyrir þeim á heimili þeirra og valdið ónæði í skóla og á frístundaheim- ili eldri dóttur sinnar. Áhyggjur skólayfirvalda og barnaverndar- yfirvalda eru miklar. Konan hafði tvisvar reynt að fá nálgunarbann á manninn á þessu ári. Því var hafnað. Þess ber að geta að maðurinn var settur í nálgunarbann árið 2013 og bannað að nálgast mæðgurnar á nokkurn hátt. Þrátt fyrir það var beiðnum konunnar synjað. Mað- urinn var yfirheyrður nokkrum sinnum á þessu ári og honum tilkynnt að þessi hegðun væri ekki boðleg. Hann væri að valda fyrrverandi eiginkonu sinni og dætrum vanlíðan. Maðurinn hélt áfram uppteknum hætti. Lög- reglan fór á endanum fram á nálg- unarbann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.