Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir Helgarblað 14.–17. nóvember 2014
Vilja lögbann
á slit sleipnis
n Hafa slitið félaginu og ætla að skipta eigum þess á milli sín n Höfnuðu 40 umsóknum
F
élagsmenn í Bifreiðastjóra-
félaginu Sleipni ákváðu í
síðustu viku að leggja félag-
ið niður, selja eigur þess og
skipta ágóðanum bróðurlega
á milli þeirra 32 félagsmanna sem
eftir voru í félaginu. Bifreiðastjóra-
félagið Sleipnir er 60 ára gam-
alt. Árið 2000 stóð félagið í erfiðri
í kjarabaráttu og í kjölfarið gengu
margir félagar úr Sleipni og voru
þeir 32 eftir. Fjörutíu manna hópur
bifreiðastjóra hjá fyrirtækinu Grey
Line Iceland hafði í nokkra mánuði
verið í sambandi við formann fé-
lagsins, Óskar Jens Stefánsson, og
reynt að fá inngöngu í félagið og
skilað inn umsóknum þess efnis.
Viðræðurnar höfðu staðið yfir síðan
í vor en umsóknunum var svo hafn-
að í síðustu viku á þeim forsendum
að leggja ætti félagið niður.
Bifreiðastjórar vilja
þétta raðirnar
Svanur Þorkelsson er einn þeirra
sem sóttu um inngöngu í Sleipni og
hefur hópurinn leitað til lögmanns
og vill fá lögbann á slit félagsins.
„Í lögum félagsins kemur fram að
skylt sé að veita fólki inngöngu upp-
fylli það ákveðin skilyrði, sem með-
al annars eru þau að skulda félaginu
ekki neitt. Við uppfylltum skilyrðin.
Við teljum ólöglegt að slíta verka-
lýðsfélagi þegar enn er mikil þörf á
því. Það eru til lög um félagafrelsi á
Íslandi og við teljum þessar aðgerð-
ir ekki í anda þeirra. Við erum ekki
á neinn hátt að falast eftir eignum
félagsins heldur viljum við að bíl-
stjórar á Íslandi hafi vettvang til að
berjast fyrir bættum kjörum. Sleipn-
ir hefur greitt í sjóði Evrópska flutn-
ingafélagsins og þess skandinavíska
og ef til aðgerða kæmi ættu íslensk-
ir bílstjórar rétt á aðstoð þeirra. Ef
Sleipnir er lagður niður tapast sá
réttur algjörlega.“
Svanur segir rútubílstjóra hafa
skoðað þann möguleika að stofna
nýtt verkalýðsfélag en talið betri kost
að ganga í Sleipni því þrjú til fjögur
ár taki að öðlast rétt og safna í sjóði
í nýju félagi.
Þór Ostensson er í framvarðar-
sveit hóps atvinnubílstjóra sem hafa
kannað þann möguleika að stéttin
sameinist í einu félagi. „Við erum
enn að bíða eftir því hvað kemur
út úr Sleipnismálinu. Núna er fólk
í greininni út og suður; í VR, Efl-
ingu, Hlíf og víðar. Það er mikið af
fólki hjá stóru rútufyrirtækjunum og
flutningabílstjórar sem hafa mikinn
áhuga á því að komast í sitt stéttarfé-
lag. Það að menn geti tekið það upp
hjá sjálfum sér að leggja niður félag
og skipta eigum þess á milli sín er
vissulega sérstakt,“ segir Þór.
230.000 króna mánaðarlaun
Svanur leggur áherslu á að vinnu-
umhverfi rútubílstjóra á Íslandi
hafi breyst mikið á undanförnum
árum með auknum fjölda ferða-
manna. Þá hafi hópurinn sem sótti
um inngöngu í sumar verið að
kanna hvernig það gengi. Hundruð
annarra rútubílstjóra hefðu svo lík-
lega fylgt í kjölfarið. „ Rútubílstjórar
fá um 230.000 krónur í mánaðar-
laun, samkvæmt taxta. Algengt er að
rútubílstjórar vinni 250 til 300 tíma
á mánuði til að eiga í sig og á. Starf-
inu fylgja því stöðugar fjarvistir frá
fjölskyldu. Það er skiljanlega urgur
í mönnum sem vilja þétta raðirnar
og berjast fyrir betri kjörum.“ Það sé
erfitt þegar þeir eigi hvorki sitt eigið
félag né talsmann og séu dreifðir í
stærri félög sem geti ekki beitt sér
sérstaklega fyrir þá.
Hluti eigna seldur
Að sögn Óskars Jens, formanns
Sleipnis, hefur verið kannað hvort
slitin séu lögleg. „Niðurstaðan var
sú að það væri verið að fara full-
komlega eftir lögum félagsins. Það
er einnig mat manna að þetta stríði
ekki gegn landslögum. Enda erum
við ekki skuldbundnir neinum nema
þeim sem í félaginu eru,“ segir hann.
Um ástæðu þess að félaginu hafi
verið slitið segir Óskar: „Þetta er
gamalt félag með aðeins 32 félags-
menn sem hafa haldið starfseminni
úti undanfarin ár. Það er mat manna
að þeir séu betur settir í öðrum fé-
lögum. Þeir vildu bara færa sig sjálfir
og tóku þessa ákvörðun.“ Aðspurður
hvort ákveðið hafi verið að leggja
félagið niður í framhaldi af um-
sóknum hópsins um inngöngu seg-
ir Óskar það ekki beint vera í fram-
haldi af því. „Ég veit ekki hverju skal
svara því. Það voru viðræður við
aðila sem vildu koma inn í félagið.
Þeim var bara slitið. Menn vildu ekki
standa í þessum slag lengur.“
Aðspurður hvort ekki hafi verið
grundvöllur fyrir áframhaldandi
starfsemi Sleipnis í ljósi áhuga nýrra
félaga á að ganga í félagið sagði
Óskar að mat félaga Sleipnis hafi
verið að best væri að leggja félagið
niður. „Þeir væru varla að leggja fé-
lagið niður ef þá hefði langað til þess
að halda því starfandi áfram. Þetta
var mat manna. Það var talið að það
svaraði ekki kostnaði að reka félagið
áfram,“ sagði hann.
Búið er að selja hluta eigna
Sleipnis en formaðurinn vildi ekki
gefa upp hvað það væri nákvæm-
lega sem þegar væri selt. Meðal
eigna félagsins er fasteign að Mörk-
inni 6 í Reykjavík, sumarbústaður í
Húsafelli og sjóðir. „Það verður svo
greitt út til félagsmanna, það sem
hver og einn á.“ Aðspurður hvernig
ágóðanum verði skipt sagði Óskar
að það yrði gert eins bróðurlega og
hægt væri en vildi annars ekki tjá sig
um skiptinguna. n
Vísindi
Skemmtilegar gjafir í Tiger
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagny@dv.is
Lág laun Rútubílstjórar fá um 230.000
krónur í mánaðarlaun. Þeir eiga ekki sitt eigið
verkalýðsfélag en eru dreifiðir í nokkur sem
torveldar kjarabaráttu. Myndin er úr safni.
MynD Sigtryggur Ari
Vilja inn Svanur Þorkelsson, einn þeirra fjöru-
tíu sem sóttu um aðild að Sleipni. MynD AðSEnD
„Rútubílstjórar fá
um 230.000 krón-
ur í mánaðarlaun, sam-
kvæmt taxta.
Vilja betri kjör
launataxtar sleipnis sem
tóku gildi 1. janúar 2014
Byrjunarlaun 229.798 kr.
Eftir 1 ár 231.814 kr.
Eftir 3 ár 233.859 kr.
Eftir 5 ár 235.936 kr.
Eftir 7 ár 238.043 kr.