Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 38
Helgarblað 14.–17. nóvember 201438 Neytendur
Jóla Gull
er besti
jólabjórinn í ár
n Dómnefnd DV fór í gegnum 16 tegundir af jólabjór
n Kemur í Vínbúðir í dag n Sigurvegarinn í fyrra beið afhroð
E
gils Jóla Gull er besti jóla-
bjórinn í ár samkvæmt
niðurstöðu jólabjórsmökk-
unar DV. Jóla Gull hafði
nokkra yfirburði í bragðpróf-
un DV en næstbesti bjórinn í ár að
mati dómnefndar þykir Þvörusleik-
ir. Sigurvegarinn í smökkun DV í
fyrra, Gæðingur jólabjór, beið af-
hroð í ár.
Sala á jólabjór í Vínbúðunum
hefst í dag, föstudaginn 14. nóv-
ember, en margar tegundir hef-
ur verið hægt að finna á öldurhús-
um og veitingastöðum síðastliðna
viku. Tímasetningin fyrir árlega
bjórsmökkun DV var því fullkomin.
Aldrei fyrr hafa jafn margar tegund-
ir verið prófaðar í könnun DV enda
úrvalið á Íslandi líklega aldrei ver-
ið jafnmikið. Ljóst er að úr vöndu er
að ráða fyrir neytendur og áhuga-
fólk um hátíðarbjór í ár. Bjórsmökk-
un DV telur 16 tegundir, þar af 14 ís-
lenskar.
Valinn dómari í hverju rúmi
Dómnefndina að þessu sinni skip-
uðu þau Stefán Baldvin Guðjóns-
son, eigandi Vínsmakkarans og
einn fremsti vínþjónn landsins, Elín
Oddný Sigurðardóttir, ein af stofn-
endum Félags íslenskra bjóráhuga-
kvenna, Eymar Plédel Jónsson, sjálf-
skipað bjórnörd og einn stofnenda
Bjórakademíunnar, Gunnar Sig-
urðarson, sjónvarpsmaður, grínisti
og áhugamaður um bjórdrykkju, og
Berglind Pétursdóttir, betur þekkt
sem Berglind Festival-gif-drottn-
ing, dansari og sjálftitlaður bjórsér-
fræðingur. Dómnefndin er því hár-
fín blanda af fagfólki og fulltrúum
alþýðunnar.
Bjórsmökkunin fór fram í hús-
næði Vínsmakkarans, Vín- og öl-
stofu, á Laugavegi 73.
Blint próf
Við undirbúning smökkunarinnar
leitaði DV til bjórframleiðenda hér
á landi sem áður hafa tekið þátt
og óskaði eftir sýnishornum af
þeim jólabjór sem þeir yrðu með á
boðstólum í ár. Allir tóku þeir mjög
vel í það að vanda og kann DV þeim
öllum bestu þakkir fyrir góðar við-
tökur og aðstoð, enda var fyrirvar-
inn stuttur.
Smökkunin sjálf var sem fyrr
blind og vissi dómnefndin ekki
hvaða bjór hún væri að bragða
hverju sinni. Hver og einn skráði
síðan niður einkunn á bilinu 0–10
og umsögn sína fyrir hvern og einn
bjór. Hver með sínum stíl og áhersl-
um.
Við ákvörðun á þeirri röð sem
bjórarnir voru bornir fram var
ákveðið að draga tegundir úr hatti
sem blaðamaður sá um að fram-
kvæma. Að sjálfsögðu var hver bjór
borinn fram kaldur.
Eins og sjá má var dómnefndin
afar kröfuhörð í ár og enginn slaki
gefinn í einkunnargjöf eins og sjá
má á því að vinningsbjórinn fær 7,6
í meðaleinkunn en aðrir eiga í stök-
ustu vandræðum með að halda sér
réttu megin við miðlínuna. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Egils Jóla Gull
Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Styrkleiki: 5,4%
Stefán: Negull, kanill, beiskja og brenndir
humlar. Langt, beiskt eftirbragð.
Elín: Reyktur, hugrenningartengsl við torf
og taðreykt hangikjöt. Síðan fær maður
toffee að hætti ömmu í desert, á góðan
hátt. Kemur skemmtilega á óvart.
Eymar: Fín lykt. Kandís og maltkeimur.
Krydd og fínn jólafílingur í þessu.
Berglind: Eftirbragðið er eins og kanilstöng
í kokinu. Annað hef ég ekki um málið að
segja.
Gunnar: Hver vill ekki feðra svona? Þetta er
eitthvað nær jólunum. Hó, hó, hó.
Þvörusleikir
Framleiðandi: Borg brugghús
Styrkleiki: 7,0%
Stefán: Greni, brennd dekk, þurrt, beiskt og
rammt. Langt beiskt eftirbragð. Ekki fyrir mig.
Elín: Jól, fínt jafnvægi og góð fylling. Léttar
nótur af jörð og malti. Mæli með þessum.
Eymar: Böns af humlum. Geggjuð lykt.
Virkilega gott stöff. Myndi kaup'ann og
slatta af honum.
Berglind: Ef þú drekkur til að þefa er þessi
tilvalinn. Mikil hátíð fyrir nefið. Sérstakt
bragð, mikið og alveg gott bragð, en já, já,
bara kúl. Bara einn svona í einu.
Gunnar: Vissulega hef ég brennt margan bragð-
laukinn en þessi er aðeins of mikið, fjandinn.
Steðji jólaöl
Framleiðandi: Steðji Styrkleiki: 6,0%
Stefán: Svartur Panda-lakkrís og greni.
Beiskar saltpillur með smá dökkt súkkulaði í
bakgrunni. Langt eftirbragð.
Elín: Mold, lakkrís, þó furðulega léttur mið-
að við hvað hann er dökkur. Örlítil beiskja
sem samsvarar sér þó vel, góð fylling.
Eymar: Mikil lykt, lakkrís, karamella og létt
ristað. Nóg að gerast í þessum.
Berglind: Hélt fyrst að þetta væri kaffi en
væri líka til í að nota þennan sem ilmvatn
eða baða mig í honum. Ævintýralegur
bjórregnbogi. Algjör stemming.
Gunnar: Eflaust einhverjir dökkbjórasjúk-
lingar sem vessa í sig af þessum en rembingur-
inn í þessu fer með mig langt yfir jólahátíðina.
7,6
1
7,1
2
7,0
3