Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Listin að lifa saman n Fólk af ólíkum trúarbrögðum vinnur saman gegn fordómum n Einblínir á það sem sameinar fólk D erya Özdilek og Ersan Koyuncu eru múslimar sem fluttu til Íslands frá Danmörku fyrir rúmlega ári. Þau eru meðal stofn- enda félagsins Horizon sem eru menningarsamtök fólks af tyrk- neskum uppruna á Íslandi. Á laugardaginn stendur félagið fyrir hátíð í samstarfi við Neskirkju. Há- tíðin er tilraunaverkefni og segja þau tilganginn að leggja sitt af mörkum til íslenska samfélagsins og skapa jákvæða samræðu, sam- stöðu og umburðarlyndi. „Við ætl- um að einblína á það sem samein- ar okkur frekar en það sem sundrar. Við köllum þetta stundum listina að lifa saman,“ segir Ersan. „Það versta sem getur gerst í samræðum er að verða sammála um að vera ósammála,“ segja þau. Ein helsta fyrirmynd að starfi samtakanna er hugmyndafræði Tyrkjans Fethullah Gülen, sem tímaritið Time útnefndi sem einn af áhrifamestu mönnum í heimi árið 2013. „Hugmyndafræði hans byggir meðal annars á því að manneskjan sé það allra heilag- asta í heiminum og að það skipti ekki máli hvaðan hún kemur, né hver hún sé. Þannig viljum við vinna í Horizon. Við eigum að bera virðingu hvert fyrir öðru þó að við séum ekki sammála um allt. Þetta er samt auðveldara í orði en fram- kvæmd,“ segja þau. Ísland æskudraumurinn Frá æsku hafði Derya átt sér þann draum að flytja til Íslands. „Svo til- kynnti maðurinn minn mér einn daginn að hann gæti fengið vinnu á Íslandi og ég var strax til í að flytja. Lífið í Danmörku var þó mjög gott og ég hafði nýlega fengið drauma- starfið sem kennari í einkaskóla. Ísland er lítið land og ég held að það sé betra fyrir börn að alast upp í litlu landi,“ segir hún og bendir á tveggja ára son sinn. „Við elskum lífið á Íslandi og ég er mjög ánægð með að hafa tek- ið þá ákvörðun að flytja hingað. Ég fékk vinnu á leikskóla og hef lært íslensku af börnunum þar.“ Derya gengur með slæðu og aðspurð um viðbrögð fólks á Íslandi við klæðn- aðinum segir hún að vissulega sé útlit hennar sumum framandi. „Fyrst þegar við fluttum til Íslands leituðum við að íbúð og sumir leig- usalar spurðu hissa hvaðan við værum eiginlega. Við skoðuðum örugglega tuttugu íbúðir. Svo tók loks á móti okkur brosandi leigu- sali sem virtist ekki hissa á slæð- unni. Þá fékk ég það á tilfinninguna að hún myndi leigja okkur og það varð raunin.“ Derya segir að það gerist stund- um að fólk horfi á hana því hún sé með slæðu en aðrir brosa til hennar og nefna hve falleg slæð- an sé. „Einu sinni var ég í Ikea og tvær konur sem voru að koma úr gagnstæðum áttum sáu mig. Þær horfðu svo stíft á mig að þær lentu í árekstri með innkaupakerrurnar sínar,“ segir Derya og hlær. Minni fordómar á Íslandi en í Danmörku Ersan er meistaranemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann kveðst aldrei verða fyrir fordómum vegna trúar sinnar á Íslandi, enda sjá- ist ekki utan á honum að hann sé múslimi. „Þegar ég segist heita Ersan og koma frá Danmörku, spyr fólk mig um upprunann. Það er samt aldrei vandamál.“ Þau eru þó sammála um að for- dómar fyrirfinnist í íslensku samfé- lagi. „Þegar við fluttum til Íslands fundum við fyrir þörfinni fyrir að stofna félag eins og Horizon. Þó að ég verði ekki persónulega fyrir fordómum sé ég viðmælend- ur í fréttum sem taka umræðuna um innflytjendur á öðru stigi og á neikvæðan hátt. Alltaf þegar maður hittir fólk í eigin persónu er viðhorfið annað og það sér hlutina í skýrara ljósi og dæmir síður,“ segir Ersan. Að hans sögn eru um 60.000 manns af tyrkneskum uppruna í Danmörku og talið að múslimar í landinu séu um 250.000 talsins. „Hérna á Íslandi eru aðeins um 70 íbúar af tyrkneskum uppruna. Hérna er það frekar nýtt fyrir sam- félagið að hér búi múslimar en í Danmörku hefur það tíðkast síðan á 7. áratugnum þegar amma mín og afi fluttu þangað. Mín reynsla er sú að fólk hér á landi sé opnara fyrir fjölbreytileikanum en í Danmörku og það var mjög jákvæð uppgötv- un.“ Nói í Kóraninum Í Kóraninum eru vers um Nóa, líkt og í Biblíunni. Hátíðin sem Horizon og Neskirkja halda um helgina heitir Ashura sem er nafnið á búð- ingi sem þau segja talið að Nóa hafi matreitt þegar hann náði landi. „Ashura þýðir tíundi, það er tíundi mánuðurinn í arabísku tímatali. Þann dag fá flestir sér þennan búð- ing og deila með nágrönnum og vinum. Það er því einföld og falleg hugmynd á bak við Ashura. Sam- kvæmt sögunni setti Nói öll hráefni sem hann átti í skál og útkoman var þessi búðingur. Útkoman varð mjög góð og hugmyndin er að hvert hráefni tákni einn einstakling. Þó að þeir séu ólíkir geta þeir skapað góða heild og það er grunnurinn að fjölmenningu,“ segir Derya. Á hátíðinni, sem er öllum opin, verður gestum boðið að smakka Ashura-búðinginn. Þá verður sýnd- ur Rumi, tyrkneskur dans, og Ebru sem er sérstök aldagömul tyrknesk aðferð við vatnslitun. n Menningarlegur mismunur látinn blómstra „Ég er sannfærður um að þetta er leiðin áfram í átt að heilbrigðri fjöl- menningu,“ segir Sigurvin Jónsson, æskulýðsprestur í Neskirkju. „Menningarlegur mismunur er lát- inn blómstra og fólk getur sýnt fram á hvað því er kært.“ Toshiki Toma, prestur innflytjenda, starfar í Nes- kirkju og hefur hann starfað með Horizon að undanförnu að því að minnka fordóma í samfélaginu og segir Sigurvin samstarfið þannig komið til. Ersan Koyuncu, formaður samtakanna Horizon, hefur tekið þátt í æskulýðsstarfinu í Neskirkju og segir Sigurvin það veita krökkun- um þar innsýn í menningu sem er framandi en í senn svo nálæg. „Um- fjöllun sem börnin sjá í fjölmiðlum er svo oft tengd ofbeldisverkum og hryðjuverkasamtökum sem eru svo framandi meginþorra múslima. Ersan er strákur, alinn upp í Dan- mörku og af tyrkneskum uppruna. Í staðinn fyrir að ræða málið abstrakt erum við með manneskju með okk- ur af holdi og blóði. Þetta er leiðin til að minnka fordóma og opna sam- félagið fyrir umburðarlyndi ólíkra menningarheima og trúarbragða. Það að við spjöllum saman og hittu- mst í eigin persónu.“ Ungmenni úr æskulýðsfélagi Neskirkju og Horizon, ætla í kvöld, föstudagskvöld, að læra saman að mála með tyrknesku aðferðinni Ebru. Afraksturinn sýna þau svo á hátíðinni á morgun. „Það er þess virði að leggja leið sína á hátíðina og hitta listamennina sem þar koma fram og kynnast þessum fegurstu ávöxtum tyrkneskrar menningar,“ segir Sigurvin að lokum. „Þó að ég verði ekki fordómum sé ég viðmælendur í fréttum sem taka umræðuna um innflytjendur á öðru stigi og á neikvæðan hátt. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagny@dv.is Ashura hátíð Toshiki Toma, prestur innflytjenda, ásamt Derya Özdilek og Ersan Koyuncu frá menningarfélaginu Horizon. MyND Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.