Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 32
Helgarblað 14.–17. nóvember 201432 Fólk Viðtal
Þ
að er dæmisaga í búddism-
anum af örvunum tveimur.
Þú munt verða fyrir áfalli,
lífið mun hitta þig. Það er
fyrsta örin, einhver sársauki.
Seinni örin er sú sem þú tekur og
stingur í sár hinnar fyrri, rígheldur í
og kemur í veg fyrir að nokkuð fái að
gróa. Þetta er viðhorf þitt til þess sem
gerist. Viðhorf er oft 90 prósent af
þjáningu okkar,“ segir Tolli Morthens
sitjandi við gluggann á Kaffivagnin-
um við höfnina á Granda, þar sem
hann opnar nýtt gallerí í desember.
Tolli ólst upp í Vogunum og á
sumrin í Kjósinni, foreldrar hans
voru Grethe Scotte Petersen og Krist-
inn Morthens, myndlistarmaður og
sjálfmenntaður málari. Bræðurn-
ir voru fimm, þekktastir þeirra Tolli
og Bubbi sem er þremur árum yngri.
Tolli segist hafa snemma hneigst til
lista: „Ég held að við fæðumst öll
með einhverja hæfileika. Og ég held
að mínir hæfileikar hafi alltaf legið
þarna. Á meðan aðrir voru í fót-
bolta var ég bara að mála. Þetta var
það sem átti hug minn allan þegar
ég var krakki og unglingur, þar til að
dimman kom yfir líf mitt.“
Kristinn faðir hans var sjálf-
menntaður málari starfaði við listina
alla tíð, en móðirin Grethe sem var
dönsk, var heimavinnandi enda fullt
starf að sjá um fimm stráka og eigin-
mann. „Pabbi var virkur alkóhólisti,
en mamma tók þá ákvörðun að nota
aldrei. Hún sá að annar aðilinn yrði
að vera í lagi. Þetta er fjölskyldusjúk-
dómur og allir einstaklingar inn-
an hennar þurfa að takast á við ein-
hverjar afleiðingar. Því alkóhólismi
leiðir til margþætts ofbeldis, sem er
ekkert endilega líkamlegt, það get-
ur verið andlegt og tilfinningalegt.
Þá verður maður fyrir tengslarofi við
kjarnann sinn,“ segir Tolli.
„Ég var mjög reiður ungur mað-
ur,“ útskýrir hann. „Þegar þú ert
alinn upp í alkóhólistafjölskyldu, þá
er hver einasti dagur óvissutími, þú
veist ekkert hver þú ert, þú veist ekk-
ert hvert þú átt að leita, ekkert hvað
snýr upp né niður. Til að takast á við
óttann, kvíðann og vanmáttinn þá
verður maður að „fronta“ það ein-
hvern veginn – þar kemur reiðin inn.
Þessi reiði út í lífið og tilveruna birt-
ist í félagslegu viðhorfi. Ég var ekki
að berja fólk, en ég var stöðugt að
rífa kjaft.“
Fjórtán ára í fylkingunni
Vettvang fyrir reiðina segist Tolli
hafa fundið í stjórnmálastarfi. „Minn
„frontur“ var alltaf dálítið pólitískur.
Þorlákur Kristinsson, betur þekktur sem Tolli Morthens, ólst upp í
alkóhólistafjölskyldu og hefur alla ævi glímt við afleiðingar þess. Hann flosn
aði upp úr námi og flakkaði um landið sem farandverkamaður, lærði að gera
mólótovkokkteila í Alþýðufylkingunni, dópaði með hippum í Kristjaníu, festi
reiðina í tóna á költplötu með Íkarus og hefur undanfarin 30 ár verið einn af
kastamesti myndlistarmaður þjóðarinnar. Nú vinnur hann að því að tengjast
kjarnanum í sjálfum sér og breyta lífsviðhorfi sínu í gegnum búddisma og nú
vitundarhugleiðslu. Hann deilir þessari visku með öðrum eftir ýmsum leiðum:
meðal annars í smáprósabókinni Ást og friður sem kom nýlega út, stefnir á að
gangsetja hugleiðslusmáforrit og kennir föngum á LitlaHrauni listina að hugleiða.
„Að heila sig er lífstíðardjobb“
„Ég var
mjög reiður,
ungur maður.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Þar var verið
að kenna mér
að búa til dreifirit,
plaggöt og
mólótovkokkteila.