Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Síða 33
Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Fólk Viðtal 33
Ég var alinn upp í vinstrihreyf-
ingunni, 14 eða 15 ára gamall var ég
kominn í Fylkinguna. Þar var verið
að kenna mér að búa til dreifirit,
plaggöt og mólótovkokkteila. Ég var
kominn með það viðhorf að ég gæti
bylt og breytt. Ég var pólitískur aktí-
visti, skipulagði baráttu farandverka-
manna og var með í að skipuleggja
andóf gegn kjarnorkuvá í Evrópu á
pönkutímanum í kringum '80. En
ég hafði ekki glugga inn á við, mað-
ur keyrði bara á veggina af fullum
krafti.“
Hann segist þó ekki hafa alist upp
á pólitísku heimili. „Mamma ólst
upp mikið hjá afa sínum og ömmu
sem voru á öndverðum meiði í póli-
tík og það var svo mikil reiði alltaf í
því. Amma hennar var sósíalisti en
karlinn eiginlega fasisti. Hún vildi
því ekki að það yrði pólitísk umræða
á heimilinu. En þegar maður var 15
ára og andófið gegn Víetnamstríðinu
var á fullu og rokk og ról þá var stuðið
auðvitað í Fylkingunni, þannig að
maður fór þangað. Maður hafði ekki
hundsvit á pólitík þannig en fór bara
þangað sem straumurinn lá.“
Það var í tengslum við pólitíkina
sem Tolli hóf að flytja tónlist op-
inberlega: „Það var hluti af sjálf-
sprottinni viðleitni til að leggja eitt-
hvað til málanna í pólitíkinni, þá
var maður að spila á kassagítarinn
þar sem maður gat komið því við og
semja pólitísk ádeilulög og reyna að
pönkast svolítið á mönnum og mál-
efnum í gegnum lögin, það var tíðar-
andinn. „Hard rain is going to fall“
og allt það. En ég fór aldrei lengra,
ég var bara svona andófsmúsíkant.“
Seinna, þegar hann útskrifaðist af
nýmiðladeild í Myndlistar- og hand-
íðaskólanum var lokaverkefnið plata
með hljómsveitinni Íkarus. „Þar
skrásetti ég reiði mína til frambúð-
ar.“ Sú sveit hefur á vissan hátt öðlast
költstatus í íslensku tónlistarlífi.
Bakkus var lausnin
Tolli byrjaði snemma á unglingsár-
um að misnota áfengi og eiturlyf. „Ég
er alinn upp í íslensku alkóhólista-
samfélagi þar sem ofsadrykkja er
bara normið: unglingadrykkja, fjöl-
skyldufyllerí og menn drukku bara
til algleymis. Vín með mat þekkt-
ist bara hjá heildsalafjölskyldum og
yfir stéttinni. Í mínum kvíða og van-
mætti sem unglingur þá var Bakkus
minn æðri máttur, hann var lausn-
in. Þarna var komið skjólið, sjálfs-
virðingin og allt sem ég þurfti.“
16 ára hætti hann svo í skóla. „Þá
er ég kominn í kannabis og önnur
fíkniefni. Kannabis er formlaus óvin-
ur, þú verður aldrei var við hann.
Öll norm fara að breytast í kringum
þig og þér finnst það bara vera hluti
af svona róttæku hugarfari. Stund-
vísi og ábyrgð fer til dæmis, þegar
þú ferð að tapa kraftinum ferð þú
að réttlæta þennan lífsstíl. Áður var
ég ágætis námsmaður en ég fór að
tapa einbeitingu. Veturinn áður en
ég hætti var ég í þremur skólum og
endaði svo bara með skólabækurn-
ar um borð í togara með hassmola í
farteskinu.“
Farandverkamaður í Kristjaníu
Hann segir ekki hafa verið neitt ann-
að í stöðunni en að fara á flakk – ger-
ast farandverkamaður. „ Fjölskyldan
var búin að leysast upp. Mamma
orðin sjúklingur og pabbi eins og
hann var – hann gat aldrei tekið
ábyrgð á neinu, karlinn.“ 17 ára var
hann því farinn að vinna sem sjó-
maður og verkamaður í frystihús-
um víðs vegar um landið. „Þú þurftir
bara að stóla á sjálfan þig. 16 eða 17
ára gast þú farið út á land og fengið
vinnu, fæði og húsnæði. Þetta gerð-
um við sem vorum svona „drop-out,“
en fórum aftur á móti ekki í neina
undirheima, ræsið eða einhverja
herbergiskytru á Grettisgötunni. Við
fórum bara á verbúð.“
Neyslan og róttæku hugsjónirnar
leiddu hann svo til Kristjaníu, frírík-
isins í miðju Kaupmannahafnar. „Ég
bjó í Kristjaníu í einhverja mánuði.
Það var mjög „tough“ tími. Maður
lagði sig allan fram við það að vera
hippi og nota efni og smygla ein-
hverju eitri til Svíþjóðar. Svo kom
maður bara í rúst þaðan. Þá var ekk-
ert öryggisnet sem tók á móti ungu
fólki sem var búið að lenda í vand-
ræðum með fíkniefnaneyslu. Mað-
ur barðist bara upp á líf og dauða
með því að fara bara aftur á vertíð.
Eins og einn þerapistinn sagði við
mig seinna: þú bjargaðir lífi þínu á
erfiðisvinnu, brennivíni og saltkjöti.
Á vissan hátt er þetta satt, ég fór út
á land og öðlaðist nýtt „identity,“
nýtt sjálf. Maður var viðurkennd-
ur: ég var maður með mönnum og
reis upp úr öskunni líkamlega og fé-
lagslega, en öll þessi tengslarof voru
komin til að vera.“
Rekinn úr myndlistarskóla
Tolli hafði því upplifað ýmislegt
þegar hann ákvað loks að leggja
myndlistina fyrir sig og skráði sig á
nýmiðladeild í Myndlistar- og hand-
íðaskólanum. „Ég fór 24 eða 25 ára
í skólann, kláraði hann á einhverj-
um sex árum og var rekinn eitt árið
fyrir andóf, að rífa kjaft og hlýða ekki
skólastjóranum og svona. Ég neit-
aði að mæta samkvæmt stundaskrá,
því það var ekki mætingarskylda. Þá
fór ég bara á sjóinn og sagði að ég
myndi vinna listaverk þar. Þeir voru
ekki sáttir við það og ráku mig. Ég gat
ekkert gert í því en fékk að koma aft-
ur veturinn eftir.“
Hvernig myndi hann lýsa mynd-
listinni sem hann gerir? „Í grunninn
er ég mjög mikill expressjónisti. Þó
að ég sé að vinna fígúratívar, ljóð-
rænar landslagsmyndir, þá vinn ég
stöðugt í períóðum þar sem ég er að
vinna svona abstrakt expressjónískar
myndir, bara algjörlega óhlutbundn-
ar – í ómstríðu falli pensilsins með
liti og form. En ég er alveg jafnvígur
á hægri og vinstri, get unnið í báðar
áttir ef því er að skipta.“
Elti „dílerinn“ í meðferð
Það var ekki fyrr en eftir 25 ár sem að
hann sagði loks skilið við áfengi og
fíkniefni. „Ég fór í sambúð og eignað-
ist tvö börn með þeirri ágætu konu,
en þegar maður er svona tengslarof-
inn er maður ekki í neinum tengsl-
um við umhverfið. Mér fannst ég
aldrei eiga við neinn eiturlyfjavanda
að stríða heldur var þetta alltaf
umhverfið og annað fólk. Svo slitn-
aði upp úr þessari sambúð eftir 16 ár
og ég fór að búa einn á minni vinnu-
stofu,“ segir Tolli. „Maður var bara
kominn í þrot og búinn að vera það
lengi, en hafði hvorki dómgreind
né sjálfsmynd til að sjá það. Maður
fattaði ekki hvað var í gangi og hvað
var að. Maður setti alltaf ástæð-
una af harmi sínum á samfélag og
samferðar menn. Ég gat ekki séð að
það væri eitthvað að og alls ekki að
ég væri dópisti eða fyllibytta – ég var
bara listamaður,“ segir Tolli.
„Á þessum tíma var ég í dag-
neyslu á kannabis, en einn daginn
fór „dílerinn“ minn, sem var líka
drykkjumaður, í meðferð – og mér
fannst full ástæða til! En það var
dálítið erfitt þegar hann var í með-
ferðinni, það var ekkert stuð að hafa
fyrir mig.“ Síðar eftir að hann kom úr
meðferð elti Tolli dópsalann á fyrir-
lestur á göngudeild hjá SÁÁ. Í janú-
ar ætlaði hann í ferðalag til Nepal og
datt í hug að það væri góð hugmynd
að fara í meðferð áður svo hann
þyrfti ekki að upplifa fráhvarfsein-
kenni í ferðalaginu. „Ég var ekkert
að fara í meðferð af því að ég hafði
gefist upp, ég var að skítredda mér í
þessum aðstæðum. En ég var búinn
að vera inni á Vogi í þrjá daga þegar
ég áttaði mig á því hvað væri búið að
vera að gerast, hvar ég var staddur og
hvað ég þurfi að gera.“
Þá var ekki aftur snúið: „Minn
edrúdagur er 5. janúar 1995. Síðan
hefur maður verið í óslitinni bata-
göngu þar sem eitt leiðir af öðru,
eins og í öllu: alltaf leiðir eitt af öðru.
Fyrstu árin fara auðvitað í það að
losna við fíkn og að ná tökum á sjálf-
um sér. En síðan, eftir því sem líður á
batann, áttar maður sig á því að það
er verk að vinna, verk sem teygir ræt-
ur sínar alveg niður í frumbernsku.
Ég lét mér ekkert nægja að verða
edrú og druslast svo í gegnum lífið
með afleiðingarnar á bakinu. Ég fór
í það verkefni að hreinsa til og heila
mig. Það er lífstíðardjobb en mjög
skemmtilegt. En hér erum við kom-
in á slóðir sem allir menn þurfa að
takast á við, því alkinn er ekkert að
díla við nein stökkbreytt vandamál á
við aðra, en hann er oft að taka þetta
í „extra large.“ Það eru allir að tak-
ast á við þennan núningsflöt við líf-
ið, höfnunina, kvíðann, spennuna,
reiðina, það eru allir klyfjaðir af
þessu og lausnin er sú sama fyrir alla,
hún er í raun og veru að mæta sjálf-
um sér með sjálfskærleik og sátt.“
Hugleiðsla og búddismi
Það var ekki strax eftir að Tolli varð
edrú sem hann fór að leggja sig eft-
ir hugleiðslu og andlegri iðkun: „Það
tók hugann og kerfið mitt nokk-
ur ár að verða bara í lagi. Ég bjó
mér til rosalega góðan grunn inn-
an 12 spora samtakanna. Þau hafa
að geyma alveg gríðarlega flotta iðk-
un og mikla visku sem er fólgin í
því að taka ábyrgð á sjálfum sér og
hjálpa öðrum. Þar liggur náttúrlega
grunnurinn í allri mannlegri visku.
Það sem vantar dálítið upp á þar er
hins vegar þessi sjálfskærleikur, að
þú snúir ljósinu að þér. Alkinn er svo
sakbitinn og svo mikið í því að bæta
fyrir brot sín og gleymir dálítið því að
hann þarf að fara í heilun og verða
heill í batanum.“
Þegar hann var að fara í gegnum
ellefta sporið, sem snýr að bæn og
hugleiðslu, fór Tolli að hugleiða hjá
Ananda Marga-jógahreyfingunni. Þó
að hann hafi byrjað að stunda hug-
leiðslu og búddisma fyrir alvöru í
seinni tið hafði hann lengi haft áhuga
á andlegum heimi Austurlanda
eins og margir aðrir sem tóku þátt í
hippamenningunni. „Undir niðri er
alltaf þessi löngun til að finna eitt-
hvað sem heitir æðri máttur, finna
einhverja lausn og frið. Á sama tíma
og maður er í sjálfseyðingarferli ertu
að leita að lausn. Það má segja að frá
fyrsta glasi sértu að leita að guði.“
Pílagrímsferð til Tíbets
Eftir að hafa ferðast til Tíbets segist
hann hafa orðið upptendraður yfir
menningunni og fólkinu, og byrjað
að stunda tíbetskan búddisma eftir
að hann kom heim. Þar lærði hann
svo núvitundarhugleiðslu. „Ég finn
mjög sterkt samhljóminn milli
búddismans og 12 spora kerfisins.
Svo hef ég iðkað „sweat“ og í gegnum
það skoðað hugarheim indjána, þá
sér maður samhljóm milli hinna
ýmsu menningarheima. Andleg arf-
leifð er samtóna í þessu, það er til
þjáning og það er til lausn við þján-
ingunni en hún byggist á því að þora
að stíga inn og taka ábyrgð á henni.“
Hann segir það aldrei vera of
„Að heila sig er lífstíðardjobb“
Nýtt gallerí Í des-
ember opnar Tolli nýtt
og glæislegt gallerí að
Hólmaslóð á Granda.
MyNd SigTRygguR ARi
Pílagrímsferð Árið 2010 fór Tolli í andlega pílagrímsferð til Tíbets, þar gekk hann meðal
annars í kringum helga fjallið Kailos.
Aldrei of seint Tolli segir það aldrei vera of seint byrja að vinna í sjálfum sér og heila sig.„Bjargaði
lífi mínu
með erfiðisvinnu,
brennivíni og
saltkjöti.