Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 54
Helgarblað 14.–17. nóvember 201454
T
rúir þú enn á Slash? Ég hætti því
þegar ég var fimm ára,“ sagði
einn krakkanna í South Park
við annan. Og ekki að undra að
honum sé líkt við jólasveininn.
Kosturinn við Slash er sá að hann
er alltaf eins. Gallinn er hins vegar sá
að hann er alltaf eins. Því veit maður
á hverju er von þegar ný Slash-plata
kemur í hús. Hún er eins og allar hinar,
en ekki jafn góð og Appetite.
Í raun er óþarfi að ræða einstök
lög. Sum byrja lofandi á gítarriffi eða
bassa eða jafnvel kúabjöllu eins og
í gamla daga. En allt hljómar þetta
eins áður en yfir lýkur. Verst er þegar
Myles Kennedy byrjar að syngja,
en þó að hann geri sitt besta vantar
hreysikattar sjarma Axl Rose.
Þó ber að nefna lokalagið, The Un-
holy, sem er kostulegt í tilraunum
sínum til að vera bæði drungalegt og
epískt. Umslagið er eins og búast mátti
við, myndir af Slash með hattinn og
einhverri húðflúraðri gellu.
Spilamennskan er í sjálfu sér góð,
en þó virðist sem Slash sé þessa dag-
ana meira í að spila skala en lög. Og
því minna sem er sagt um textana, því
betra. Flestir þátttakendur músíktil-
rauna 1991 gerðu betri hluti.
Það er svo sem fyrirgefanlegt að
menn detti í meðalmennskuna á
miðjum aldri, en það sem er ófyrir-
gefanlegt að er að servera upp 77 mín-
útur af meðalmennsku. Vínylplöturn-
ar neyddu menn til að vera kjarnyrtir,
en hér skal bætt upp það sem vantar á
gæðin með magni.
Ef einhver plata sýnir fram á að
meira sé minna, þá er þetta hún. Smá-
skífu næst, takk. n
Jólasveinn rokksins
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
World on Fire
Flytjandi: Slash featuring
Myles Kennedy and the Conspirators
Slash Því minna sem sagt er um textana,
því betra.
Komin með bandarískan umboðsmann
Rokksveitin Kaleo komin með samning við umboðskrifstofu sem sérhæfir sig í kántríi
Í
slenska rokksveitin Kaleo hefur
notið gífurlegra vinsælda í hinu
svokallaða „mainstream“-poppi
á Íslandi síðasta árið. Nú hyggja
þeir á frekari landvinninga með
aðstoð umboðsmanns frá þekktri
bandarískri umboðsskrifstofu, 888.
„Þau eru frekar stór í kántríheim-
inum í suðurríkjum Bandaríkjanna,“
útskýrir Sindri Ástmarsson, tals-
maður sveitarinnar á Íslandi. „Strák-
arnir hittu umboðsmann frá þeim
hér á landi í október og flugu svo í
kjölfarið út og skrifuðu undir samn-
ing,“ segir Sindri.
Hljómsveitin, sem er úr Mosfells-
bænum, var stofnuð fyrir tæpum
tveimur árum. Hún tók þátt í Músík-
tilraunum í sama ár og sló í gegn
strax um sumarið með ábreiðu sinni
af laginu Vor í Vaglaskógi. Lagið var
um tíma eitt vinsælasta lag lands-
ins en lögin Rock 'n' Roller og Glass
House hafa einnig gert það gott á
öldum ljósvakans. Fyrir tæpu ári
kom út fyrsta breiðskífa sveitarinnar
og heitir gripurinn einfaldlega Kaleo.
Sindri sem hefur verið umboðs-
maður sveitarinnar hingað til segist
alltaf hafa haft mikla trú á ágæti
sveitarinnar. „Ég hef alltaf haf mikla
trú á því að þeir næðu langt, og ég tel
að þetta geti vel komið þeim þang-
að.“
Sindri mun þó halda áfram að
sjá um umboðsverkefni sveitarinnar
hér heima. Hann segir aðspurður að
stórra tíðinda sé vonandi að vænta
af tónleikaferðalögum og frekari
landvinningum. „Það kemur von-
andi stór tilkynning frá okkur fyrir
árslok.“ n maria@dv.is
Spennandi
íslenskt
Gulli Briem hefur sent frá sér
nýja plötu, Liberté, undir lista-
mannsnafninu Earth Affair.
Gulli sem er einn
stofnmeðlima
Mezzoforte fetar
þar nýjar slóð-
ir í ambíans og
poppskotinni
indítónlist. Gulli
notaðist við óhefðbundin hljóð-
færi við sköpun tónanna. Við
mælum með lögunum Mia's
song og Til moldar.
Hljómsveitin Eva hefur einnig
sent frá sér nýja plötu, Nóg til
frammi. Dúettinn sem skipað-
ur er þeim Sig-
ríði Eir Zoponí-
asdóttur og Völu
Hös kuldsdóttur,
hefur vakið verð-
skuldaða athygli
fyrir smellna texta-
smíð sem þær flytja undir gít-
arspili í þjóðlegum stíl. Mælum
með lögunum Ég er kona og Blóð.
Ásgeir Trausti, ásamt bróður
sínum Þorsteini Einarssyni og
völdum Hjálmum, hefur gefið
út plötu undir for-
merkjum Uni-
mog. Brass-
útsetningar á
plötunni annast
svo Samúel Jón
Samúelsson. Platan
er því einhvers konar diskóskot-
in samsuða úr ólíkum áttum ís-
lensks tónlistarlífs. Einstaklega
áhugaverð plata. Mælum með
laginu Adam átti 7.
Hljómsveitin Himbrimi sendi
frá sér afar athyglisvert mynd-
band við lagið Tearing í síðustu
viku. Sveitin vakti
einnig athygli fyr-
ir vaska fram-
göngu á nýlok-
inni Icelandic
Airwaves-hátíð.
Sveitina skipa þau
Margrét Rúnarsdótt-
ir, Birkir Rafn Gíslason, Hálfdán
Árnason, Skúli Arason og Egill
Rafnsson.
S
igur Rós fékk afhent Lovie-
verðlaunin á fimmtudags-
kvöld fyrir bestu tónlistar-
vefsíðuna. Vefsjórinn Björn
Erlingur Flóki Björnsson
hefur unnið að vefsíðunni síðustu
fimmtán ár en upphaflega, um
aldamótin, var hún aðdáendasíða.
„Við fengum tilkynningu um
að þessi nýja verðlaunahátíð vildi
heiðra Sigur Rós fyrir vefinn og vel
heppnaða framsetningu á efni. Það
er mikill heiður að fá viðurkenn-
ingu fyrir eitthvað sem maður hefur
lagt svo mikla vinnu í,“ segir Björn.
Björn lagði ekki beinlínis upp með
að verða umsjónamaður vefmála
hjá Sigur Rós þegar hann, ásamt
vini sínum Paul, setti síðuna í loftið
upphaflega árið 2000, þá sem aðdá-
endasíðu eða svokallað „fanpage“.
„Þarna var engin upplýsingasíða
fyrir hljómsveitina og við tókum
okkur saman tveir vinir og bjugg-
um til „fanpage“. Það var svo mörg-
um árum síðar að þeir höfðu sam-
band og buðu okkur að sjá alfarið
um vefmálin fyrir sig. Það var mik-
il viðurkenning að þeim fyndist við
standa okkur vel.“
Í rökstuðningi með Lovie-verð-
laununum, sem Björn veitti við-
töku í London ásamt sveitinni, var
vitnað sérstaklega í nýtt verkefni á
vef Sigur Rósar, gagnvirkt tónlistar-
myndband við lagið Storm af plöt-
unni Kveikur.
„Við leituðum til aðdáenda
og fengum þá til að senda okkur
augnablik úr lífi sínu sem þeim
fannst passa við lagið. Við fengum
inn þúsundir „media“-búta sem
urðu svo lifandi myndband frá að-
dáendum,“ útskýrir Björn og seg-
ir það samræmast stefnu síðunnar
og hljómsveitarinnar vel. „Það er
í takti við okkar stefnu að sækjast
eftir upplifunum aðdáenda af tón-
listinni. Hún er jú það mikilvægasta
í þessu.“ n maria@dv.is
Vefsíða Sigur Rósar
valin sú fallegasta
Hvað er Lovie?
Lovie-verðlaunin eru nokkuð ný af nál-
inni en þau eru nefnd í höfuðið á for-
ritunarfrumkvöðlinum Ada Lovelace.
Verðlaunin eru evrópsk og er tilgangur
þeirra að verðlauna þá sem þykja
skara fram úr á sviði netmiðlunar.
Björn Erlingur Flóki Björnsson vefstjóri er þakklátur fyrir viðurkenninguna
Björn
Erlingur
Flóki
Björnsson
Gefa út sjald-
gæfar upp-
tökur Hendrix
Til stendur að gefa út sjaldgæfar
hljóðversupptökur Jimi Hendix
á vínylplötum í Bandaríkjunum
fyrir jólin í tengslum við „Black
Friday“ útsölugjörning plötu-
búða ytra.
Nýja „bootleggið“ ber nafnið
Hear My Music og kemur út þann
28. nóvember næstkomandi.
Efnið sem nemur um tveimur LP-
plötum að lengd er markaðsett
sem „skapandi tilraunamennska“
listamannsins.
Samkvæmt Rolling Stone var
tónlistin tekin upp árið 1969,
sem demó og einhvers konar
frjáls „djamm sessjón“ hljóm-
sveitar Jimis, The Jimi Hendrix
Experience. Á plötunni má finna
ellefu lög, þar af eru tvær áður
óútgefnar útgáfur af Valleys of
The Neptune.