Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 64
Helgarblað 14.–17. nóvember 2014
89. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Hefði sett Hönnu
Birnu í vörnina
n Lekamálið setti svip sinn á
fréttir liðinnar viku en áhuga-
menn um pólitík og íþróttir
fengu þó stund milli stríða á
miðvikudagskvöld þegar Ís-
land mætti Belgíu í vináttuleik í
knattspyrnu karla. Bragi Valdi-
mar Skúlason, Baggalútur, spé-
fugl og annar umsjónarmanna
Orðbragðs á RÚV, var nokk-
uð sáttur við spilamennsku Ís-
lands þrátt fyrir 3–1
tap. „Landsliðið er
svosem alveg með
þetta. En ég hefði
persónulega sett
Hönnu Birnu í
vörnina,“ sagði
Bragi á Twitter.
Adolf Ingi stofnar
fyrirtæki
n Íþróttafréttamaðurinn góð-
kunni, Adolf Ingi Erlingsson,
birtist á skjáum landsmanna á
miðvikudagskvöld þegar hann
lýsti vináttuleik Belgíu og Íslands
í knattspyrnu. Adolf, sem var sagt
upp störfum á RÚV á síðasta ári
virðist hafa mörg járn í eldinum
þessa dagana því hann hefur
stofnað einkahlutafélagið Radio
Iceland FM. Það var Viðskipta-
blaðið sem greindi frá þessu á
fimmtudag en í samtali við blað-
ið sagði Adolf að verkefnið væri á
frumstigi og hann gæti lítið tjáð
sig um það. Þó
sagði hann að
gangi fyrirætlanir
hans eftir muni
draga til tíðinda
á íslenskum úr-
varpsmarkaði
áður en langt
um líður.
Ritskoðar á
Facebook
n Eygló Harðardóttir félagsmála-
ráðherra hefur bersýnilega ekki
verið ánægð með forsíðu Frétta-
blaðsins þann 10. nóvember síð-
astliðinn, daginn sem skuldaleið-
réttingin var kynnt. Tók Eygló sig því
til og leiðrétti forsíðunna og gerði
ritskoðuðu forsíðuna að forsíðu-
mynd hjá sér á Facebook. Breytti
Eygló fyrirsögninni sem var „Synja
fimmtán þúsund um leiðréttingu
húsnæðislána“ í talsvert jákvæðari
skilaboð fyrir sig og sinn flokk: „90
þúsund einstaklingar fá leiðréttingu
húsnæðislána“. Eygló lét þó ekki
nægja að ritskoða fyrir-
sögnina því hún vas-
aðist líka í megin-
málinu og bætti við
að fjölskyldur með
tekjur undir sex
milljónum króna
á ári fái stærstan
hluta leið-
réttingarinnar.
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum stærðum og gerðum,
allt eftir þínum óskum. Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Mismunandi stífleika er hægt að velja, allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla.
Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn okkar.
Svíf þú inn í svefninn
RÚMDalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is| rbrum.is
ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
„Sá besti sem ég þekki“
V
egna þess að hann er einfald-
lega sá besti sem ég þekki til
að gera þetta,“ segir Tryggvi
Þór Herbertsson, verk-
efnastjóri skuldaleiðréttingar ríkis-
stjórnarinnar, aðspurður af hverju
Halldór Benjamín Þorbergsson hag-
fræðingur var fenginn til að halda
kynningu um skuldaleiðréttingu
ríkisstjórnarinnar í Hörpu á mánu-
daginn var.
Frammistaða Halldórs Benja-
míns vakti athygli og þótti skörugleg
en hann flutti kynninguna á um hálf-
tíma. Ýmsir áhorfendur spurðu sig
hins vegar af hverju Halldór Benja-
mín væri flutningsmaður kynningar-
innar á leiðréttingunni en einhverj-
ir kannast við hann sem fyrrverandi
hagfræðing Viðskiptaráðs.
Halldór Benjamín vann ekki að
skuldaleiðréttingunni heldur var
hann eingöngu fenginn til að út-
búa kynninguna á henni og flytja
hana að sögn Tryggva Þórs. „Hann
var fenginn sérstaklega til þess að
skoða tölurnar, útbúa kynninguna
og kynna þetta,“ segir Tryggvi Þór
og bætir við að hann og aðrir starfs-
menn sem unnu með beinum hætti
að leiðréttingunni hafi haft nóg ann-
að að gera. „Verkefnastjórnin, ég
og verkefnastjórarnir höfðum bara
öðrum hnöppum að hneppa við að
koma þessu á.“ Halldór Benjamín
er annars starfsmaður Icelandair
Group.
Þeir Tryggvi Þór og Halldór
Benjamín störfuðu saman á árum
áður innan Milestone-samstæð-
unnar. Tryggvi Þór var forstjóri fjár-
festingarbankans Askar Capital,
dótturfélags Milestone, en Hall-
dór Benjamín var verkefnastjóri hjá
Milestone. n ingi@dv.is
Frammistaða Halldórs Benjamíns Þorbergssonar vakti athygli í Hörpu á mánudaginn
Fenginn sérstaklega
Tryggvi Þór segir að Halldór
hafi verið fenginn sérstaklega
til að vinna kynningu um leið-
réttinguna fyrir fundinn í Hörpu
á mánudaginn. Mynd SIgtryggur ArI
RITSKO
ÐAÐ