Fréttablaðið - 17.05.2016, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 17.05.2016, Blaðsíða 55
Dag sk rá Húsið opnar 8.30 og fundur hefst kl. 9 Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri Isavia býður gesti velkomna. Hvernig tökum við á móti ferðamönnum í sumar? Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar fjallar um það hvernig Isavia og aðrir rekstraraðilar á flugvellinum munu takast á við mikinn fjölda ferðamanna í sumar. Hversu ánægðir eru ferðamenn með dvöl sína á Íslandi? Einar Einarsson framkvæmdastjóri Gallup kynnir Ferðamannapúls Isavia, Ferðamálastofu og Gallup. Umræður í lok fundar Við hvetjum alla þá sem starfa í ferðaþjónustunni og aðra áhugasama til að mæta og kynna sér það sem framundan er á Keflavíkurflugvelli. Boðið verður upp á kaffi og léttan morgunverð Framundan er stærsta sumar frá upphafi fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Miklar áskoranir felast í því fyrir alla þá sem starfa innan greinarinnar. Hvernig erum við á Keflavíkurflugvelli undirbúin? Hvernig getum við samstillt skilaboðin til ferðamanna þannig að ferðalag þeirra um flugvöllinn gangi sem best? Hversu ánægðir eru ferðamenn með dvöl sína á Íslandi? I s a v i a b ý ð u r t i l m o r g u n f u n d a r m i ð v i k u d a g i n n 18 . m a í kl . 9 –10.15 á H o t e l R e y k j a v i k N a t u r a S K R Á Ð U Þ I G Á W W W. I S AV I A . I S/ M O R G U N F U N D U R — M O R G U N F U N D U R I S A V I A H V E R N I G T Ö K U M V I Ð Á M Ó T I F E R Ð A M Ö N N U M Í S U M A R ? A Hologram For the King HHHHH Leikstjóri og handritshöfundur: Tom Tykwer Byggð á skáldsögu eftir: Dave Eggers Aðalhlutverk: Tom Hanks, Alexand- er Black, Sarita Choudhury og Sidse Babett Knudsen A Hologram For the King er nýjasta mynd þýska leikstjórans Tom Tyk- wer sem er þekktur fyrir myndir á borð við Run Lola Run, Perfume og The International auk þess sem hann leikstýrði Cloud Atlas með Wachowski-systrunum. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Dave Eggers og segir frá sölu- manninum Alan Clay sem er sendur til Sádí-Arabíu til að reyna að selja kónginum þar heilmynda- hugbúnað. Það reynist hægara sagt en gert þar sem kóngurinn og umboðsmenn hans láta aldrei sjá sig og Clay og aðstoðarmenn hans þurfa að bíða endalaust auk þess sem þeir hafa takmarkaða nettengingu og geta því illa unnið. Ekki hjálpar að Clay er síþreyttur og sefur sífellt yfir sig sökum þotu- þreytu og er auk þess með undar- legan hnúð á bakinu. Þetta er að vissu leyti dæmigerð saga um fisk á þurru landi sem og saga um mann sem er að reyna að fást við brenglað, hálf-kafkaískt kerfi. Clay er á skrítnum stað í líf- inu, fráskilinn og á síðasta séns, eins og menn vilja oft vera í mynd- um sem þessum. Hvað söguþráðinn varðar er A Hologram for the King ekki að finna upp hjólið og frásögnin og stígandi sögunnar er veiki hlekkur myndarinnar. Fyrir utan klisjurnar þá er sagan svolítið vannærð, mörg atriði ekki nógu vel uppbyggð og það virkar í raun eins og meginsag- an sé hálfgert aukaatriði. Myndin er líka byggð á bók og maður finnur það á strúktúr myndarinnar sem er svolítið brokkgengur. Það sem heppnast best í mynd- inni er hversu góða tilfinningu maður fær fyrir þessum skringi- legu kringumstæðum sem Alan er staddur í, sem er vel tvinnað saman við tilvistarkreppu hans sem kring- umstæðurnar bæði skapa og eru afleiðing af. Frásögnin er kannski á reiki en það er hugur Alans líka og Tom Hanks tekst mjög vel að skapa þrívíða persónu með túlkun sinni. Hanks hefur í raun ekki verið svona skemmtilegur í mörg ár og má sjá eima af gamla, fyndna Hanks í þessu hlutverki. Leikarar eru vel valdir í þessari mynd og flestir þeirra smellpassa í hlut- verkin og tekst yfirleitt að túlka vel eðli per sóna sinna á lágstemmdan hátt. Auk Hanks er vert á minnast á óþekktan leikara að nafni Alexand- er Black sem er mjög eftirminnileg- ur sem hinn sérvitri bílstjóri Yousef sem Clay vingast við. Það áhugaverðasta við myndina er hvernig er leikið sér með raun- veruleikann og formið en það hefði mátt fara lengra með það. Hún byrjar á því sem virðist vera auglýsing, sem umhverfist síðan yfir í hálfgert tónlistarmyndband og reynist svo vera draumur. Mörg augnablik í myndinni eru draum- kennd og hún er full af drauma- senum en allt þetta er ekki nógu vel hnýtt saman við restina af mynd- inni þannig á köflum virkar hún eins og tvær mismunandi myndir. Það er eins og leikstjórinn hafi ekki þorað að ganga alla leið, eða ekki geta það e.t.v. sökum kostnaðar. Atli Sigurjónsson NiðurstAðA: Sagan í myndinni er klisjukennd og ekki nógu heilsteypt en góðir leikarar og frábært andrúmsloft ná að keyra myndina áfram þannig að hún verður ágætlega skemmtileg þrátt fyrir gallana. Fiskur á skrjáfþurru landi Myndin er byggð á skáldsögu eftir Dave Eggers. M e N N i N g ∙ F r É t t A B L A ð i ð 27Þ r i ð J u D A g u r 1 7 . M A í 2 0 1 6 1 7 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 7 2 -2 8 9 4 1 9 7 2 -2 7 5 8 1 9 7 2 -2 6 1 C 1 9 7 2 -2 4 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.