Fréttablaðið - 17.05.2016, Blaðsíða 52
Það er ekkert of oft sem íslenskum tónlistarunnendum gefst þess kostur að hlýða á tvö
af stórvirkjum kirkjutónbók
menntanna á einu og sama kvöld
inu. En annað kvöld kl. 20 flytur Kór
Langholtskirkju messu Stravinskíjs
fyrir kór og blásara ásamt blásara
sveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands
en einsöngvarar koma úr röðum
kórfélaga. Á sömu tónleikur mun
kórinn einnig flytja Óttusöngva
að vori eftir Jón Nordal og verða
einsöngvarar Þóra Einarsdóttir og
Hanna Dóra Sturludóttir en stjórn
andi á tónleikunum er Steinar Logi
Helgason.
Einstakar perlur
Gunnar Guðbjörnsson hjá Listvina
félagi Langholtskirkju er á meðal
þeirra sem unnið hefur að undir
búningi tónleikana sem hann segir
að séu mikið tilhlökkunarefni. „Ég
er náttúrulega ekki sérfræðingurinn
í þessari tónlist en hvort tveggja eru
þetta stór og flott kórverk með ein
staklega fallegum sólóköflum. Strav
inskíj er eins og hann er og hann
vinnur þetta upp úr þessum helgi
texta. Það er nú kannski ekki það
sem Stravinskíj var þekktastur fyrir
en þetta er svo sannarlega ekki síðra
fyrir það. Hvort tveggja eru þetta
sannkallaðar perlur sem heyrast
kannski ekkert of oft svo það er svo
sannarlega ástæða fyrir fólk til þess
að drífa sig.
Stravinskíj samdi messuna á árun
um 1944 og 1948. Verkið er persónu
leg nálgun Stravinskíjs á texta hinnar
kaþólsku messu þar sem hann lítur
til baka á tónlist fyrri alda og færir í
senn messuna inn í nýja hrynjandi
hinnar stríðshrjáðu Evrópu. En
Óttusöngva á vori samdi Jón Nordal
fyrir Sumartónleika í Skálholti árið
1993. Óttusöngvar eru stærsta söng
verk Jóns en þar tvinnar hann saman
hefðbundnum messutexta, Sólar
ljóðum frá miðöldum og Sólhjartar
ljóði Matthíasar Johannessen í sinn
einstaka djúphugla tónavef. Jón
hefur ekki skrifað mikið fyrir raddir,
sérstaklega ekki sólókafla, en það eru
þarna einsöngskaflar sem eru alveg
gullfallegir.“
Annir í skólastarfinu
Gunnar segir að það séu líkur á því
að þetta verði síðustu hátíðartón
leikar kórsins sem hann kemur að í
bili en hann gegnir starfi skólastjóra
Söngskóla Sigurðar Demetz og það
er því í mörg horn að líta. „Ég hugsa
að ég fari nú að segja þetta gott því
við erum að leggja mikið í að efla
starf skólans enn fremur. Við vorum
til að mynda að opna nýja heima
síðu enda eru tímarnir breyttir og
ef stafræni hlutinn er ekki í lagi þá
er hætt við að það komi niður á
starfinu.
En ég vil sem sagt geta sinnt þessu
starfi eins vel og ég mögulega get og
er með ákveðna hluti í huga fyrir
skólann sem mig langar til þess
að gera með sönglistina almennt
á Íslandi. Mig langar til þess að fá
meira í gang hjá yngri kynslóðinni,
jafnvel hjá börnum, að fólk kynnist
því fyrr hvað það er gott að syngja.
Þetta er ekki bara spurning um að
skapa vettvang fyrir sóló heldur að
fólk finni hvað það er gefandi að
syngja í kór. Ég vil að fólk kynnist
því fyrr á ævinni. Þetta sá ég vel í
starfi Jóns Stefánssonar og hvað
hann færði stórum hópi ákveðin
lífsgæði með sínu frábæra starfi.
Þetta langar mig til þess að gera í
gegnum skólann.“
Verkið er persónu
leg nálgun straV
inskíjs á texta hinnar
kaþólsku messu þar sem
hann lítur til baka á
tónlist fyrri alda og færir
í senn messuna inn í nýja
hrynjandi hinnar stríðs
hrjáðu eVrópu.
Örugg búseta
með þriggja ára
leigusamningi
Langtíma
leigusamningur
Sveigjanleiki
24/7 þjónusta
Við leigjum út um 500 íbúðir af öllum stærðum á höfuðborgar
svæðinu og bjóðum leigjendum upp á leigusamninga til allt
að þriggja ára. Þannig tryggjum við leigjendum örugga búsetu,
aðgang að öflugri þjónustu og sveigjanleika til að stækka eða
minnka við sig þegar hagur fólks breytist.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
almennaleigufelagid.is
Við gerum leigu að raunhæfum valkosti
Einstakar perlur sem heyrast ekkert of oft
hátíðartónleikar kórs langholtskirkju verða haldnir annað kvöld og dagskráin er sannarlega hátíðleg.
Kór Langholtskirkju heldur hátíðartónleika annað kvöld.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 7 . m a í 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D a G U R24 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
menning
1
7
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
7
2
-0
6
0
4
1
9
7
2
-0
4
C
8
1
9
7
2
-0
3
8
C
1
9
7
2
-0
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K