Feykir - 17.12.2003, Side 15
44/2003 FEYKIR 15
Lagið tekið í Skagfirðingabúð við undirleik Rönvaldar
Valbergssonar.
koma jól þá em kannski víða auð sæti
við jólaborðið, heldur en bara hjá
þessu fólki sem textinn var saminn
fyrir. Ég var ekki sáttur við að skilja
við lagið. Ég söng það eftir litla sem
enga æfíngu, fannst ég eiga eftir að
skila því almennilega ffá mér. Lagið
vék aldrei ffá mér og þó að skammt
væri frá liðið og svolítill beygur í mér
þessvegna, ákvað ég að tala við þá
sem áttu hlut að máli, að fá að hafa
lagið með á disknum og það var auð-
fengið. Mér fannst þessi texti þyrfti að
kornast víða og það hefur reynst rétt
tilfinning. Fólk hefur verið að hringja
í mig í tíma og ótíma, í tugatali sumt
bláókunnugt, og stoppað mig í götu.
Það er einmitt þessi meining í textan-
um sem höfðar til fólks.”
En verður ekki erfltt að fylgja
disknum eftir á nýju ári?
„Það er bara að sjá til með það,
setjast yfir það á nýju ári. Það er kom-
inn seinni hálfleikur og óvíst með
framlengingu, þannig að það er best
að spara stóm orðin. Það hefur reynd-
ar alltaf verið þannig hjá mér í kring-
um sönginn, að fyrirffam hefur aldrei
verið ákveðið eitthvað sem svo hefur
gerst. Mér hefði ekki órað fyrir því
um síðustu áramót að ég myndi núna
um þessi áramót standa á toppnum
með dægurlagaplötu. Og það er lík-
lega orð að sönnu sem gamall Krósk-
ari sagði einhvem tíma, „enginn veit
sína ævina fyrr en allt í einu.”
þessum tíma að það vom böll nánast
á hverju einasta kvöldi milli jóla og
nýárs, annaðhvort ffam í fírði eða út á
Krók.
Það var messað á Víðimýri á jóla-
dag og þá kom alltaf Krithólsfólkið
við á leiðinni heim. Þá var sest að
súkkulaðidrykkju og hnallþómm og
svo var spilað alveg út í eitt. Og svo
var farið suður eftir seinna, milli jóla
og nýárs, og endurgoldið heimboðið.
Þannig var það, ekkert meira, en ég
vildi ekki skipta, þetta var svo
skemmtilegt. Ef að krakkamir í dag
koma til með að hafa í bijóstinu slík-
ar minningar þegar þau komast á
minn aldur, þá er vel. Það em forrétt-
indi að hafa alist upp við það að geta
glaðst yfir litlu.”
Hvað, þú ert eitthvað að syngja
með Heimi og síðan þið Álftagerð-
isbræður?
„Já Stebbi Gísla var búinn að minn-
ast á það við mig að vera eitthvað
með Heimi eftir áramótin. Við bræð-
umir höfum lítið verið að syngja að
undanfomu en það er meiningin að
æfa upp eitthvað og reyna áffam. Við
fómm reyndar í eina ferð suður um
daginn, sungum fyrir Grindvíkinga og
Rauðakrosskonur á Hótel Loftleiðum.
Það var fullt hús af kerlingum, bara
einn karl og við náttúrlega reyndum
einu sinni enn að koma Sigfusi út. Við
buðum meira að segja fé með honum
og fría áskrift að Feyki í tvö ár, en
ekkert gekk.”
- Svo við víkjum að nýja diskn-
um aftur. Það er þarna lag sem þot-
ið hefur upp vinsældarlistana og er
spilað á öllum rásum, algjört „hit-
lag”?
„Já það heitir „Þú gætir mín”, út-
lent lag og textinn er eftir séra Hann-
es Öm Blandon. Það er saga á bak við
þetta lag. Á liðnu vori dó ung kona á
Akureyri. Það er hjartveiki í ættinni
og þessi kona var búinn að missa
bróður sinn úr slíkum veikindum.
Þetta var uppáhaldslagið hinnar látnu
og maðurinn hennar bað séra Hannes
að gera textann. Ég söng lagið yfir
henni. Ætli sé ekki skýringin á þess-
uin vinsældum lagsins að Hannes hafi
hitt naglann á höfuðið. Hann er næm-
ur og raunvemlegur þessi texti, segir
hvemig lífið getur verið, svolítið nöt-
urlegt stundum, af því að það em að
Sendum starfsfólki og viðskiptavinum
okkar fjær og nær bestu
jóla og nýársóskir
<I$K
FISKIÐJAN SKAGFIRÐINGUR
Byggðasaga
Skagafjarðar
Næsta bindi byggðasögunnar mun fjalla um Lýtingsstaðahrepp
og kemur væntanlega út á haustdögum 2004.
Eldri bindi eru fáanleg í Safnahúsinu á Sauðárkróki
1. bindi Skefilsstaðahreppur/Skarðshreppur kr. 8.900
2. bindi Staðarhreppur/Seyluhreppur kr. 11.900
Glæsilegar bækur sem ættu að vera
til á hverju heimili í Skagafirði.
Sögufélag Skagfirðinga s. 453 6640
netfang: saga@skagafjordur.is