Feykir


Feykir - 15.12.2004, Qupperneq 9

Feykir - 15.12.2004, Qupperneq 9
44/2004 Feyklr 9 Kristján Linnet var sýslumaður Skagfirðinga 1919. veruna, eins og sjálfsagt var. Það mátti sín þó lítils. Manni leið illa að sjá svo dregið af þessum síkáta og fjörmikla ntanni. Þær endurminningar eru ekki ljúfar. — Einn dag í nöpru hryssings- veðri lagði Jóhann svo á stað austur yfir Skagaíjörð til Hofsóss á litlum vélbáti. Hann var lítt búinn til slíks ferðalags. Hafði ekki hugsað mikið um slíkt er hann hélt frá Danmörku í íslenskri sumar- blíðu. „Fáir kunna sig í góðu veðri heiman að búa”. Konan vafði hlýjurn trefli urn háls hans og hló Jóhann rnikið að því en þáði hann þó. Við reyn- dum að fá hann til þess að bíða eftir hagstæðara veðri. En það héldu honum engin bönd.— Jóhann hafði lagt af stað ffá Sauðárkróki þegar að loknu erindi síðu. Áður en hann fór, skildi hann eftir hjá mér öll þau skjöl, umboð, tilboð og annað, sem mál þetta varðaði. Honum þótti það vissara. Hann gerði ráð fyrir að svo gæti farið að hann komist ekki lifandi til Danmerkur. Hann hafði fengið alvarleg köst fyrir hjartað og horfðist í augi við það, sem þau boðuðu. Málið mátti þó ekki stranda á því, hvað sem honurn sjálfum liði. Af þeim ástæðum, sem ég áðan sagði frá var þessara skjala aldri vitjað til mín. Ég á þau enn til minningar unt sorgle- gan atburð og merkilegt mál, sem ekkert varð úr. Það dó um leið og Jóhann. Síðan hafa risið upp mörg og mikil hafharmannvirki viða urn land. En Höfðavatn hefur gleymst og hin stutta frægðar saga þess.” í frásögn Björns Jónssonar í Bæ segir hann frá einni ferð þeirra út að Þórðarhöfða. Sú ferð var honum minnisstæð. Þeir setjast undir Búðar- brekkur í góðu veðri og ekki margt talað. Skáldið hallar sér útaf. “ svo reis hann upp, leit inn yfir vatnið og héraðið og staði stundarhátt; Stórkostlegt. „Hann talaði um Höfðavatnið og þá miklu möguleika er þær Björn í Bæ var 16 ára fylgdarmaður Jóhanns. væru til stórkostlegra fram- kvæmda. Ekki var Jóhann í neinum vafa um að við vatnið væru einhverjir mestu og bestu möguleikar á hafnarmann- virkjum hér á landi. Síldar- útgerðarbær var þó nr 1. Þá var Skagafjörður oft ein vaðandi síldartorfa." Hér hefúr verið farið hratt yfir úr einu í annað. En Jóhann hefur heimsótt okkur Skagfirðinga með öðrum hætti en hér hefur verið sagt ffá. Tvö leikrita hans, Fjalla Eyvindur og Galdra Loftur hafa ratað á fjalirnar í Bifröst hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Bæði leikritin hafa verið sýnd tvisvar sinnurn. Fjalla Eyvindur 1943 og 1963. Galdra Loftur 1960 og 2002. f næstu grein verður fjallað nokkuð um þessar sýningar en þær urðu mörgum eftirminni- legar. Þessa dagana er mikið talað um útrás íslenskra fyrirtækja. Lífshlaup Jóhanns var útrás í þeirn skilningi; hann varð frægur höfundur íslenskur sem skrifaði verk sín á dönsku. Og kannski var hann margir menn. Þegar vinur hans, Sigurður Eggerz, bæjarfógeti og ráðherra, skrifaði um hann minningarorð sagði hann m.a. “Hann var undarlegur maður, Jóhann Sigurjónsson; hann verður ekki mældur á neinn almennan mælikvarða, því að alfaðir hafði gefið honum vög- gugjöfina miklu, guðdóm- sneistann sem skapar óróann mikla í mannssálinni, sem margfaldar sorgina og margfal- dar gleðina og fleygir annað augnaðblikið niður í hyldýpið, en lyftir henni á næsta augnab- liki upp í himin himnanna. Úr þessum heimi andstæðnanna stíga listaverkin." Greinarhöfundur var ung- ur þegar hann kynntist ljóðum Jóhanns Sigurjónssonar en var korninn á þrítugsaldur þegar hann sá fyrst leikrit eftir hann á sviði. Þá norður á Sauðár- króki. Kynnin voru farin að dofna og það er gott að hafa eignast skáldið sitt aftur. Jón Ortnar MINNING Guðmundur L. Friðfinnsson 9. desember 1905 - 4. desember 2004 Með Guðmundi á Egilsá er genginn einn af merkustu sonum Skagafjarðar. Hann var fæddur á Egilsá í Norðurárdal. Þar ól hann aldur sinn og vann sitt æfistarf, sem var ærið að vöxtum. Hvorutveggja var að honum entist starfsorka óvenju lengi og jafn framt var vilji hans sterkur til að verk gengju hratt og vel fram. Hann var eina barn foreldra sinna. Það þótti því nánast sjálf- sagt að hann tæki við búi á Egilsá, hafði og undir búið sig undir búskapinn með námi í Bændaskólanum á Hólum. Þá hafði hann og lokið námi við héraðsskólann að Laugavatni. Tímamótin í lífi hans verða 1932. Það ár er hann skráður bóndi á Egilsá og það ár festir hann ráð sitt og flytur brúði sína önnu Sigurbjörgu Gunnars- dóttir, frá Keflavík í Hegranesi, heim í Egilsá. Samhentari lífsföru- nauta hef ég enga þekkt en þau Egilsárhjón. Ekki blés nú vel til búskapar á frumbýlingsárunum í sjálfri heimskreppunni. En Egilsárbóndinn réðst strax af harðfylgi í framkvæmdir á jörð sinni, byggði, ræktaði jörð og fénað og stækkaði bú sitt. Dætur þeirra, Kristín f. 1934, Sigurlaug f. 1935 og Sigurbjörg Lilja f. 1937, komu fljótt til léttis og hjálpuðu foreldrum sínum af dugnaði. Þær systur eignuðust allar maka og afkomendur. Þegar skorið var allt fé vegna fjárpesta 1949, var Guðmundur orðinn fjárflesti bóndinn í Akrahreppi. í öllum þessum framkvæmdum studdi Anna mann sinn dyggilega. Á þessum fyrstu búska- parárum áttu því framkvæmdir og búskapar umsvif hug þeirra hjóna hvað mestan, en eigi að síður hófu þau mjög snemma gróðursetningu trjáa sér til yndis- auka. Sauðlaust var í eitt ár um fjárskiptin og því voru dagleg störf önnur og minni en áður, og þá er það sem Guðmundur hefur rit- störfin, sem hann er kunnastur fyrir og geyma mun nafn hans um ókomin ár. Það var líkt og ein- hver stífla brysti og æð sagna og ritlistar opnaðist hjá Egilsárbónd- anum. Árið 1950 koma út tvær skáldsögur effir hann. Hlutu þær góða dóma og seldust vel. Síðan rak hver skáldsagan aðra og á næstu 10 árum skipar hann sér á bekk með ffemstu rithöfundum þjóðarinnar. Síðastliðin 40 ár hefúr Guðmundur á Egilsá verið eitt af gleggstu kennileitunum í skagfirsku menningar umhverfi. Hann var alhliða rithöfundur auk skáldsagnanna skrifaði hann leikrit og orti ljóð.og skrifaði æfisögu. Síðasta verk hans sem út kom.Þjóðlíf og þjóðhættir, er gefið út af Erni og Örlygi, árið 1991. Fyrir það viðamikla verk um þjóðleg efni, hlaut Guðmundur Davíðspennann, sem er mikil viðurkenning. Á þessum árum var það gæðastimpili hverju þ\i verki sem Örlygur Hálfdánarson gaf út, því hann gerði kröfur um listrænt og menningarlegt gildi útgáfú sinnar Iangt umffarn aðra útgefendur. Framan af ritferli Guðmundar var konan honum hjálparhella og hreinskrifaði handritin. Samvinna þeirra brást þar ekki ffekar en í búskapnum. Saman starffæktu þau svo bar- naheimili um árabil og var það um nokkurt skeið hið fjölmennasta á landinu. Mörg barnanna sem þar dvöldu urðu sem hluti íjölskyld- unnar og héldu tryggð við heimilið og sýndu Guðmundi ræktarsemi til hinstu stundar. Við sjötugsaldur hugðust þau Egilsárhjón hætta búskap. Haustið 1974 flytja þau til Reykjavíkur. Förguðu þó ekki fé og hrossum sem þau áttu, en nágrannar hirtu um veturinn. I Reykjavik hugðist Guðmundur gefa sig óskiptan að ritstörfúm. Þar væru ekki önnur umsvif, sem krefðust tíma og hugsunar líkt og verið hafði á Egilsá. En það fór á annan veg. Við skrifúðumst á þennan vetur. í Góubréfi innti ég Guðmund um hvað hann væri að skrifa þá um stundir. Og svarið kom um hæl. Hann var ekkert að skrifa og gat ekki skrifað. „Sá sem hefúr misst sína á og sinn Dal og sinn Hnjúk, skrifar ekki bækur”. Með vorinu fluttu þau hjón aftur að Egilsá. Skáldgáfan gafst honum aftur og hann átti eftir að senda frá sér margar og merkar bækur. Búskap hélt Guðmundur áffam í smáum stíl og vildi það til láns að til hans fluttist ungur maður Jón Hjörleifsson frá Gilsbakka, traustur og vaskur maður til allra verka. Jón átti nokkurn fjárstofn og bjuggu þeir saman á Egilsá í ein átta ár og fór Jón ekki ffá Guðmundi fyrr en hann var hættur sauðfjárbúskap. Árið 1982 andaðist Anna kona Guðmundar eftir áralöng veikindi og sjúkrahúslegu. Þótt Guðmundur væri nú nær áttræður ekkjumaður og mikið einsamall í sínu húsi var búska- parsögu og ritstörfúm ekki lokið. Einsetumaður var hann þó ekki þótt oft á tíðum væri hann það síðar því að ágætt fólk starfrækti heimili fyrir fötluð börn í nýja hús- inu. I búnaðarsögunni hefst nú nýr kafli, Guðmundur gerist skógar- bóndi og einn aðalhvatamaður að stofnun Norðurskóga. Guð- mundur hafði allan sinn búskap sinnt skógrækt. Ljóst var að trjá- gróður átti gott á Egilsá og tré náðu þar miklum vexti. Stór flæmi voru nú tekin undir skógrækt. Á hveiju ári vann Guðmundur meira og minna að trjáplöntun utan 2-3 hin síðustu að hann hafðist ekki að. Það hygg ég að séu fa dæmi ef nokkur að bóndi búi í 70 ár. Ég vil að leiðarlokum þakka Guðmundi á Egilsá fyrir áratuga nágrenni og vináttu. Ef einhvers þurfti með var hann boðinn og búinn að koma til hjálpar. Árlega var skiptst á jólaboðum milli bæjanna og síðast í fyrra sátum við jólaboð hjá öldungnum, þá og fleiri jól aðstoðaði hann, afabarnið Anna María Guðmundsdóttir. í stórmerku viðtali ffá í sumar, sem birtist ekki fyrr en degi eftir andlát hans segist hann ætíð hafa varðveitt barnið í sér. Jólabarnið í sér varðveitti hann sérstaklega vel. Mér fannst hann ætíð taka á móti jólunum af hátíðleik og fögnuði barnsins. öllum skepnum vildi hann gefa sérlega vel um jól. Kappkostaði og jafúan að ná öllu fé á hús fyrir hátíðar. Eitt smá Ijóð Guðmundar hefst þannig: „Blámi er yfir þótt skefli skafl.” Annað Ijóð hans byrjar svo: „Langt ffarn á Lambárfjalli Ijóð í þögninni grær”. Fyrri Ijóðlínan Iýsir lífsviðhorfi. Hversu dimmt sem var í kring og þungt fyrir fæti, vissi hann að élin birta upp og ffarn úr taki, og hann sá jafnan fyrir sér bláman sem yfir var. Hann var hamingju niaður í lífi sínu og starfi. Hann var skáldið sem átti sína á og sinn dal. Hann gekk grónar hlíðar Dalsins sem gáfu honum viðurværi, og hann gekk einnig fjöllin þar sem ljóðin gróa í þögninni. Blessuð sé minning Guð- mundar á Egilsá. Gummr Oddsson LAUS STAÐA Vantar konu til starfa í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Um er að ræða 100% starf. Nánari upplýsingar hjá forstöðumanni ■ síma 453 5098 s_____________________________________________á Flísar -flotgólf múrviðgerðarefni AÐALSTEINN J. MARÍUSSON [ Sími: 453 5591 « 853 0391 « 893 0391 J

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.