Feykir - 06.12.2006, Síða 2
2 Feykir 45/2006
Jólahugvekja :: Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur á Sauðárkróki
Friður sé með þér
Á aðventu og fram yfir jól logar á ljósakrossi
upp á Nöfunum. Krossinn ltefur verið settur
upp fyrir hátíðirnar áratugum saman. Þeir sem
yngri eru muna kannski ekki þegar kveikt var á
honum fyrsta sinn en hann er allavega fyrir
löngu orðinn ómissandi hluti af ásýnd bæjarins
á þessurn árstíma. Það er eins og hann vaki yfir
bænum og frá honum stafar birtu og yl. Við
þurfum að líta upp til að sjá hann, aðeins að
færa sjónlínuna upp til hæða, ffá okkur sjálfum
upp í aðra vídd. Krossinn er tákn okkar kristinna
rnanna. Við signum okkur með krossi okkur til
verndar og áminningar um að við erum aldrei
ein á ferð, jafnvel þó við förunr um dimmustu
einstigi.
Það er tilkomumikil sjón og sérstök að fylgjast
með þegar nemendur Árskóla, hátt í
fimmhundruð að tölu, fara í sína árlegu
friðargöngu og tendra Ijós á krossinum á
Nöfunum. Hver bekkur á fætur öðrum töltir
upp Kirkjuklaufina og þaðan upp stíginn sem
hlykkjast upp á brúnina. Börnin mynda
samfellda keðju sem nær alla leið upp á Nafir og
langleiðina niður að kirkju. Fyrsti bekkur er
neðstur, svo annar bekkur og þannig koll af
kolli. Eftir því sem árunum fjölgar kernst hver
og einn ofar í röðina og að lokum alla leið upp
á topp. Síðasta barnið fær lukt í hendur sem það
afhendir næsta barni og segir um leið: Friður sé
með þér. Smárn saman þokast luktin upp
brekkuna í átt að krossinum uns öll börnin hafa
rétt hana næsta rnanni og óskað honum friðar.
Þarna standa þau öll í halarófu og svo kát og
áhyggjulaus í morgungrámanum. Sum dansa
og syngja og láta rokið og kuldann ekki trufla
sig nokkurn hlut. Þannig hefst aðventan hjá
börnunum og margt getum við sem eldri erum
af þeim lært. Að geta lifað saman í sátt og
samlyndi er mikil blessun og þakkarvert. Friður
og sátt eru nátengd hugtök og óhugsandi hvort
án annars.
Jólin boða ljós sem lýsir upp myrkan heint. Ljós
sem færir okkur kærleika og frið. Til að finna
frið þurfum við að vera sátt bæði við sjálf okkur
og aðra. Guð sendi son sinn í heiminn til að við
gætum orðið sátt og fúndið frið. Þessi góði
boðskapur á þó ekki alltaf greiða leið að hjörtum
mannanna. Ly'ftum augum okkar upp til hæða,
horfunt til ljóssins. Tökum eftir hvað augað
nemur og eyrað he\'rir. Börnin okkar óskuðu
hvert öðru friðar og á jólanótt SN'ngja englarnir
um frið á jörðu. Ég bið þess að friður og gleði
megi ríkja og einkenna samskipti okkar á þessari
aðventu ogjólum.
Megi friður frelsarans umvefja þig og þína.
Gleðilega hátíð,
Sigríður Gunnarsdóttir,
Sauðárkróki
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
I Feykir
Útgefandi: son, Áskell Heiðar arnig@krokur.is Póstfang Feykis: Lausasöluverð:
Feykirhf Ásgeirsson, Páll Simi 455 7100 Box 4, 550 250 krónur með vsk.
Dagbjartsson, Herdis Sauðárkrókur
Skrifstofa: Sæmundardóttir og Blaðamenn: Setning og umbrot:
Aðalgötu 21, Olafur Sigmarsson. Úli Arnar Brynjarsson Áskrittarverð: Nýprentehf.
Sauðárkróki PéturIngi Björnsson 210krónurhvert
Ritstjori & feykir@krokur.is tölublað með vsk. Prentun:
Biaðstjórn: ábyrgðarmaður: Simi 455 7175 Nýprent ehf.
Árni Gunnars- Árni Gunnarsson
Austur Húnavatnssýsla
Sífellt fleiri skoða
Þingeyrakirkju
ilirrrrililmn.
Erlendur Eysteinsson formaður sóknarnefndar Þingeyrakirkju.
Þingeyrakirkja er að verða
einn af fjölsóttari stöðum
Austur Húnavatnssýslu.
Ferðamönnum sem konta á
staðinn hefur fjölgað um eitt
þúsund á hverju ári undanfarið.
Þannig urðu þeir um sjö þúsund
talsins í sumar rneðan þar var
stöðug viðvera og eftir það
komu um eittþúsund manns á
staðinn til að skoða kirkjuna.
Erlendur Eysteinsson á Stóru-
Giljá forntaður sóknarnefndar
Þingeyrakirkju segir að ekki sé
tekinn neinn aðgangseyrir af
fólki sem kentur. En sóknar-
nefndin hafi undanfarin ár
fengið styTk frá samgöngu-
ráðuneytinu sent dugi að
mestum hluta fyrir launum
gæslumanns.
Eins og áður hefur komið
fram í Feyki var fyrir skömmu
tekið formlega í notkun nýtt
aðstöðuhús við kirkjuna. Það
var ekki síst byggt til að auðvelda
móttöku ferðamanna á staðn-
um í framtíðinni. ÖÞ:
Lionsklúbbur Sauðárkróks
Gáfu 500 þúsund kr.
til tækjakaupa
Lionsklúbbur Sauðárkróks færði á dögunum Björgunarsveitinni
Skagfirðingasveit á Sauðárkróki kr. 500.000að gjöftil tækjakaupa.
Á myndinni má sjá Lionsmenn afhenda gjöfina. Frá vinstri: Páii Pálsson,
Símon Skarphéðinsson, Valgeir Kárason, Stefán Jónsson,
Asta Jónsdóttir og Hera Garðarsdóttir.
Grunnskólinn á Hofsósi
Jólavaka
í rúmlega áratug hefur það
verið fastur siður að Grunn-
skólinn á Hofsósi standi fyrir
jólavöku á aðventu.
Jólavakan að þessu sinni
verður í Höfðaborg miðviku-
daginn 13. desember og hefst
kl. 20:30. Að venju verður mikill
söngur, ræðumaður kvöldsins.
Jólavakan hefiir átt sívaxandi
vinsældum að fagna og fólk
víða að úr héraðinu hefur átt
notalega kvöldstund með góðu
listafólki við kaffi, smákökur og
kertaljós.