Feykir - 06.12.2006, Blaðsíða 6
6 Feykir 45/2006
og heil ósköp af skíðabúnaði.
Fyrsta Skarðsmótið var haldið
1947 og á hverju vori í milli 20-
30 ár. Miklir fólksflutningar
fylgdu þessum mótum. Á
veturna þótti gott að komast að
sunnan eða suður er öxna-
dalsheiðin var snjóþung og taka
Drang á Króknum til Siglu-
íjarðar. Það voru því margir
sem fóru um Krókinn á þessum
árum.
Drangur úr sögunni við
opnun Stákagangna
„Garnli” Drangur hætti terðurn
síðla árs 1959 og við tók nýtt
skip með sama nafni en síðasta
áætlunarferð þessa skips til
Sauðárkróks var 23. apríl 1968.
(Strákagöng opnuð árinu áður
10. nóv.). Flutningar á landi
tóku nú við. Drangur kom þó af
og til á Krókinn af ýmsu tilefni
og í síðasta sinn 24. janúar 1975.
Drang var breytt í fiskiskip 1982
og hlaut nafnið Happasæll
KE94.Tekiðafskrá lO.júlí 1986
og talið ónýtt og því sökkt 18.
júlí 1986,70 sjómílum suðvestur
af Reykjanesi. Það eru döpur
örlög mikil happafleys. Hrein-
legra er að setja slík skip í
brotajárn.
„Nýi” Drangur varsmíðaður
í Noregi 1959 úr stáli, 191 brl.
með 400 ha Wickmann vél og
var Steindór Jónsson á Akureyri
eigandi en hann var einnig
eigandi „Gamla” Drangs.
Margt mætra manna var i
áhöfn Drangs í gegnum tíðina,
þó mannaskipti af og til eins og
gengur. Guðbjartur Snæbjörns-
son skipstjóri, Steindór Jónsson
af og til skipstjóri (og eigandi),
Anton Ingimarsson matsveinn,
Ragnar Emilsson vélstjóri,
sömuleiðis Jónas Kristjánsson,
Benedikt Sæmundsson, Axel
Júlíusson, Snæbjörn Guðbjarts-
son sonur skipstjóra, býr nú á
Hofsósi, og vafalaust margir
ótaldir. Allt voru þetta vinsælir
menn og eignuðust góða vini
víða á höfnunum.
Hörður Ingimarsson
Heimildír. Skagfirðingabók nr. 23 1994.
Siglfirskur annáll útg. 1998. Skipaskrár.
Heima er best og ýmsar heimildir. Sá er þetta
ritar leysti af öðru hvoru við afgreiðslu
Drangs í þrjá vetur.
Árleg jólavaka Nemendafélags Grunnskólans á Hofsósi verður haldin í
Höfðaborg miðvikudaginn 13. desember og hefst kl.20:30.
Fjölbreytt dagskrá:
Upplestur, söngur, hljóðfæraleikur. Hátíðarræðu flytur Björg Baldursdóttir.
Stórsöngkonan Alexandra Chernyshova er aðalgestur kvöldsins, en hún mun flytja lög af
nýja diskinum sínum ásamt nokkrum jólalögum.
Aðgangseyrir: Kr. 1000 f. fullorðna og 300 f. börn.
Kaffi og smákökur á borðum. Njótum saman Ijúfrar stundar.
Nemendafélagið
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Kvensjúkdómalæknir
Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir verður með móttöku
11. og 12. desember.
Tímapantanir í síma 455 4022.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki