Feykir - 06.12.2006, Blaðsíða 13
45/2006 Feykir 13
„Þetta erþað landslag sem ég elska og nýtað hafa íkringum mig."
ég þar til að ég fór á eftirlaun
árið 1994.
-Á þeim árum sem þú varst
praktíserandi sálfræðingur
úti í bæ hefur það sjálfsagt
verið meira feimnismál en nú
að leita til sálfræðings?
-Jú, það hefur orðið mikil
breyting að þessu leyti. Á
mínum fyrstu árum sem
parktíserandi sálfræðingur fór
fólk með það eins og manns-
morð ef það þurfti að leita til
mín. Nú hælir fólk sér af því að
hafa verið í sálfræðimeðferð og
þykir fint að fara í sálgreiningu.
-Hvernig var að fara úr
praktík í kennslu?
-Þetta var mildl breyting. í átján
ár hafði ég nær eingöngu fengist
við klíníska sálarfrærði en ekki
fræðilega sálarfræði að öðru
leyti. Þegar ég kom í Háskólann
varð ég að kenna ýmsar geinar í
sálarfræði sem ég hafði ekkert
lagt mig eftir í nær tvo áratugi,
barnasálarffæði, öldrunarsálar-
ffæði, félagslega sálarffæði og
fleira. Þetta kallaði á mikinn
lestur og undirbúning. Ég hafði
afskaplega gaman af þessu og ég
sá sálarffæðina í töluvert nýju
ljósi. Sérstaklega fannst mér
þetta lærdómsríkt vegna þess að
ég átti að baki langt klínískt
nám og langa klíníska reynslu
með fólki. Ég held að ég hafi
haft töluvert meira gagn af
þessunr lestri en þeir sem lærðu
þetta í skóla og fengu síðan
reynsluna á eftir. Þetta staðfesti
mig í því viðhorfi að sálarffæðin
er fýrir fólk og á að vera
manneskjunni að gagni.
Sálarfræði er ekki bara einhver
fræðigrein sem segir manni
hvernig sé best að búa til
auglýsingar eða stýra flugvél,
hún á að hjálpa fólki til að lifa
betra og farsælla lífi.
-Og nú ertu kominn heim
aftur. Má ekki segja að það
sannist á þér að “römm er sú
taug er rekka dregur föður-
túna til”?
-Það má segja það. Ég reyni að
vera hérna eins mikið og ég get
hérna á surnrin. Mér fer ekki að
líða almennilega vel fyrr en ég er
kominn í Skagafjörðinn og
sestur hérna við norðurgluggan
með útsýni yflr héraðið. Þá finn
ég að ég er virkilega kominn
heim. Mér leiðist að sitja í
skrifstofu minni fýrir sunnan
þó að þar sé allt fúllt af bókum
og hún sé stærri en þessi aðstaða
hérna í sumarbústaðnum. Mig
vantar útsýnið. Hérna hef ég
allan fjörðinn. Þetta er það
landslag sem ég elska og nýt að
hafa í kringum mig. Það er
dálítil þversögn í því að ég skuli
vera svona hændur að Skaga-
firðinum, því nú leið mér ekkert
vel sem strák á Króknum. Það
var ekki góður tími. Alls ekki.
En ég var reyndar lítið á
Króknum á sumrin, ég var
ffami í Hólminum og Blöndu-
hlíðinni og síðar í vegavinnu á
Vatnsskarðinu og það voru
yndisiegir tímar.
ÁG/SDÞ
Gleðileg jól
Sveitarfélagið Skagafjörður
óskar íbúum Skagafjarðar
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
Skagafjörður
- svæði ísókn!
Ráöhús, Skagfirðingabraut 21 | 550 Sauðarkrókur | n 455 6000
Kíktu á www.skagafjordur.is