Feykir - 06.12.2006, Page 15
45/2006 Feykir 15
Viðimýri 20. september 2000. Kirkjuna gömlu ber mitt á milli fjárhúsa og íbúðarhúss en svörtum skugga kastar gil Viðimýrarárinnar
sem þarna nefnist Hrafnagil. i baksýn er Hellufell og Valadalshnjúkur til hægri en milli þeirra Nónskál. Myndir: Hjalti P:
Saman tekið afHjalta Palssyni______________
Víðimýri í Skagafirði
Víðimýri er höfuðból og höfðingjaseturfrá fornu fari og komst aldrei í eigu kóngs eða
kirkjuvalds, var jafnan á fyrri öldum svokölluð bændaeign. Jörðin er nefnd í sögu Egils
Skallagrímssonar þegar Egill fór þangað til að sitja brúðkaup og hafði með sér skjöld
forkunnar góðan og gullskreyttan sem spillt var í ferðinni og kastað í sýruker.
Um og eftir 1200 var Víðimýri
aðsetur fýrirmanna héraðsins af
Ásbirningaætt. Þar sat Kolbeinn
Tumason, d. 1208, og eftir hann
hefur Amór bróðir hans trúlega
búið þar og síðar Kolbeinn ungi
Arnórsson, d. 1245. Eftir það
búa á Víðimýri Ingigerður
Kolbeinsdóttir frá Reynistað,
systir Hrands Kolbeinssonar
sem tók við ríki af Kolbeini
unga, og maður hennar Arnór
Eiríksson.Síðastiatkvæðamaður
af ætt Ásbirninga sem vitað er
um á Víðimýri var Kálfúr
Brandsson, fæddur 1240. Tví-
tugur kvæntist hann Guðnýju
dóttur Sturlu Þórðarsonar
sagnaritara og mun eftir það
hafa farið að búa á Víðimýri.
Hann var einn þeirra er sóru
skatt Hákoni gamla Noregs-
konungi á Alþingi 1262. Líklega
hefur Kálfur Brandsson búið á
Víðimýri lengi síðan, e.t.\’. allt
fram um 1300, en þó skortir
heimildir um það. Með Kálfi
Brandssyni hverfá eigendur og
ábúendur Víðimýrar sjónum
um langt skeið.
Eignarhald síðari alda
Árið 1540 gefúr Jón Arason
Hólabiskup Birni syni sínum
Víðimýri ásamt Brekku og
kirkjueigninni Kirkjuhóli. Árið
1606 var jörðin í eigu Jón
Jónssonar lögmanns, sem áður
hafið verið á Reynistað, en síðar
sátu þar sýslunennirnir Sigurður
Hrólfsson og Hrólfur sonur
hans og áttu jörðina. Hrólfur
seldi hana Hallgrími Halldórs-
syni í Vík árið 1660 sem þangað
fluttist og bjó síðan á Víðimýri
til dauðadags 1677. Hallgrímur
var lögréttumaður í Skagafirði
ffá 1649 og líldega til dauðadags
1677. Hann var umboðsmaður
konungsyfirMiðfjarðarjörðum,
ættstór og yfirgangssamur. Jón
Espólín segir af honum
eftirfarandi sögu:
„Svo hafði fallið, að Hall-
grímur bóndi á Víðimýri, son
Halldórs lögmanns Ólafssonar,
hafði komið fyrir þingið suður
að Bessastöðum til að svara
ákæru nokkurri, er honum var
borin af konungs landsetum
um ójöfnuð, er hann hefði
sýndan. V ar Hallgrímur sterkur
maður og ósvífinn. Þá var
höfuðsmanninum sagt, að hann
væri hinna göfúgustu manna í
landi hér, lögmannssonur og
mágur meistara Brymjólfs
biskups. Tók hann honum fyrir
því vel og lét \'era við borð sitt,
því þá stóð á máltíð, en yfir
borðum nefúdi höfúðsmaður-
inn ákæru þessa. Hallgrími þótti
sem hann mundi vera heima í
Skagafirði og hugði að hrinda
slíku með harðfengi, svaraði
fyTst djarflega, en er honum
þótti lítt úr skera fyTÍr sér,
gjörðist hann stórorður og
spretti fingrum y'fir borði, og þó
meira afstórmennsku og ógætni
en að hann vildi ei virða
höfuðsmanninn. Þá spratt höf-
uðsmaðurinn upp og lést ei slíkt
þolað hafa hefnilaust herra-
mönnum í Danmörku, en
mikJu síður skyldi hann þola það
bónda íslenskum. Sýndist þeim
þá ráð, er nærri voai og Hallgrími
vildu duga, að skjóta honum
sem fyTst undan og á brott, því
höfúðsmanninum lá það fyrst í
svo þungu rúmi, að hann neytti
eigi svefiis né matar.”
Árið 1710eignaðistBenedikt
Þorsteinsson sýslumaður Víði-
my'TÍ og átti til 1726 að hann
seldi hana Magnúsi Skaftasyni í
skiptum fyMr Þorleifsstaði og
Syðstu-Grund og 30 ríkisdala
miUigjöf. Frá Magnúsi gekk
jörðin til Sæmundar sonar hans
sem var hið mesta afarmenni til
burða, drykkjumaður og
slarkari og dó að lokum snauður
1783. Hann varðaðseljajörðina
1773 Halldóri Vídalín á
Reynistað og var hún lengi síðan
í eigu hans og ættmenna hans.
Einar Stefánsson á Reymistað
seldi Jóni Ámasyni skáldi á
Víðimy'TÍ 1861, sem fluttist þá
þangað, en drulcknaði 1876. Af
erfingjum hans keypti séra
Jakob Benediktsson sem seldi
hana 1896 Þorvaldi Arasyni
fyrir 10.100 krónur. Ekkja
Þon'aldar, Vigdís Steingríms-
dóttir, seldi Gunnari Valdimars-
syni, 1936. Gunnar seldi
Víðimýri sumarið 1942 en
undanskildi þá 3/8 hluta
jarðarinnar sem hann by'ggði
síðan á nýby'lið Víðimel. Á
fimmta og sjötta áratug 20. aldar
var mikil hreyfing í byggingu
nýbúla og árið 1949 keypti
Ny'býlastjórn ríkisins það sem
eftir var af jörðinni og skipti
niður í tjórar smájarðir: Víði-
mýrarsel, Víðidal, Víðiholt og
Víðimýri. Ábúandinn Jóhann
Gunnlaugsson fékk loks Víði-
my'Tarpartinn key'ptan 1984 en
eftir lát hans, 1987, seldu
erfingjar hans jörðina Kristjáni
Jósefssyni smið á Sauðárkróki
árið 1988, sem síðan bjó þar
ásamt konu sinni Önnu Krist-
insdóttur til ársins 2001. Er
Kristján kominn í 5. ættlið ffá
Jóni Árnasyni er bjó á Víðimýri
1861-1876. Sumarið 2001
key'pti íslenska ríldð jörðina
vegna þeirra menningar\'erð-
mæta sem þar eru.
Verðmat og skipti
jarðarinnar
Víðimýri var til forna talin 80
hundruð að dyrleika með öllum
hjáleigum og hefur Brekka þá
að líkindum verið talin með. En
eitt hundrað að fornu tali
samsvaraði einu ky'n'erði. Um
og eftir aldamótin 1700 var
jörðin talin 60 hundruð að
meðtalinni hjáleigunni Álfta-
gerði og Kirkjuhóli og eyði-
býlunum Paronsgerði og
Þrætugerði.
Lítið er orðið eftir af
stórjörðinni Víðimýri. Upphaf-
legu landi hennar hefur nú verið
skipt niður í 9 sjálfstæðar jarðir:
Víðimýri, Víðimýrarsel, Víði-
holt, Víðidal I, Víðidal II,
Kirkjuhól, Álftagerði og Víði-
mel. Ef Brekka er með talin,
sem vafalítið er úr Víði-
mýrarlandi, þá er hún níunda
jörðin og hin stærsta þeirra.
Skoðun á jörðinni 1904
Haustið 1904 fóru Hólasveinar
í kynnis- og námsferð um
Skagafjörð og komu þá m.a. í
Víðimýri. í smáúttekt sem þeir
gerðu á búskapnum segir m.a.:
„Túninu hallar öllu frá vestri til
austurs, mikið afþví er greiðfært
frá náttúrunnar hendi.... Stærð
túnsins er eftir gamalli mælingu
30 dagsláttur. Er það ógirt. Af
því fást 330 hestar af töðu.”
Skoðaðar túnasléttur voru 900
ferfaðmar eða ein dagslátta sem
metin var 75 dagsverk. Síðan
segir áfram: „Sauðfé hér er
eitthvert vænsta og hraustasta
féð sem vér sáum í ferðinni. Það
er stórt, hátt og langt, fremur
holdgott og holdþétt. Ullin er
sterk og frenrur mikil. Flest af
fénu er gulleitt í andliti. Helsti
galli á fénu var, að það hafði
ekki vel rúmt brjósthol að
undanteknum 4 ám, fjögurra
vetra, sem allar höfðu víðan
brjóstkassa og rétt grindarhol.
Þessar ær voru fínhærðar,
holdgóðar og söfnunarlegar,
líklega kynjaðar úr Þingeyjar-
sýslu. Annars er féð einkar
duglegt og hraust beitarfé en
hefur ekki góð mjólkurein-
kenni.” Þetta ár eru á jörðinni 8
fjárhús sem taka samtals 600
fjár, 4 hesthús, 1 fjós yfir 10 kýr,
3 heyhlöður er taka 600 hesta.
Jarðyrkjuverkfæri á bænum
eru: 1 hlekkjaherfi, 2 gaffiar, 6
skóflur, 1 pildcur, 1 kerra, 1
akty'gi. Heyvinnuáhöld: 4 orf, 7
grasljáir, 9hey'hrífur. Smjörgerð-
aráhöld: 1 skilvinda af Perfekt-
gerð, endurbætt, 1 sveitár-
strokkur.
Virki á Víðimýri
I Sturlungu segir frá því er Sturla
Sighvatsson kom í heimsókn til
Kolbeins unga árið 1229 og var
þar hjá honum vortíma. Þá var
á Víðimýri „kastali sá er Snorri
Sturluson lét gera þá er Arnór
Tumason hafði slcipað honum
ríki sitt er hann fór utan. Þeir
Kolbeinn og Sturla höfðu það
að skemmtan að renna skeið að
kastalaveggnum og vita hver
lengst gæti runnið í vegginn. En
er Sturla rann í vegginn gengu í
sundur sinarnar aftan í fætinum
og mátti hann nær ekki stíga í
fótinn.” Sumarið 1896 konr
Daniel Bruun höfúðsmaður að
Víðimýri og gefúr þá eftirfar-
andi lýsingu: „Virkið á Víðimýri
er í túninu urn 70 álnir austur
frá kirkjugarðinum. Það er fer-
hyrnd, lág bunga, 12-15 álnir á
hlið. Það er kallað „Kastali” sem
er einkennandi fyTÍr notkun
þess, en líkist nú mest húsa-
rúst.”
Um virkið á Víðimýri sjást
nú engar minjar og ekkert sem
bendir á staðinn en kunnuga
rekur minni til að austan við
kirkjugarðinn hafi verið veggja-
brot. Land er þarna allt breytt
frá því sem áður var, hefur verið
færður jarðvegur með y'tu
sunnan frá upp í kirkjugarðinn
er hann var breikkaður og á 10.
áratug 20. aldar var hann
iengdur um nokkra metra til
austurs. Þegar grafið var fyrir
stólpum girðingarinnar austan
við garðstælckunina var komið
niður á hleðslur á svosem tíu
metra kafla litlu sunnar en
austur af kirkjunni og af og til
hefúr grjót verið að koma upp
úr túninu austan við garðinn
þar sem „kastalinn” hefur
væntanlega verið, en þetta land
er allt búið að jafha með
jarðýtu.
Víðimýrarkirkja
Ekki er vitað um upphaf
kirkjuhalds á Víðimýri en
trúlega er það allt frá fyrstu
kristni því að jörðin var
höfuðból. Guðmundur góði
var þar staðarprestur hjá