Feykir - 06.12.2006, Qupperneq 23
45/2006 Feykir 23
Guðmundur Valtýsson skrifar_
Vísnaþáttur 442
Heilir og sælir lesendur góðir.
I vísu Gísla í Mikley sem birtist í
síðasta þætti komst V óvart inn
í eitt orð í síðustu hendingunni.
Réttur er síðari hluti vísunnar svo.
/ innanhéraðs eftir leit
ástina sínafundu.
Eins var með vísu Jóns Ingvars þar
breyttist þó í þá og má það helst
ekki vera svo. Býst við að flestir
lesendur hafi áttað sig á því. Þá
spurði ég í síðasta þætti um höfund
vísunar.
Alltafhjá mér ástin vex.
Hef nú fengið þær upplýsingar
ffá tr)'ggum lesanda þáttarins
að urnrædd vísa muni vera eftir
Sveinbjörn Hannesson, sem mun
hafa á sínum yngri árum átt heima
á Blönduósi. Væri mér þökk í því
ef einhver af lesendum sem kynnu
vísur eftir hann vildu gefa mér
upplýsingar þar urn. Ef rétt er með
farið mun hin snjalla skáldkona úr
Skagafirðinum Ólína Jónasdóttir
hafa ort þessa.
Okkar skeið að ósi flýtur
orðin veiðin heldur treg.
Æskan heiðan himin lítur
henni leiðist þú og ég.
Snilldar góð vísa hjá Ólínu og væri
gaman að fá fleiri til birtingar eftir
hana.
Björn Guðmundsson sem kenndur
var við Bæ á Selströnd ntun hafa
ort þessa.
Saman tvinna lífs á leið
leyndufmna ráðin.
Eðlið vinnur ívaftð
ástin spinnur þráðinn.
Óðum styttist í þann tíma að
sauðfjárbændur þurfi að nýta
hrúta sína til góðra verka. Ekki veit
ég fyrir víst hver lýsti skaða sínum
svo.
Missti ég lambhrút laglegan
lamar reiðarslagið.
Ég lœt allan andskotann
inn í Kaupfélagið.
Einhverju sinni er Rögnvaldur
Rögnvaldsson hugleiddi endalok
þessarar vegferðar var þessi vísa
til.
Flœðir að mérfeigðin köld
feiknleg er sú borgun.
Allir dagar eiga kvöld
og allar nætur morgun.
Einhverju sinni er Lúðvík Kemp
var að glettast við okkar ágæta
sálusorgara, séra Pétur Ingjaldsson
mun þessi vísa hafa komist á
kreik.
Margt er ifréttum mikið ort
rnessar séra Pétur.
Engan hefur ennþá skort
áfengi í vetur.
Eftir að lífsins gæði höfðu um
stundarsakir snúist skáldinu í
óhag, varð útgáfa vísunnar á þessa
leið.
Ljótar fréttir, lítið ort
lifi ég eins og Pétur.
Enda hefur alltaf skort
áfengi í vetur.
Um miðja síðustu öld stóð
Rósberg G.Snædal fyrir útgáfu
á fjórum kverunt nteð ýmsum
norðlenskunt skrýtlum, vísum
og grínljóðum. Meðal annars er
þar að finna þessa ágætu vísu sem
Húnvetningur yrkir til nágranna
síns í Skagafirðinum.
Þú munt hljóta harðan dóm
heimskur jafnana þykja.
Er á þínum skáldaskóm
Skagafiarðar - mykja.
Heldur fór í verra fýrir okkur
Húnvetninga er Skagfirðingur
svaraði svo dólgslega.
Eflaust muttdi ásjóna
ykkarfegri þykja.
ef heimskusvipinn húnverska
hyldi kúamykja.
Það ntun hafa verið í góðum
gleðskap sem Bragi Björnsson
frá Surtsstöðum orti svo til
samferðamanns.
Stelpugálustraumur hjá
stiklar hœlumfínum.
Stillinálin stígur á
stöðumœli þínum.
Einhverju sinni er Kristján
Stefánsson frá Gilhaga hafði með-
tekið helstu tíðindi úr fréttablaðinu
þann daginn orti hann svo.
Reglugerðir gerast tamar
gildi taka skal ein slík
eftirþað má enginn framar
úti míga í Reykjavík.
Önnur vísa varð til af þessu tilefni
og mun hinn hressi læknir á
Akureyri, Hjálmar Freysteinsson,
hafa ort hana.
Okkarframtíð betri bíður
bjartsýnin er engti lík.
Nú verðuráðuren langt um líður
lyktin skárri í Reykjavík.
Þrátt fyrir að enn séu nokkrar
vikur hjá flestum sauðfjárbændum
í það sem kallað er fengitími, er
gott að enda nteð þessari ágætu
vísu Kristjáns í Gilhaga.
Nú þó kyngi niður snjó
nöpur éljagríman.
Alltaf færist yfir ró
eftirfengitímann.
Verið þið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
Jólamaturinn á þínu
heimili er?
Hefðbundin hamborg-
arhryggur með því sem
tilheyrir. Heimagerður ís
í eftirrétt þykir tilheyra.
Hvaðgerið þið til þess að
komast íjólaskap?
Það þarf ekki mikið til að
komaokkurígottjólaskap
því við höfum alltaf mjög
gaman af undirbúningi
jólanna og jólunum
sjálfum. Jólaskreytingar
af ýmsu tagi eru hluti
af stemningunni og
auðvitað jólatónlist,
sérstaklega ef það finnst
eitthvað sem ekki er búið
að bylja á okkur í gegnum
fjölmiðlana í nærri tvo
mánuði. Jólunum og
undirbúningiþeirrafylgja
ýmsir siðir og venjur sem
auðvitað eru hluti af
jólastemningunni. Það er
t.d orðinn ófrávíkjanleg
hefð í jólaundirbúningi
að mæta á skötuveislu á
Þorláksmessu.
Hver eru þín/ykkar eftir-
V
N
minnilegustu jól?
Við hjónin giftum okkur
á jólum og þar með
urðu þau jól auðvitað
mjög sérstök. Við vorum
síðan ein jól í Danmörku
hjá syni okkar og hans
fjölskyldu. Það voru
einnig eftirminnileg jól
þar sem við kynntumst
aðeins öðrum jólavenjum
þótt margt væri auðvitað
líkt.
Jólamaturinn á þínu
heimili er?
Fjölskyldan hefur verið
sveigjanleg með það og er
það ákveðið í sameiningu
fyrir jól. Rjúpur og
hreindýr lenda þó oftast
á jólaborðinu.
Hvað gerið þið til þess að
komast tjólaskap?
Samveran á aðventunni
skiptir mestu. Skreyta,
skella í form og skrifa
jólakort kemur okkur í
gírinn.
Hvaða jól eru þér
eftirminnilegust?
Síðustu jól eru ofarlega í
minningunni sökum þess
að þau voru afar óvenjuleg.
Þá fór fjölskyldan til
Barcelona og Andorra. A
gamlársdag var stefnan
tekin á London en á
flugvellinum snemma
morguns uppgötvaðist
að vegabréfin höfðu
gleymst á hótelinu. Við
misstum því af fluginu
til London og ekkert
sæti var laust þangað
þennan dag. Unglingarnir
lögðust til svefns á skitugri
flugstöðinni, nokkrar
V
klukkustundir voru
í áramótin og hvergi
hótelherbergi að fá í
Barcelona. Allt stefndi í
það að fjögurra manna
fjölskylda myndi eyða
gamlárskveldi innan um
útigangsmenn í Barcelona,
en að lokum tókst okkur
að fá síðustu sæti í flug til
borgar sem er í um tveggja
klukkustunda fjarlægð
frá London. Þaðan var
síðan tekin lest og mætt
á Trafalquar Square á
réttum tíma. Við hlæjum
að þessu í dag en þetta leit
illa út á tímabili!
______________________J
flestar notalegar stundir
saman í aðdraganda
jólanna og um hátíð-
irnar.
Jólamaturinn á þínu
hehntti er?
Það vill nú svo til að vegna
ólíkra hefða frá okkar
æskuheimilum og úr
okkar fyrri samböndum,
þá höfúm við tvíréttað
á aðfangadagskvöld,
bæði rjúpur og ham-
borgarhrygg, en á jóla-
dag er alltaf á borðum
hið klassíska íslenska
hangikjöt.
Hvaðgeriðþið tilþess að
komast íjólaskap?
Reynum að eiga sem
Hver eru þín/ykkar eftir-
minnilegustu jól?
Eftirminnilegustu jólin
frá því við hófum okkar
sambúð eru tvímælalaust
jólin 2004 á Patreksfirði
þegar við, ásamt
börnum okkar beggja
úr fyrri samböndum,
héldum okkar fyrstu
jól saman. Við vorum
sjö í heimili þessi jól og
V.
N
áttum yndislegan tíma
saman eftir að hafa
þó öll í aðdraganda
jólanna borið ofurlítinn
kvíðboga í brjósti. Nú
er aftur komið að “stóru
jólunum” hjá okkur og
að þessu sinni hlakka
allir mikið til og geta sum
okkar vart beðið eftir að
hátíðin gangi í garð, við
nefnum þó engin nöfn í
því sambandi!
J
Aðalbláber og rjómi
Á aðfangadagskvöld er
gjarnan verið með nýjan
svínahrygg steiktan
með pöru gljáðan í
hunangsblönduðu sinn-
epi. Oft er þó verið
með þykkan, góðan
lambahrygg.
1 effirrétt er gott að
hafa íslensk aðalbláber
með þeyttum rjóma og
rjomais.
Áður en farið er að
sofa er smakkað á jóla-
smákökunum og drukkið
heitt súkkulaði.
Á jóladag er hefðbundið
hangikjöt með grænum
baunum, heitum kart-
öflum í hvítri sósu og
rófustöppu, laufabrauði
og drukkið jólabland
með sem aðallega er
maltöl.
Hangikjötið þarf að
sjálfsögðu að vera heima-
reykt.
Minnisstœð jólin á
Hólum
Á Hólum tókum við upp
þann sið að gefa fólki kost
á að sækja sér eigið jólatré
í Skógræktina. Nokkrar
fjölskyldur.kunningjafólk
okkar af Sauðárkróki
og víðar úr Skagafirði
komu og sóttu sér tré
skömmu fyrir jólin, oft á
Þorláksmessu. Þá bðum
við þeim í kaffi, súkkulaði
og smákökur. Það var
setið þröngt, hlegið og
spjallað. Þessar stundir
eru okkur ógleymanlegar
f minningunni. Á annan
dag jóla buðum við svo
heimafólki á Hólum í
afmæliskaffi bóndans.
Hátíðarskapið kemur
þegar fjölskyldan er að
safnast saman og kallað
er: “ hvar er greiðan”?
getur einhver hnýtt
bindishnútinn?
Hóladómkirkja hringdi
inn jólin
Þegar hringt var ldukk-
um Hóladómkirkju til
helgistundar á aðfanga-
dagskvöld og fjölskyldan
sest í bekkinn sinn í
kirkjunni var friður og
helgi jólanna algjör.
Við hjónin óskum
öllum lesendum Feykis
gleðilegrar jólahátíðar.