Feykir - 21.02.2007, Side 4
4 Feykir 08/2007
Bjarni Egilsson skrifar
Skólamál í austan-
verðum Skagafirði
Á heimasíðu
sveitarfélagsins
13. 2. s.l. birtist
frétt um samþykkt
fræðslunefndar á
lausn skólamála út
að austan. Vísað er til
mikillar greinargerðar sem
fylgir samþykktinni. Þar
hælir meirihlutinn sér af
samráðshæfileikum sínum
og góðum vinnubrögðum.
Afþessu tilefni er rétt að fara
yfir það hvernig meirihlutinn
hefur gengið fram í þessu máli.
Það er ein sorgar saga.
Aó spara 30 milljónir
Á vinnufundi sveitarstjórnar
27. nóv. s.l. leggurmeirihlutinn
fram sem trúnaðarmál
róttækar hugmyndir að
breyttu skipulagi skólamála
út að austan. Þar skyldi spara
allt að 32 milljónir króna á
ári. Á sveitarstjórnarfundi
hinn 30. nóv. s.l. leggur
meirihlutinn fram tillögu að
tjárhagsáætlun fyrir árið 2007
til fyrri umræðu. Á þessum
tímapunkti eru allar tillögur
sem snerta tjárhagsáætlunina
orðnar opinberar tillögur
meirihlutans. Þar eru fjár-
framlög til skólamála út að
austan ntiðuð við áður nefndar
hugmyndir og fólu þær m.a. í
sér, að kennsla 1.-4. bekkjar
færi fram í Sólgörðum og á
Hólum, en kennsla 5-10
bekkjar á Hofsósi. Hvernig
spara átti 32 milljónir með
þessum æfingum hefur aldrei
verið upplýst.
Samráðið
Á þessum sveitarstjórnarfúndi
hóf fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
Sigríður Björnsdóttir, rnáls á
málefnum skólana út að austan.
Hún hatði uppi efasemdir um
þetta fyrirkomulag gagnvart
börnum og foreldrum, auk
áhritá þess á svæðið sem bú-
setukost fyrir barnafjölskyldur.
Viðbrögð forsvarsmanna
meirihlutans við því voru
vægast sagt undarleg og ekki
í anda samráðs við einn eða
neinn. Formaðurbyggðaráðsog
forseti sveitarstjórnar brugðust
hart við og sökuðu Sigríði um
trúnaðarbrot. Að voga sér
að ræða opinberlega hvað lá
að baki opinberum tölum í
tillögu að fjárhagsáætlun. Við
fúlltrúar Sjálfstæðisflokksins
ásamt fúlltrúa Vinstri grænna
mótmæltum því harðlega að
hér væri verið að bregðast
trúnaði. Enda sjá það allir að
fjárhagsáætlun er opinbert plagg
og allar tölur tala sínu máli.
Skilaboð meirihlutans voru
einfaldlega að opinber umræða
og samráð um breytingar í
skólamálum út að austan áttu
ekki að vera leyfilegar af þeirra
hálfu. Hér átti allt að fara í gegn
með leynd og fólk svo að standa
frammi fyrir orðnum hlut.
Neydd í samráð
Á milli umræðna um
fjárhagsáætlun boðuðu tals-
menn meirihlutans skyndi-
lega til fúnda með foreldrum
og kennurum á svæðinu út að
austan. Formaður byggðaráðs
og oddviti framsóknarmanna
hefúr gefið þær skýringar að
meirihlutinnhafiveriðtilneyddur
að boða til þessara fúnda vegna
þess að sveitarstjórnarfúlltrúar
minni-hlutans hafi lekið
upplýsingum urn fýrirhugaðar
breytingar til íbúa á svæðinu.
Meirihlutinn afsakaði sig fýrir
að hafa þurft gripa til þessara
fundahalda vegna trúnaðarbrota
minnihlutans. Þetta er hið
rómaða sarnráð hins “mjúka
meirihluta.” - Nei slíkt var og
er ekki á dagskrá á þeim bæ!
Á þessum fundum kom fram
harðvítug andstaða með áform
meirihlutans.
Samráðið breytti engu
Þann 14. des. er tillaga að
fjárhagsáætlun fýrir árið 2007
lögð fýrir sveitarstjórn og
samþykkt með atkvæðum
meirihlutans. Þar er enn
gert ráð fýrir upphaflegum
tillögum meirihlutans varðandi
fjárframlög til skólamála út
að austan. Engu breytt frá
upphaflegum tillögum og
málið stefndi í ógöngur.
Tillaga að lausn
Þann 11. janúar lögðu
sjálfstæðismenn fram tillögu
í sveitarstjórn sem fól í sér
ásættanlega millileið til lausnar
á skólamálum út að austan til
þriggja ára. Þar sem lagt er til
að ákveðin grunnþjónusta
verði á hverjum stað fýrir börn
upp í 6. bekk. Eldri börnum
kennt á Hofsósi og kannað
hvort faglegur og fjárhagslegur
ávinningur fælist í því að
setja alla skólana undir einn
skólastjóra ásarnt því að gera
kröfu til stjórnenda að hagræða
í sinni stofnum. Stefnumótun
til framtíðar varðandi kennslu
eldri barna yrði að ráðast
af íbúaþróun á svæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa
tillögunni til fræðslunefndar.
Skautað framhjá
tillögu sjáifstæðis-
manna
Áður en tillaga sjálfstæðis-
manna var tekin fýrir í
ffæðslunefnd boðuðu fulltrúar
meirihlutans til fundar á
Hofsósi og boðuðu nýjar
tilskipanir af þeirra hálfu.
Sama var einnig kynnt á fundi
sem foreldrar á Hólum og
nágrenni boðuðu til. Þar voru
gerðar rniklar athugasemdir
við allan málatilbúnað
meirihlutans.
Á fundi fræðslunefndar
31.janúar lögðu fulltrúar
meirihlutans fram tillögu um
nýtt fýrirkomulag grunnskóla
í austanverðum Skagafirði,
sem þeir samþykktu. Fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í nefndini
sat hjá við afgreiðsluna.
Tillaga sjálfstæðismanna,
sem með formlegum hætti
er vísað frá sveitarstjórn til
fræðslunefndar, var aldrei
tekin fyrir. -
Enn í lausu lofti
Svona eru vinnubrögðin í
hnotskurn. Þessi nýja sam-
þykkt meirihlutans er í stórum
dráttum sveigð að tillögu
Sjálfstæðismanna, - nema, að
skilið er eftir gat sem felur það
í sér að skólastjórinn, sem nú
verður einn út að austan, hefur
vald til að breyta skipulagi
kennslu á hverjum stað eftir
því sem hentast þykir. Ekkert
fast skipulag er nú fyrir hendi
varðandi skólahald á svæðinu.
Foreldrar eru skyldir eftir
algerlega í lausu lofti eftir allt
þetta baks og sýndarfundi.
Ennvantarframtíðarstefnu-
niótun um fýrirkomulag á
grunnþjónustu í fræðslumál-
um á svæðinu sem treystir
einstaka hluta þess og jafnfr amt
svæðið í heild sent búsetukost
fýrir ungt fólk.
Vinnubrögð
meirihlutans
Sjálfstæðismenn eru sammála
því að hagræðingar er þörf í
skólamálum í Skagafirði, en
tilburðir meirihlutans varðandi
hagræðingu í skólamálum
á svæðinu út að austan hafa
verið með miklum endemum
og ekki séð fýrir endann
ennþá. Samkvæmt nýjustu
fréttum, þar sem lýræðislegu
samráðsflokkarnir Samfylking
og Framsókn leiddu ráðningu
í nýja skólastjórastöðu til
lykta á klíkufundi í bakher-
bergi. I stað þess að auglýsa
stöðuna opinberlega og
meta síðan umsækjendur
á jafnréttisgrundvelli út frá
faglegum forsendunt. Þessir
stjórnunarfimleikar meirihlut-
ans eru skólabókardæmi um
það hvernig stjórnmálamenn
eiga ekki að vinna. Það er vilji
þeir láta taka sig alvarlega og ná
árangri.
í þessu rnáli og mörgum
öðrum hefur sveitarstjórn-
arfulltrúum meirihlutans verið
tíðrætt um samráð. Þeirra sýn
á samráð virðist vera að taka
ákvarðanir fýrir luktum dyrum
og halda síðan fýrirlestra yfir
fólki eftirá um hvaða skoðanir
það á að hafa. Eftir það á svo að
segja, allir saman, allir með.
Á ábyrgð
meirihlutans
Við sveitarstjórnarfúlltrúar
Sjálfstæðisflokksins lýsum því
yfir að aðgerðir í skólamálum út
að austan eru algerlega á ábyrgð
meirihluta Framsóknarflokks
og Samfýlkingar í sveitarstjórn
Skagafjarðar.
Bjarni Egilsson
Franch Micheisen skrifar
150 ár frá fæðingu
Roberts Baden-Powell
Á morgun er 22.
febrúar, en þann
mánaðardag árið 1857
fæddist í Englandi
Robert Baden-Powell,
upphafsmaður og
stofnandi skátahreyf-
ingarinnar. Já, 150 ár eru
liðin frá fæðingu Baden-
Powell, sem er án efa
mesti æskulýðsleiðtogi
heims, fyrr og síðar. Kona
hans Olava átti einnig
afmæli 22. febrúar, en all
nokkur aldursmunur var á
þeim hjónum.
Robert Baden-Powell
varð tvisvar heimsfrægur.
Fyrst sent hershöfðingi og
sigurvegari í Búastríðinu,
og var þá hylltur urn allan
heim. Svo varð hann aftur
heimsfrægur er hann stofnaði
skátahreyfinguna 1907, eftir
að bók hans Scouting for boys
kom út.
í ár eru 100 ár síðan
skátahreyfingin hóf göngu sína
urn heiminn.Til Islands barst
hún 1912 og til Sauðárkróks
1929. Á Islandi eru nú rúmlega
þrjú þúsund starfandi/virkir
skátar en 38 milljónir í
heiminum öllum.
I janúar 1912 fór Baden-
Powell í sína fýrstu heimsreisu,
til að kanna útbreiðslu
skátahreyfingarinnar unr
heiminn. Allstaðar fékk hann
fagnandi móttökur. I þessu
ferðalagi gerðist óvæntur
atburður, er átti eftir að breyta
lífi hans verulega. Hann fór
yfir Atlantshafið með skipinu
„Arcadian". Þar hitti hann í
fýrsta sinn Miss Olave St. Clair
Soames. Áður en ferðin var á
enda hafði hann beðið hennar
og hún tekið bónorði hans.
Þau urðu þó ásátt um að gefa
ekki út opinbera tilkynningu
þar um, fýrr en hann hafði
lokið heimsreisu sinni. Þau
giftu sig 30. október 1912.
Drengjaskátarnir stofúuðu
til penny-söfnunar og gáfú
þeim bíl í brúðkaupsgjöf.
Þau hjón eignuðust þjú
börn; Peter 1913, Heather
1915 og Betty 1917.
Baden-Powell hét fullu
nafni Robert Stephenson
Smyth Baden-Powell. Hann
var útnefndur Chief- Scout
of the World 6. apríl 1920.
Þeirr nafnbót hélt hann til
dánardags 8. janúar 1941.
Baden-Powell var
heiðraður á margan hátt.
Hann aðlaður árið 1929 af
Georg VI konungai Bretlands
sem Lord Baden-Powell
of Gilwell, var gerður að
heiðurborgar London árið
1929 og um ævina fékk Baden-
Powell yfir 28 heiðursmerki
auk heiðursnafnbótar ffá sex
háskólum. Baden-Powell
var jafúframt rithöfundur og
skrifaði 32 bækur tengdar
skáturn og skátastarfi.
Margir af leiðandi mönn-
um Bretlands og margra
annara landa hafa stutt
skátahreyfinguna í orðum
og gjörðum. Meðal þeirra er
Lord Kitchener lávarður, sem
eitt sinn, er hann hélt ræðu í
Leicestershire, sagði setningu
sem off hefir verið vitnað
til: „Það er eitt sem ég vil
sérstaklega innprenta ykkur.“
„Eitt sinn skáti ávallt skáti.“ Já
þetta er setning sem hefir lifað
og mun lifa.
Skátafélagið Eilífsbúar á
Sauðárkróki mun taka þátt í
hinum stórkostlegu hátíðar-
höldum er frarn fara um alla
heimsbyggðina í tilefni þessara
afmæla.
Með skátakveðju,
Franch Michelsen
Heiðursfélagi Skátafélagsins
Eilífsbúa