Feykir - 04.10.2007, Síða 1
Óskar Pétursson, villingur,
söngvari, Skagfirðingur og Ijúflingur
meó meiru, átti stefnumót
við Feyki einn rigningarlegan
sunnudagsmorgun. Astæða
stefnumóts okkar var tilraun
blaðamanns til þess að fá Óskar
til þess að rifja upp gamla tíma
og deila með lesendum Feykis
uppáhalds stöðum sínum á
æskuslóðunum.
„Útsýnið hér úr
eldhusglugganum er
stórfenglegt og hér stóó
maður gjarnan og flatti nefið
á rúðuna og fylgdist með því
sem geróist í veröldinni“
Sjá viðtal á bls. 6-7
Fjölbreytt störf í boði
Segja sig úr Héraðsnefnd A-Hún.
Næga vinnu er að fá á
Norðurlandi vestra
Um þessar mundir eru auglýst 16 laus störf á vef
Vinnumálastofnunar á Noröurlandi vestra. Óhætt er að segja að
störfin séu af margvíslegum toga þar sem meðal annars er auglýst
eftir trésmiðum, kennurum, leikskólakennurum, skrifstofufólki,
skipulagsfulltrúa og slökkviliðsstjóra svo eitthvað sé nefnt. Þetta
kemur fram í lauslegri úttekt starfsmanna SSNV um atvinnuhorfur
á svæðinu.
Einnig vekur athygli að á meðan
sjávarútvegsfyrirtæki annars staðar
á landinu segja upp fólki auglýsir
Fisk Seafood eftir starfsmönnum.
Þá eru ótalin störf sem enn hafa ekki
hafa verið auglýst en samkvæmt
forsvarsmönnum Kaupfélags
Skagfirðinga, Skýrr og KPMG
vantar einnig fólk til starfa hjá þeim
fyrirtækjum. I samantekt ffá SSNTV
kernur fram að Norðurland vestra
sé um margt spennandi valkostur til
búsetu, einkum fyrir fjölskyldufólk.
Hér séu góðir leik- og grunnskólar
auk þess sem á svæðinu sé bæði
framhaldsskóli og háskóli.
Svæði án umferðarljósa
í samantekt starfsmanna SSNV
segir jafhframt að fyrir þá sem
dvelji drjúgan hluta úr degi í bið
við umferðarljós hljóti Norðurland
vestra að vera aðlaðandi kostur,
þar sem engin umferðarljós séu í
landshlutanum. Samgöngur séu
almennt greiðar og lítið fyrirtæki
að bregða undir sig betri fætinum
og heimsækja Eyfirðinga eða
höfúðborgarbúa. Lögreglan sér þó
um að bensínfóturinn verði ekki of
þungur þegar ferðagleðin gerir vart
við sig - svona rétt til að menn fari
sér ekki að voða. Þá sé fasteignaverð
á Norðurlandi vestra í hagstæðari
kantinum en meðalverð á fermetra
í einbýli er um 100 þúsund krónur.
Rétt sé þó að benda á að verð getur
verið misjafht milli einstakara
byggðarkjama á svæðinu.
Vilja allsherjar
sameiningu
Bæjarstjórn Blönduóss hefur tekið ákvörðun
um að segja upp samningum um Héraðsnefnd
A-Hún. og óska eftir því að uppgjör fari
fram í samræmi við gildandi samþykktir og
sveitarstjornarlog.
-Það er greinilega
víðtækur vilji til meira
samstarfs innan sveitar-
stjórnanna. Okkur finnst
það á skjön við nútíma
stjórnsýsluhætti að auka
alltaf vægi héraðsnefndar
í stað þess að stíga skrefið
til fulls og sameinast.
Þessi gjörningur er okkar
leið til þess að höggva á
hnútinn og stíga firam til
sóknar. í því umhverfi
sem við búum við í dag
er nauðsynlegt að grípa
til róttækra aðgerða,
segir Héðinn Sigurðsson,
formaður bæjarráðs
Blönduósbæjar og
héraðsnefndarmaður í
Austur-Húnavatnssýslu.
Þá gerði bæjarstjórn það
að tillögu sinni að sett
yrði á laggirnar samstarfs-
nefnd um sameiningu
sveitarfélaganna í Austur-
Húnavatnssýslu.
I nefndinni eigi sæti
tveir fulltrúar frá hverju
sveitarfélagi og ráðinn
verði verkefhisstjóri í
hlutastarf. Kosið yrði
um sameiningartillögu í
íbúakosningu í maí 2009.
—ICTenflitt ehj3—
[Delllnspiron 1501 ]
SérstakttilboðsverðTenqils > kr. 69.900
Versladu við fagmenn!
Tcngillehf Tötvudeild Borgarf1öt27 Sauðárkróki Sími 455 7900
VIÐ B0NUM 0G RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
©SnMS’ <ÉB$,
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar
ogsprautun ----- .