Feykir - 04.10.2007, Page 2
2 Feykir 37/2007
Koltrefjaverksmiðja á Sauðárkróki?
Undirbúningur
kominn á fullt
Eftir að stjom SSNV samþykkti á fundi sínum á dögunum
að hugsanleg koltrefjaverksmiðja á Norðurlandi vestra
myndi rísa í Skagafirði hefur Atvinnumálanefnd Sveitar-
félagsins Skagafjarðar tekið
Þetta kom fram á fundi
atvinnumálanefndar á þriðju-
dag. Á sama fund mætti Jón
ÖrnBerndsen.skipulagsfulltrúi,
og ræddi um iðnaðarlóðir í
Skagafirði. Eins og áður hefúr
málið upp á sína arma.
komið fram í Feyki eru menn
bjartsýnir á þetta verkefni og
eru fulltrúar ffá Fjárfest-
ingarstofu að vinna í því að
finna tjárfesta til þess að koma
að verkefninu.
Leiðari
Vöndum kveðjurnar
Enginn veitfyrr en allt í einu. Þetta, “ekki orðatiltæki,”
hefur oftar en ekki komið upp í huga mér síðustu ár. Alltof
margir í kringum mig, ungtfólk í blóma lífsins hefur annað
hvort lent í slysi sem hefur breytt lífiþeirra tilframbúðar
eða bundið á það endi. Enn var ég rækilega á þetta minnt í
síðustu viku þegar gamall skólabróðir og vinur varðfyrir
slysi og liggur hann í raun enn þungt haldinn í lífshættu
á spítala. Sem beturfer höfum við síðustu vikur skipst á
hlýjum kveðjum á bloggsíðum okkar. Þessi vinur minn þáði
yfir 40 lítra afblóði og mér skilst að um 160 einstaklingar
hafi því lagt hönd á plóg við að bjarga lífi hans.
Alltþetta hefurfengið mig tilþess að hugsa um hvernig
við högum kveðjum okkar við fólk. Gefum við okkur
kannski ekki tíma tilþess að heilsa eða kveðja á viðeigandi
og almennilegan máta þeim sem eru okkur kærir?Er
hraði nútímans svo mikill að við frestum því að segja
viðkomandi að hann eða hún sé okkur kærþangað til að
það er kannski of seint? Eða mættum við íhuga að hrósa
Iwort öðru oftar, klappa vinalega á öxl eða taka í hendi og
segja sæll vinur minn. Þá sem við þekkjum betur kveðjum
við meðfaðmlagi og kossi. Þökkum fyrir góða stund og
höldum áfram. Sátt. Bros og nokkur vinaleg orð tefja ekki
svo mikið þó að á hraðferð séum. Hins vegar geta þessi
andartök verið andartökin sem við munum og ylja okkur
komi eitthvað upp á. Því er boðskapur vikunnar; vöndum
kveðjurnar og skiljum í sátt. Alltaf.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Utgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Úlafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri S
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Btaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónurmeð vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Stafgöngudagur ÍSÍ
Holl og góð hreyfing
Stafgöngudagur ÍSÍ var haldinn sl. laugardag og þrátt fyrir
mikið annríki vegna Laufskálaréttar mættu nokkrar
vaskar konur og tóku þátt í göngunni.
Var þetta í fyrsta skipti sem
Skagaíjörður var með þátttöku
í Stafgöngudegi ÍSÍ. Gengið
var frá sundlauginni í
Varmahlíð, uppá íþróttavöllinn
ofan við Varmahlíðarskóla og
endað á göngustíg senr liggur
inn í skóginn og upp á
Reykjarhól. Töluverður áhugi
virðist vera fyrir stafgöngu í
Skagafirði og margir þiggja
smá leiðsögn við að bæta
tæknina og flestir fá sér svo
viðeigandi stati í framhaldinu.
Karl Lúðvíksson,
íþróttakennari, hefur boðið
einstaklingum og hópum upp
á leiðsögn að því tilskildu að
staður og stund henti báðum
aðilum.
Blönduósbær
Jóna Fanney sagði upp
Ollum að óvörum sagði Jóna
Fanney Friðriksdóttir,
bæjarstjóri á Blönduósi
síðustu sex árin, starfi sínu
lausu á aukafundi
bæjarstjórnar sem haldinn
var sl. mánudag.
Jóna Fanney, sem einnig er
bæjarfúlltrúi E-lista mun áfram
sitja í bæjarstjórn en einungis
sem bæjarfulltrúi.
Jóna vildi ekld gefa upp hvað
hún ætlar að gera en hefur
samþykkt að koma í viðtal við
Feyki að viku liðinni.
3149 dilkar á dag
Nytt met var slegið i Kjotafurðastoð KS þann 21. september
sl. en þann dag fóru 3149 dilkar í gegnum húsið. í sömu viku
var annað met slegið en þá var 14.880 dilkum slátrað.
Þann 2. október var búið að
slátra yfir 54 þúsund dilkum og
hefúr vinnslan þetta haustið
gengið vel að sögn Péturs
Friðjónssonar, markaðsstjóra
Landbúnaðarsviðs. Ekki hefur
verið slátrað á laugardögum í
sláturtíðinni en segir Pétur það
vera öflugu starfsfólki hússins
að þakka hversu vel hefur
gengið þetta haustið. Eins og
verið hefúr eru það bændur alls
staðar af á landinu sem nýta sér
þjónustu Kjötafurðarstöðvar-
innar og greiðir afurðastöðin
hæsta verð til þeirra þetta haust
eins og svo oit áður.
Blönduósbær
Einar
fastráðinn
Bæjarstjórn
Blönduósbæjar
samþykkti með fjórum
atkvæðum gegn þremur
að ráða Einar
Kolbeinsson í fullt starf
hjá bænum.
Einar hefúr starfað hjá
Blönduósbæ allt árið og er í
raun bara verið að ganga ffá
fastráðningu hans í þau störf
sem hann hefúr þegar gengið
í. Minnihluti bæjarstjórnar
taldi ekki eðlilegt að ganga frá
ráðningu Einars án þess að
starfið væri auglýst en
meirihlutinn taldi að ekki
væri skýlaus krafa í
starfsmannastefnu bæjarins
að auglýsa öll laus störf innan
sveitarfélagsins.
Útigangskindur
skila sér / hús
Betraer
seinten
aldrei
Við smölun í Ólafsfirði
um síðustu helgi komu
fram tvær veturgamlar
gimbrar sem gengið
höfðu úti síðasta vetur.
Voru gimbrarnar frá
Brúnastöðum í Fljótum.
Gimbrarnar heimtust í
fyrra haust og áttu að lita en
þegar lömh voru tekin á hús
þá voru þær horfnar og
fundust ekki þrátt fjTÍr
talsverða leit. Það er nokkuð
ljóst að þær hafa haldið sig
einhversstaðar í fjallgarðinum
milli Ólafsfjarðar og Fljóta
síðasta vetur og dulist þrátt
fyrir að alltaf sé talsverð
umferð af snjósleðafolki á
þessu svæði yfir veturinn.
Kindurnar \’oru rígvænar en
báru þess þó merki að eitthvað
hefði hert að þeim síðasta
vetur því þær höfðu gengið úr
allri ull í vor. ÖÞ: