Feykir - 04.10.2007, Page 5
37/2007 Feykir 5
Skála ogsyngja Skagfirðingar
Álftagerðisbræður
komnir í stúdíó
Undanfarna daga hafa
hinir einu og sönnu
Álftagerðisbræóur dvalió í
Reykjavík við upptökur á
nýjum hljómdiski.
Tilefnið er tuttugu ára
afmæli kvartettsins, en þeir
bræður sungu fyrst formlega
saman við útför föður sín,
Péturs Sigfússonar, sem var
jarðsunginn frá Víðimýrar-
kirkju laugardaginn 3. október
1987. Síðan hafa þeir bræður
vart þagnað, nerna rétt til að
blunda yfir blánóttina!!
Á nýja diskinum verða 14
lög, sem flestir kannast við, en
þaueruínýjumraddsetningum,
sent Stefán Gíslason, söngstjóri,
hefur gert. Stefán hefur
stjórnað kvartettinum frá
upphafi og sér um undirleik á
flestum skemmtunum þeirra
bræðra. Gunnar Þórðarson sér
urn útsetningarfyrirhljómsveit,
en meðal hljóðfæraleikara
verða Gunnlaugur Briem,
Jóhann Ásmundsson og Stefán
Gíslason, auk Gunnars. Fyrsta
lagið á diskinum heitir “Skála
og syngja Skagfirðingar”, en
síðan rekur hvert lagið annað.
Diskurinn kemur út unt
miðjan nóvember ásamt
ntynddiski, sem Gísli Sigur-
geirsson, kvikmyndagerðar-
rnaður, er að vinna um þá
bræður frá Álitagerði. Þar
kennir ýmissa grasa frá ferli
Álftagerðisbræðra, sem heldur
en ekki verður fróðlegt að sjá.
Það er sem sé von á
veglegum diskapakka frá
Álftagerði fyrir jólin;
hljómdiskur og mynddiskur í
kaupbæti,hvorirt\'eggja ísama
pakkanum.
Álftagerðisbræur við upptökur.
Lögin hans Jóns endurútgefm
Tónlist til styrktar
góðu málefni
Hljómdiskurinn Lögin hans
Jóns, úrval laga eftir Jón
Björnsson, tónskáld og
kórstjóra frá
Hafsteinsstöðum, hefur
verió endurútgefinn vegna
mikillar eftirspurnar.
Platan kom út fyrir jólin 2002 í
tilefni af 100 ára árstíð Jóns,
sem fæddur var í febrúar árið
1903. Hann andaðist á
Sauðárkróki í nóvember árið
1987.
Allur ágóði afsölu plötunnar
rennur í sjóð, sem stofnaður
var í tengslum við útgáfuna, og
ætlað er að styrkja ungt og
efnilegt tónlistarfólk í
Skagafirði. Þegar hafa nokkrar
úthlutanir farið fram og eru
vonir bundnar við að
endurútgáfan styrki enn frekar
grundvöll sjóðsins. Platan er
komin í sölu í Skagfirðingabúð
og Ábæ, og fæst einnig hjá
forsprakka útgáfunnar, Eiði B.
Guðvinssyni á Sauðárkróki.
Dreifing í verslanir á
höfuðborgarsvæðinu og
Akureyri er fyrirhuguð og
verður kynnt nánar síðar.
Á plötunni eru 17 lög í
flutningi skagfirskra lista-
rnanna, m.a. Karlakórsins
Heimis, Skagfirsku söngsveit-
arinnar og Álftagerðisbræðra.
Tólf af þessum lögunr
höfðu áður kontið út á öðrum
plötum en nteðal hinna fintm
lagasmíðanna er Lækurinn,
sem talið er að sé síðasta lagið
sem Jón samdi, á
haustmánuðum 1987. Stefán
Gíslason, kórstjóri Heintis,
fann lagið fyrir tilviljun á
sínum tíma, útsetti það og bjó
til flutnings.
í dónti um plötuna, sem
birtist í Morgunblaðinu í
desentber 2002, sagði m.a.:
“Lögin hans Jóns er góð
heimild um merkilegan
tónlistarfrömuð senr ekki má
gleymast kontandi kynslóðunt
Skagfirðinga og annarra
landsmanna.”
Eiður Guðvinsson með diskinn góða og mynd afefnilegu tónlistarfólki úr Skagafirði.
íþróttafréttir
Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar___
Brynjar prjónaði eins
og einn kilómeter
Brynjar Þór fór mikinn á Langasandi.
Mynd: Lovísa Sigurjónsdóttir
Afreksmaóurinn Brynjar Þór
Gunnarsson úr Vélhjóla-
klúbbi Skagafjaröar er að
gera þaó gott í vélhjóla-
íþróttinni þessa dagana og
það er alltaf gaman aó því
þegar Skagfiróingar láta að
sér kveóa í ftölmennum hópi
keppenda.
Brynjar Þór keppti í prjón-
keppni á Langasandi á Akranesi
á dögunum og gjörsigraði með
því að keyra á afturdekkinu um
kílómetra leið á sandinum.
Einnig var haldin keppni í
blandi af motocross og enduro
og þar var Binni í 3ja sæti, Einar
Sverrir Sigurðarson (íslands-
nreistari í bæði Motocross MXl
og Enduro) var í 1. sæti.
Stelpurnar úr minnibolta eldri hjá körfuknattleiksdeild
Tindastóls geróu sér glaðan dag á sunnudaginn var.
íþróttahúsið á Sauðárkróki var upptekið vegna mótahalds og
þ\4 héldu þær ásamt þjálfara sínunt til æfinga í íþróttahúsinu í
Varmahlíð og fóru í sund á eftir.
Alls eru um 20 stúlkur að æfa í þessunt flokki og undirbúa þær
sig áfkappi f)TÍr þátttöku í Mandsmótinu í vetur.
Körfuboltinn_______________________
Tap og sigur gegn Þór
Tindastóll lék tvo æfingaleiki
við Þór Akureyri á dögunum
en liðin undirbúa sig af kappi
fyrir átökin í lceland
Express-deildinni sem hefst í
næstu viku.
Fyrri leikurinn fór fram í
Síkinu á Króknum og þar voru
Stólarnir sterkari framan af.
Þórsarar gáfúst ekki upp og
síðari hálfleikur var jafn en
þegar upp var staðið höfðu
Stólarnir betur, 81-77.
Síðastliðinn mánudag mætt-
ust liðin síðan á Akuretyi og
þróaðist leikurinn ekki ósvipað
þeirn fyrri, Stólarnir náðu góðu
forskoti í byrjun en Þórsarar
söxuðu á forskotið og komust
yfir í fjórða leikhluta og sigruðu
á endanum 78-74.
Síðasti æfingaleikur Tinda-
stóls fyrir Islandsmótið verður
nú á föstudaginn en þá koma
ísfirðingar í heimsókn í Síkið og
hefst leikurinn kl. 19.