Feykir - 04.10.2007, Page 7
37/2007 Feyklr 7
j 3. Varmahlíð
Við höldum í bílinn og keyrum
í Varmahlíð. Þangað fór Óskar
reyndar aldrei í bíl hér áður fyrr,
ekki nema þegar hann fékk að
stíga upp á brettið hjá Baldri
mjólkurbílstjóra.
-Þá var talað við okkur strákana
á hreinni íslensku og ntaður vissi
hvað beið rnanns þegar ntaður yrði
fullorðinn. Bíll var ekki til í Álftagerði
á þessum árum, segir Óskar.
I Varmahlíð gekk Óskar í skóla og
eftir skóla var síðan hangið í gamla
kaupfélaginu eða í Gusu, eins og
sjoppan var kölluð. Síðar fékk hann
starf sem bensíntittur á kaup-
félagsplaninu. -Við vorum í skóla í
Miðgarði og síðan niður í gamla
skóla. Þar man ég eftir að hafa rennt
ntér niður að skúr með þeim
afleiðingum að nagli tók botninn úr
buxunum sem mamma hafði
saumað á mig upp úr buxurn af
bróður mínum. Með rassinn úr mátti
ég því skammast heim því svona gat
égekki verið. Kannski naglaskömmin
eigi sök á því hversu átt mér liggur
rómur í dag, það skyldi þó aldrei
vera, segir Óskar hugsandi en kíminn
urn leið.
Að loknum grunnskóla tók við
annars konar uppeldi í Miðgarði og
segir Óskar að ekki sé ólíklegt að þar
hafi fengist fyrsti kossinn.
-----------------------------\
5. Gilsbakki
Við erum löngu fallin á tíma en
Óskar á tvo staði enn sem hann
vill koma á framfæri. Annar er
Gilsbakki þar sem staðið er og
horft fram í dalinn.
-Það er ótrúlegur staður. Ég fór
þangað fyrst 16 ára gamall á gömlum
Land Rover sent Binni heitinn
í Geldingaholti átti. Við fórum
nokkrir að ná í einhvern fjandans bíl
og gengum hér fram eftir í leiðinni.
Ég man hvert einasta fótmál því
þetta varð svolítið djúpt í ntér enda
hafði ég heyrt sögurnar af Moniku í
Merkigili.
Þarna fer ég alltaf annað slagið
bara til þess að fá þessa stórkostlegu
tilfinningu.
4. Stóra Vatnsskarð
Frá Varmahlíð liggur leið okkar
að Stóra Vatnsskarði. -Þangað
fór maður til Benna á haustin
til þess að fara í göngur. Benni
var minn Tarsan og hálfgerð
þjóðhetja í augum okkar
strákanna en hann skemmti
gjarnan á barnaböllum.
Eins kom hann hingað til æfinga
nteð pabba og Sigfúsi og voru þeir þá
að æfa gamanvísur. Ekki var hann
heldur minni ntaður í mínum
augum f)TÍr þá staðreynd að hann
átti nýjan Land Rover sem hann
keyrði eins og hálfi'iti, segir Óskar
sem snemma fékk áhuga á bílum þó
ekki væru þeir til á hans æsku-
heimili.
Aðra hetjudáð tengir Óskar við
Benna á Stóra Vatnsskarði. Bróðir
Óskars dvaldi hjá honum veturlangt
til þess að temja tryppi og vaknaði
Óskar við það nótt eina árið 1964 að
heimilisfólkið á Stóra Vatnsskarði
stendur þar inni á gólfi, sótugt og
alblóðugt. Hafi kviknaði í gamla
bænum á Stóra Vatnsskarði með
þeirn afleiðingum að enginn átti
undankomu leið út. Braut Benni þá
gluggann og hékk út um hann á
annarri hendi en notaði hina til þess
að slaka heimilismönnum þar niður.
Komust allir tiltölulega heilir frá
atburði þessum en Óskar segist ætíð
fá hroll við tilhugsunina urn hversu
litlu mátti muna þegar hann ke)TÍr
þarna unt.
-Benni er hetja með stóru Hái.
Við Gísli fórum ófá haustin í göngur
fyrir hann og héðan á ég líka margar
mjög góðar minningar enda Benni
glaðsinna og skemmtilegur maður.
Þetta eru mínir
uppáhalds staðir enda
var heimurinn ekkert
rnikið stærri en þetta.
Krókurinn var því aldrei
neinn uppáhaldsstaður
hjá mér, hann var svo
langt í burtu. Ekki nema
þá Græni salurinn í
Bifröst en það ristir ekki
djúpt, segir söngvarinn
knái að lokum. Tími
okkar er á þrotum og
þeir bræður hafa pakkað
niður í töskur.
Áfangastaðurinn er
borgin þar sem leið
þeirra liggur í stúdíó þar
sem taka á upp
Skagfirskar drykkju-
vísur. Lögin sem við hin
syngjunt hvert með
okkar nefi eftir að
söngolían hefur smurt
raddbönd okkar.
Útkoman ásamt dvd
mynd með safni af
myndum og
myndböndum þeirra
bræðra mun líta dagsins
ljós fyrir jól.