Feykir - 04.10.2007, Page 8
8 Feykir 37/2007
VIKA4
0
Breyttur
lífsstíll meö Feyki
Jæja nú er búið að taka á því
í þrjár vikur og kannski tími
til kominn fyrir þá sem ætla
lengra að fara að finna sér
líkamsræktarstöð. Ekki síst í
Ijósi þess að nú styttist
dagurinn og stöðugar
rigningar gera útiæfingar
ekki að freistandi kosti. En
þær María ogSiva í Þreksporti
halda áfram að senda okkur
dagskrá og svona líta næstu
tvær vikurnar út. í næstu
viku má auka örlítið við
brennsluna.
3x í viku
Dagur 1.
Dagur 2
Brennsla 20-30 mín
Dagur 3
10-15 mín upphitun,
hlaupabretti, stigvél, hjól.
Bekkpressa
Niðurtog þríhöfði
Róður í vél eða með handlóði
Tvíhöfði með stöng
Niðurtog víttgrip
Axlapressa með lóðum
Gera skal 2x15 endurtekningar
Gotteraðtaka 15-20 míní
brennslu eftir lyftingarnar.
Kvið og bakæfmgar skal gera alla
dagana.
Gangi ykkur vel
10-15 mín upphitun,
hlaupabretti, stigvél, hjól.
Fótpressa
Fótkreppa
Fótrétta
Kálfalyfta
Hnébeygja
Framstig
'' ">
Gullkorn
j vikunnar
Vel skipulögö
matarinnkaup og
matseóill koma oft í
veg fyrir aó óhollusta
sé gripinn á síðustu
stundu.
Á slóóinni www.
hvaderimatinn.
is má finna fjölda
hugmynda af
matseölum og
þaó sem betra
er uppksriftirnar
fylgja meö og
innkaupalistar.
Holjréttur
vikunnar
Grænmetisréttur
með Ricotta
250 gr. Galbani Finetta Ricotta
ostur
200 gr. Niðurskorið blandað
grcenmeti, t.d kúrbítur, tómatar
oggulrœtur
150 gr. Niðursneitt brauð
50 gr Nýrifinn Grana Padano
ostur
Olívuolía
Smjör
Salt og pipar
Aðferð: Forhitið ofninn í 200
gráðu hita. Hitið olíu á pönnu og
steikið grænmetið.
Raðið brauðinu í botninn og
hliðarnar á eldföstu móti. Setjið
grænmetið síðan ofan á. Blandið
Ricotta ostinum og smá olívuolíu
saman og kryddið eftir smekk.
Setið ostamaukið yfir
grænmetið.
Stráið rifna ostinum yfir og og
bakið í 10 mín.
( TÖLVUPÓSTURINN )
Jón Guómann Jakobsson stýrir Reykjavíkurdeild
spútnikfyrirtækisins Léttitækni.
Feykir sendi Jóni tölvupóst og spurói frétta.
Aöalmáliö er
jákvæöni
>
>
Hvað er svo að frétta úr
Reykjavíkurhreppi? -Héðan úr suður-
vígstöðvum Léttitækni er allt gott að
frétta. “Útrás" Léttitækni ehf yfir heiðar
gengur afskaplega vel og höfum við náð
góðri fótfestu á markaðnum. Það er hins
vegar alltaf hægt að bæta við og gera
betur og það er í mörg horn að líta.
En þér sjálfum? -Sömuleiðis allt gott
að frétta frá mér og mínum. Krakkarnir
komnir í leiksóla og allt komið í sinn
vanalega haustgír. Við fluttum í sumar
og erum að verða búin að koma okkur
vel fyrir í nýju íbúðinni í Grafarholti. Núna
í dag eru við einmitt að skella okkur
norður á Blönduós yfir helgina og hlakkar
okkuröllum mikið til.
Eru ekki einhverjar skemmtilegar
nýjungar hjá Léttitækni þessa dagana?
-Það sem kemur fyrst uppí kollinn er auðvitað Segway hjólið. Því tæki er erfitt að gera skil í síma
eða á prenti. Best er að skoða www.segway.com. Segway verkefnið fer af stað næsta vor. Svo erum
við að semja um nýtt umboð á rafdrifnum hillukerfum en þá eru heilu brettarekkakerfin á sleðum í
gólfi og nýtist vöruhúsið margfalt betur. Þetta er sniðug lausn þar sem fermetraverð á byggingum er
hátt og fer hækkandi.
Er alltaf jafn mikið að gera? -Já.eins og hjá mörgum fyrirtækjum í dag er meira en nóg að gera.
Það virðist vera endalaus eftirspurn eftir góðum vönduðum vörum og góðri þjónustu í þessum geira.
Við reynum að vera alltaf á tánum að fylgjast með nýjungum og góðum lausnum. Forsvarsmenn
fyrirtækja gera sér líka betur grein fyrir því í dag hvað léttitæki getur breytt miklu fyrir starfsmanninn,
sem verður ánægðari og líður betur í vinnu sem svo skilar sér í bættum afköstum. Betur vinnur vit
en strit:)
Hvað er svona helst framundan hjá ykkur? -Tyrklandsferð er núna næst á dagskrá. Við erum að
fara að hitta framleiðendur á hillukerfum og skápum. Við erum reyndar byrjaðir í viðskiptum við þá
fyrir um einu og hálfu ári. Viðskiptin hafa gengið vonum framar og nú er kominn tími til að hittast og
ræða málin dýpra um framhaldið. Svo eru mörg verkefni framundan og verkefnastaðan hefur aldrei
verið jafn góð. Svo má líka nefna að við erum að fara að byggja annað nýtt hús á Blönduósi sem
verður tilbúið um áramótin.
Eruð þið að bjóða einhverjar vörur sem gætu hentað á “heimamarkaði” það er á Norðurlandi
vestra? -Vörurnar sem við erum með henta í raun hvar sem er. Alls staðar þar sem eru lagerar eða
vöruhús má yfirleitt finna einhverjar vörurfrá okkur. Hvortsem það erhillukerfi, handvagn eða lyftari.
Við eigum marga trausta viðskiptavinu um land allt. Það snýst frekar um það hvort menn á “okkar
heimamarkaði’’ geri sér almennt grein fyrir því að við séum með svona mikið vöruúrval og oftar en
ekki á betra verði en samkeppnisaðilar okkar. Auóvitað getum við líka verið duglegri í að auglýsa
okkur í heimabyggð.
Hvers saknar þú nú mest frá heimahögunum? -Það er margs að sakna. Ég fæddist og ólst upp á
Blönduósi og því hefur maður alltaf taugar norður. Mjög stór hluti fjölskyldunnar erfyrir norðan og við
reynum að renna norðureins oftogvið mögulega getum. En burtséðfrá vinum ogplskyldu þá finnst
mér alltaf notalegt bara að vera í kyrrðinni og njóta lífsgæðanna sem eru í umhverfinu og náttúrunni.
Ég er bjartsýnn á framtíð svæðisins. Staðsetning svæðisins landfræðilega og samgöngulega séð er
mjög góð. Það leynast tækifæri víða, en frumkvæði þarf að koma frá fólkinu sem hér býr. Aðalmálið
er jákvæðni og bjartsýni þá er oft eins og hlutirnir komi að sjálfu sér.
>
>
og bjartsýni