Feykir - 04.10.2007, Síða 9
37/2007 Feyklr 9
ÓK Gámaþjónusta á Sauðárkróki hefur verió starfrækt frá árinu
1988. Fyrstu tvö árin var fyrirtækið aðallega í sorphiröu en frá
árinu 1990 hefur fyrirtækið einnig sérhæft sig í útleigu sorpgáma
og þjónustu við þá.
Fyrirtæki vikunnar
ÓK Gámaþjónusta
I upphafi voru starfsmenn
fyrirtækisins ekki margir
en þá sá Ómar um að
keyra ruslabílinn og fékk
skólastráka til þess að
hlaupa í tunnurnar.
Smá saman ijölgaði hjá
honum en árið 1992 réð hann
fyrst fastan starfsmann sér við
hlið og í dag eru starfsmenn
Ómars 6 að honurn
meðtöldum auk þess senr
skólastrákar sjá enn unr
hlaupin í tunnurnar en þar er
hann með 6 stráka sem skipta
með sér einu stöðugildi.
Starfssvæði fyrirtækisins
er Skagaíjörður og
Sigluljörður og sér
Gámaþjónustan um alla
sorphirðu á þessu svæði.
Þá er hann í dag með unr
140 ruslagáma í útleigu og
eru þeir á stærðarbilinu 10 til
30 rúmmetrar. Eins er hægt
að fá lítil ruslakör senr eru
660 - 1100 lítrar á stærð og
eru um 110 þannig kör í
unrferð hjá Ómari.
Til hliðar við þetta rekur
Gámaþjónustan 20 stk. þurr
salerni, eða kamra, er þar um
að ræða gáma líkt og við
sjáurn á útihátíðum og
stundum við tjaldsvæði.
Að auki hefur hann snn'ðað
salernisgáma sjálfur sem fara
út um land allt. I hverjum
gánr eru 6 vatnssalerni senr
uppfylla allar nútíma
hreinlætiskröfur og á
Gámaþjónustan 4 slíka.
Gámaþjónustan rekur 7 bíla
sem þjónusta viðskiptavini
hennar auk þess að vera með
sérbúin bíl til þess að hreinsa
rotþrær við sumarbústaði og
sveitabæi.
Einnig sér Gámaþjónust-
an unr að keyra um 10 tonn á
dag nreð rækjuskel frá Dögun
til Siglufjarðar þar senr unnið
er úr þeim kítósan.
ÓK Gámaþjónusta á hlut í
Jarðgerð ehf. og koma
starfsmenn frá ÓK til nreð að
sjá um daglega vinnu þar.
IdagerÓKgánraþjónustan
að reisa nróttökustöð fyrir
flokkaðan úrgang, er þar um
sérstakt fyrirtæki að ræða.
Flokka ehf. var stofnuð í júní
2006 og hófst þá undir-
búningur að byggingu
flokkunarstöðvarinnar. Þegar
hún verður að fullum komin
í gang gerir Ómar ráð fyrir að
þar verði þrjú stöðugildi.
Stefnt er að því að stöðin hefji
rekstur í byrjun desember á
þessu ári.
Er þarna um að ræða mjög
svo spennandi verkefni sent
Feykir mun fá að fylgjast
nánar með og kynna betur
þegar nær dregur opnun þess
fyrirtækis.
Omar Kjartansson, eigandi OK Gámaþjónustu.
Salernin sem Ómar hannaði og smíðaði.
í gámunum mé lika finna þessarfinu sturtur.
Hann er glæsilegur nýjasti bílinn i flota Ómars.
( MITT LIÐ )
Líflegar umræóur
um fótbolta
á heimilinu
Skúli Jónsson
framkvæmdastóri
knattspyrnudeildar
Tindastóls lifir og hrærist
f heimi knattspyrnunnar.
Hann er Púllari, allt frá árum
svart hvíta sjónvarpsins,
þannig að ekki voru það
litirnir sem heilluðu hann
eins og suma.
Hvert er uppáhalds liðið þitt
og af hverju?
-Ég hef haldið með Liverpool
frá því að ég fór að geta fylgst
með enska boltanum. Ég man
eftir að ég fór að halda með
Liverpool vegna þess að mér
fannst þeir spila skemmtilegan
fótbolta og ég sat alltaf límdur
við sjónvarpið þegar sýnt var
frá þeim, en þá var bara horft
á alla leiki í svart hvítu.
Hefur þú einhvern tímann
lent f deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði?
-Já ég man eftir því að á
unglingsárum lenti maður
oft í deilum út af því en þá
sérstaklega við þá sem héldu
með Leeds eða Man. Utd.
Núna seinni árin eru það
aðallega þeir sem halda með
Man. Utd. sem maður hefur
lent í deilum við og í eitt skiptið
varég nærri laminn.
Hefur þú farið út á leik með
liðinu þínu?
-Nei, éghef ekki gefið mértíma
til fara á leik hjá þeim.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðning við liðið?
-Það gengur ekki mjög vel ég á
þrjá drengi og það er bara einn
sem heldur með Liverpool en
hinirtveir halda með Man. Utd.
Þannig að það verða oft mjög
líflegar umræður á heimilinu
um fótbolta.
YOU'LL NEVF.RWALK ALONE
smáauglýsingar...
Til sölu
Til sölu netbundnar, þurrar
hálmrúllur, saxaðarog ósaxaðar.
Gurmar, Stóru-Ökrum
s. 895 9268
Trésmíðavél til sölu
Hobbytrésmíðavéltilsölu. Gerð
EFIPHI, samanstendur af afréttara,
þykktarhefli, sög, patrónu og úttaki
fyrir fræsara. Verð kr. 60.000.
Uppl. i síma 453-6750 eða 453-5602.
Brauðgerðarvél óskast
Á einhver brauðgerðarvél inni i
geymslu þar sem hún safnar bara
ryki. Efsvo er þá langar okkur að
bjarga henni fyrir sanngjarnt verð.
Upplýsingar í sima 456- 5515
Sendibíll til sölu
Til sölu gamall og góður sendibill.
Toyota LiteAce 1988
ígóðulagi. Uppl. í síma 8619842
PalliFr.
Sendið smáauglýsingar til birtingar á feykir@nyprent.is