Feykir - 04.10.2007, Blaðsíða 11
37/2007 Feyklr 11
GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 461
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman að byrja að þessu sinni
með nokkrum vísum, sem geta
skoðast sem framhald af síðasta
þætti og tengjast göngum og réttum.
Einhverju sinni er Björn Blöndal
komst ekki með sveitungum sínum í
göngur á Grímstunguheiði, þar sem
undanreiðarmenn fara í Fljótsdrög,
varð til þessi ágæta hringhenda:
Heimabandi heftur er
hörpu vandast slögin.
Ég í anda aðeinsfer
yfir Sand í Drögin.
Hér áður fyrr voru þægindi
gangnamanna á hinum ýmsu Iieiðum
af skornum skammti, ef svo mætti að
orði komast. Var þá sá kostur cinn að
flytja nesti og annan farangur á hesti,
sem þá hlaut sæmdarheitið trússhestur.
Voru oftast tveir af gangnamönnum
tilnefndir af gangnaforingja til að fara
með hesta þessa á milli gististaða á
heiðinni. Voru þeir þá bundnir í lest og
þeir sem með fóru kallaðir lestarmenn.
Eitt sinn í göngum á Eyvindarstaðaheiði,
er það var hlutskipti Árna Gíslasonar í
Eyhildarholti í Skagafirði og Sigurðar
Guðmundssonar bónda á Fossum í
Svartárdal, að færa þessa burðarhesta
milli náttstaða. Orti þá Sigurður þessa
ágætu hringhendu:
Okkur brestur aðeins víf
- eigum nesti saman,
þetta lestamannalíf
líst mér besta gaman.
Sá ágæti drengur frá Æsustöðum í
Langadal, Stefán Gunnarsson, fór í
göngur fram til heiða á sínum yngri
árum. Eitt sinn er hann fór á móti
gangnamönnum og mun hafa gist í
Svartárbugum, varð til eftirfarandi
Stóðu íflánni Steinárnaut
stinnu holdi lofa.
Heiðin fannst mérfremur blaut
ogfúlt í Bugakofa.
Eins og flestir gangnamenn vita, er gulli
betra að hafa góða hesta til brúkunar á
þessum árstíma. Ólafur Bjarnason frá
Stafni í Svartárdal lýsir reiðhrossi sínu af
kostgæfni í eftirfarandi vísu:
Rauðka mín er vökur vel
víst mun auðgrund duga.
Yfir keldur, móa og mel
mesta rennifluga.
önnur ágæt vísa kernur hér eftir
Ólaf. Hefur sú dís sem þar er ort um
ábyggilega haft góðan þokka til að bera:
Kinnin ersvo hvít og rjóð
klœða fögur gnáin.
Eins og þegar blœðir blóð
benjum úr í snjáinn.
Gaman hafði Ólafur af að yrkja ýmsar
glettur um samferðamenn á lífsleiðinni
og brá þá gjarnan fýrir sig öðrum
bragarhætti. Eitt sýnishorn af slíku
kemur hér:
Lyndisglaður lífs um traðir hoppar.
Auðólfstaða - Erlendur
Er mjög staður gœðingur.
Annarri man ég eftir sem ort er með
sama bragarhætti. Mun þá Sigurður
Þorfinnsson, áðurbóndi áSkeggstöðum
í Svartárdal, hafa verið að bera Ólaf
)1ír Svartá - sem orti svo þokkalega á
meðan.
Siggi Skeggur sá ber egg á herðurn.
Ána sullast allsstaðar.
Eins og drulla tilsýndar.
Okkar góði vinur og söngstjóri
Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps
um áratugaskeið, Jón Tryggvason
bóndi í Ártúnum, lofaði mér eitt
sinn að heyra vísu sem hann orti eftir
að hafa verið í nokkurra daga dvöl í
Reykjavíkurhreppi:
Allstaðar mín alúð beið
Engu vil éggleyma.
Nú er ég þó á norðurleið
Nú er ég bráðum heima.
Hannes Jónsson frá Eiðsstöðum, mun
hafa ort þessa:
Á því virðist ekkert hik.
Æra og dyggðir fúna.
Hrœsni, loforð, lygi ogsvik
lœtur mörgum núna.
Bjartara er yfir næstu vísu Hannesar.
Ástin fœðir yndi hrein.
Ástina glœðir stakan.
Ástin grœðir andans mein.
Ástin brœðir klakann.
Aftur þyngist yfir Hannesi, er hann
yrkir svo:
Veginn ranga við ég bý
Vafinn angri kífsins.
Ég er fangi innan í
öldugangi lífsins.
Gott að enda þá þetta spjall með
ágætri hringhendu eftir Skarphéðinn
Einarsson, sem oftast var hér í
Húnaþingi, kenndur við Ytra -
Tungukot í Blöndudal:
Geislar binda gremjuský.
Góðu ersynd að leyna.
Ég hefi yndi af öllu því
Ástsem myndar hreina.
Verið þar með
sœl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Simi 452 7154
Margrét Aóalsteinsdóttir í eldhúsinu
Gimilegt
hlaðborð
Það er vel hlaðiö veisluborðið sem Margrét Aðalsteinsdóttir
bíður lesendum Feykis að þessa vikuna. Margrét skorar
á Óskar Björnsson og Erlu Kjartansdóttur og munu þeirra
uppskriftir birtast að hálfum mánuði liðnum.
Thailenskar kjötbollnr
500-600gr. nautahakk
60 gr. hveiti
3 msk. olía
2 msk. rautt currypaste
3 1/2 dl. kókosmjólk (1 dós),
11/2 msk. fiskisósa (fœstá flösku)
2 tnsk. muldar jarðhnetur eða
hnetusmjör(gróft)
1 msk. sykur
Mótið litlar bollur úr hakkinu
og veltið þeim upp úr hveiti.
Brúnið þær í olíu og leggið þær
á eldhúspappír. Setjið currypaste
á pönnuna og steikið í nokkrar
mín. við vægan hita. Bætið þá
kókosmjólk, fiskisósu, hnetum/
smjöri og sykri á pönnuna.
Blanda vel saman og sjóða
bollurnar síðan í sósunni í u.þ.b.
5 mínútur. Bætið svo í restina
2 msk. af hakkaðri basiliku eða
myntu, út í.
Berið fram með hrísgrjónum og
góðu fersku salati.
Súpu og salat brauð
300gr. heilhveiti
700 gr. hveiti
1 msk. salt
2 msk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
800 ml. ab mjólk (má vera létt)
1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar í
olíu(má vera smá olía með)
nokkrar msk. Timian eða
rósmarín, (ferskt og hakkað)
1 msk. gróft salt.
Blanda öllum þurrefnum saman
í skál nema grófa saltinu. Hrærið
með hnoðara og bætið ab-
mjólkinni síðan út í. Ef deigið
er of þurrt og stíft má bæta
meiri ab-mjólk út í. Setjið í
eldfast mót, 5 cm djúpt, u.þ.b.
hálf ofnskúffa að stærð. Potið
nú með fingurgómunum ofan
í deigið (litlar holurjog dreypið
yfir með olíu úr krukkunni af
tómötunum og stráið síðan grófa
saltinu yfir. Bakið við 190 gráður
í 20-30 mín.
Frosin Bananakaka
200 gr. hafrakex
3-4 bananar
11/2 líter vanilluís
2 dl saxaðar heslihnetur
lOOgr. suðusúkkulaði
75 gr. smjör
2 dl. flórsykur
1 dl. rjómi
1 tsk. vanilludropar
Myljið kexið í eldfast form og
brytjið yfir bananana. ísinn
settur ofaná og síðast hnetur.
Þetta síðan sett í frysti á meðan
súkkulaðikremiðerlagað. Bræðið
saman smjör, rjóma, súkkulaði
og flórsykur. Látið malla í 5 mín.
og kælt aðeins. Hellt yfir ísinn og
ftyst aftur.
Má bera fram með þeyttum
rjóma ef vill.
Verði ykkur að góðu!
Landssöfnun Kiwanis
Lykill
aðlvfi
Landssöfnun Kiwanis-
hreyfingarinnar til
stuðnings geðsjúkum og
aðstandendum þeirra
hefst fimmtudaginn 4.
október og stendur til
og með sunnudeginum
7. október.
Sparisjóðirnir á Islandi,
Toyota, Olís og Bónus eru
bakhjarlar verkefnisins.
Kjörorð söfnunarinnar er
Lykill að lífi og er hún haldin
í tengsluni við alþjóðlega
geðheilbrigðisdaginn 10.
október.
Ágóði landssöfnuna-
innar að þessu sinni rennur
til þi'iggja málefna;
Geðhjálpar, BUGL og
Forma. Gengið verður í hús
urn land allt auk þess sem
sölumenn verða við
verslunarmiðstöðvar og
aðra fjölfarna staði.