Feykir - 20.12.2007, Blaðsíða 7
48/2007 Feyklr 7
Fljótin
Náðu 16 kindum
úr Héðinsfirði
Mikið um að vera hjá
3. bekk / Grunnskól-
anum á Blönduósi
Sjö afmæli í
desember
Bændur úr Austur-Rjótum
fóru til Héðinsfjarðar í
síðustu viku til að sækja
þær kindur sem eftir urðu í
firðinum í haust.
Flestir fóru á bát frá
Siglufirði en þrír fóru á
snjósleðum til að ná þeim sjö
kindum sem vitað var um
framarlega í Héðinsfirði og
reka þær niður að sjó. Alls
náðust 16 kindur í ferðinni,
tvær úr Ólafsfirði en hinar úr
Fljótum og dreifðust þær á
fimm bæi. Ekki er vitað um að
kindur séu eftir þarna en
eitthvað mun vanta enn af fé
sem búist var við að fyndist í
þessum túr.
Kindurnar voru fluttar á báti
til Siglufjarðar og er líklegt að
þetta verði í síðasta skipti sem
slíkur flutningamáti er
viðhafður því á næsta ári verða
komin jarðgöng úr Siglufirði í
Héðinsfjörð og þá verður
væntanlega allt bras með að
korna á göngum í firðinum og
síðan fénu til byggða úr
sögunni. ÖÞ:
Landað fé úr Keili í Siglufirði árið 2005 eftir állka ferð og nú. Liklega verður þetta i siðasta
skifti sem fé verður flutt á sjó eftir smölun i Háðinsfirði. mynd ÖÞ.
Gagnaveita Skagafjarðar
1. áfanga senn lokið
Farið er að sjá fyrir endann á
framkvæmdum Gagnaveitu
Skagafjarðar í Túnahverfi,
þó jarðvinnuframkvæmdum
Ijúki ekki endanlega fyrr en
á nýju ári.
Verkið hefur gengið
ágætlega miðað við tíðarfar
það sem af er vetri og þessa
dagana viðrar ágætlega fyrir
framkvæmdirnar. Undanfarið
hefur verið unnið í því að draga
nýjan ljósleiðara í stofn-
lagnakerfi Gagnaveitunnar og
mun ídráttur í heimtaugar
hefjast á næstunni. Þá verður
skilið við ljósleiðarann í
inntaksboxi sem fest verður á
vegg við inntakið innan veggja
heimila í Túnahverfi.
I mars er síðan áætlað að
hægt verði að opna á ljósl-
eiðaratengingarnar inn á kerfi
Gagnaveitunnar, en tengibox
sem sett verða upp á heimilum
þegar opna á fyrir notkun
tenginganna, eru væntanleg í
lok febrúar.
Gagnaveita Skagafjarðar
Hvatapeningar
verða greiddir
Sveitarstjórn Skagafjarðar
hefur ákveóið að foreldrar
barna 6-16 ára sem uppfylla
ákveðin skilyrði um þátttöku
í tómstunda-, íþrótta- og
menningarstarfi fái greiddar
8.000.- krónur í Hvatapen-
inga árið 2007.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar kemur fram að
skilyrðin eru þau að börnin
þurfa að vera á aldrinum 12-16
ára með lögheimili í
Sveitarfélaginu Skagafirði.
Yngri árgangar höfðu
möguleika á að fá sína
Hvatapeninga í tengslum við
Sumar T.Í.M. síðasta sumar.
3. bekkur í Grunnskólanum á
Blönduósi hefur ansi mikió
að gera í desember. Ekki er
nóg með allar hátíðimar:
jólatónleika, aðventuna,
föndurdaga í skólanum,
jólaböll og ýmislegt fleira,
heldur emsjö
bekkjarsystkini sem eiga
afmæli í mánuðinum.
í bekknum eru 19 nemend-
ur og er það fjölmennasti
bekkur skólans. Nemendur
bekkjarins eiga afmæli í janúar,
mars, maí, júlí, ágúst,
september, október og svo
þessir sjö í desember.
Afmælisdagarnir í desember
eru þann 6. 7. 8. 10. 11. 12. og
síðasti dagurinn er 21.
Er þetta bæði annasamt
fyrir foreldra barnanna og
börnin sjálf sem óneitanlega
eru á hlaupum milli afmæla
þennan mánuðinn.
(texti fjölmiðlaval)
Frjálsar íþróttir
Jólamót
USAH
Jólamót USAH verður haldið
í íþróttahúsinu á Blönduósi
27. desember næst
komandi.
Hefst mótið klukkan tólf
og er áætlað að það standi í
fjóra tíma. Keppt verður í
langstökk án atrennu,
þrístökki án atrennu, hástökki
og kúluvarpi. Aldursflokkar
verða: 11-12 ára, 13-14 ára og
15 ára og eldri nema í
kúluvarpi, þar verður keppt í
flokki 15-16 ára og svo 17 ára
og eldri.
Frjálsar
Jólamót
UMSS
Jólamót UMSS verður
haldið í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki 22. des kl
14.00.
Keppt verður í langstökki,
þrístökk án atrennu, hástökki,
stangarstökki og kúluvarpi
bæði í karla- og
kvennaflokkum.
Tilviljun aö United
varð fyrir valinu
Gísli Svan Einarsson er
framkvæmdastjóri Versins,
vísindagarðar sem staðsettir
eru við Sauðárkrókshöfn.
Hann er íþróttaáhugamaður
og á sér að sjálfsögðu
uppáhaldslið í enska
boltanum. Og það halda
bara allir í fjöiskyldunni með
sama liðinu.
Hvert er uppáhalds liðið þitt
og af hverju?
-Manchester United. Það
var eiginlega algjör tilviljun.
Þannig var að ég var að fara
í keppnisferðalag 12 ára
gamall og vantaði tösku undir
íþróttadótið.
Þegar ég kem inní búðina og
sé þessa faliegu rauðu tösku
þá ákveð ég að kaupa hana.
Taskan var rækilega merkt
Man.Utd. ég er ekki viss um
að ég hafi pælt mikið í því þá
en síðar skipti þetta talsvert
miklu máli vegna þess að
Man Utd var lið verkamanna í
Manchester og það þótti ekki
verra í Neskaupstað.
Hefur þú einhvern tímann
lent í deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði?
-Það er varla hægt að segja
það en menn hafa auðvitað
skipst á skotum.
Hefur þú farið út á leik með
liðinu þínu?
-Ég hef ekki farið á leik með
Man. Utd en ég hef farið tvisvar
á leiki í Englandi og var það
mikil upplifun.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðning við liðið?
- Það halda allir með Man.
Utd.
mm
( MITT LIÐ }
Knattspyrna____________
Tindastóll missir
fjóra leikmenn
Fjórir ungir leikmenn frá
Tindastóli hafa gert
samning vió
Knattspyrnudeild Keflavíkur
um aó ganga til liös viö
félagið.
Eru þetta þeir Arnar Skúli
Atlason, Fannar Freyr Gíslason,
Arnar Magnús Róbertsson og
Ingvar Björn Ingimundarson,
allir leikmenn með 2. flokki
Tindastóls. Á vef Víkurfrétta
kemur fram að leikmennirnir
nruni konra til liðs við Keflavík
strax eftir áramót og stunda
nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja samhliða því að æfa
knattspyrnu. Ljóst er að um
blóðtöku er að ræða fyrir
Tindastól sem í haust vann sér
rétt til þess að spila í 2. deild.
Hins vegar ættu drengirnir sem
allir eru efnilegir, mögulega að
geta skapað félaginu tekjur í
framtíðinni enda uppaldir
innan raða Tindastóls. Það er
að því gefnu að þeir verði
atvinnumenn.