Feykir - 20.12.2007, Blaðsíða 14
14 Feykir 48/2007
Auðunn Blöndal er uppalinn
að mestu á Saudárkróki
Uppáhalds staðir
Auðuns
Auðunn Blondal er af landanum þekktastur fyrir að hrekkja, segja
brandara og jafnvel éta sand, bara af því að hann tapaði áskorun.
Auðunn hefur verið duglegur að halda því á lofti að uppvaxtarárum
sínum hafi hann eitt á Sauðárkróki og í heimabænum á hann sína
uppáhaldsstaði. Feykir hitti Auóunn í byrjun desember og fékk sögurnar
a bak við staðina.
Það er fallegur dagur í
Skagafirðinum þegar við
hefjum ferðalag okkar
um 5 uppáhalds staði
Auðuns. 10 gráðu frost
og stilltveður. Gerist ekki
mikið betra í desember.
Auðunn kom í bæinn til
þess að vera veislustjóri á
jólahlaðborði á Mælifelli.
Veislustjórnin fórst
honum vel úr hendi og
notfærði hann sér að vera
á heimavelli. Valdi sér
fórnarlömb úr sal og
sagði brandara á þeirra
kostnað auk þess sem
ógeðisdrykkurinnvinsæli
var á sínum stað á
dagskránni. Milli atriða
rölti hann síðan um með
kaffibollann sinn og
spjallaði við gamla
kunningja. Vinirnir
görnlu eru að vísu að
mestu íluttir úr bænum
en sjálfur segir Auðunn
að sig dreymi um að
koma sér í framtíðinni
upp sínu öðru heimili á
Króknum. Eiga hér sinn
sumarbústað. Þáttaröðin
Tekinn undir stjórn
Auðuns hefur náð
miklum vinsældum en
hún hefur nú runnið sitt
skeið. Framundan eru
spennandi tímar en
Auðunn er að skrifa
handrit að nýrri leikinni
seríu með Sveppa vini
sínum og er það í fýrsta
sinn sem þeir skrifa
saman efni síðan þeir
skrifuðu Svínasúpuna 2.
1. Bláfell (ShellSport)
Við hófum ferðina í Shell-sporti
eða Bláfelli eins og Auðunn
kallar staðinn.
Auðunn minnist þess að hafa
hangið ófáa tímana í Bláfelli
með félögunum.
'l'rúlega eitthvað til þess að kíkja
á stelpurnar en líka vegna þess að í
gegnum áratugina hefur sjoppan
þjónað hlutverki félagsmiðstöðvar
unglinganna. -Ég man sérstaklega
eftir djúpsteiktu pylsunum, þær
voru og eru alveg rosalega góðar.
Eitt sumarið tókum við félagarnir
eftir því að við vorum farnir að
fitna þrátt fyrir að vera að æfa
fótbolta af miklum móð. Það var
ekki fýrr en löngu síðar að við
uppgötvuðum að það var pylsuátið
sem fór svona með okkur. Ég
minnist þess heldur ekki að hafa
verið hent út af Bláfelli fýrir
prakkarastrik ég hef kannski hagað
mér betur þar en á Ábæ en þaðan
var okkur félögunum oft hent út,
rifjar Auðunn brosandi upp.
/
2. Körfuboltavöllurinn vió
gamla barnaskólann
Væri á annað borð snjólaust
segir Auðunn að þeir félagar
hafi eitt ómældum tíma á
vellinum.
-Körffirnar hér eru í mismunandi
hæð miðað við aldur og það passaði
alltaf að þegar ég náði að b)Tja að
troða vorum við orðnir of stórir fyrir
körfúna og vorum fluttir á næstu
hæð fýrir ofan. Ég held svei ntér þá að
það hafi verið notað sem viðmið að
þegar stubburinn náði að troða var
liðið orðið of stórt fýrir körfúna, segir
Auðunn. Þegar okkur bar að garði
voru engir krakkar úti að leika sér og
var Auðunn hissa á því. -Við hefðum
ekki látið smá kulda stoppa okkur
heldur komið og leikið okkur, segir
Auðunn en hann varð ásamt félögum
sínum íslandsmeistari í 8. flokki árið
1993.
5. Grænaklauf
Þegar kemur að stað númer
fimm á Auðunn erfitt með að
ákveða sig. Valið stendur á milli
Grænuklaufar og Litla skógar.
í Litla skógi gerðust ævintýrin og
þar fékk ungur drengur eitt sinn lyrir
löngu sinn fýrsta koss. Þar var líka
farið í útilegur. Grænaklaufin verður
ofan á og við fáum lánaðan sleða.
í klaufinni hittum við fýrir unga
drengi sem fá stjörnur í augun þegar
þau hitta sitt átrúnaðargoð fyrir í
snjóbrekkunni. -Hingað komum við
bæði til þess að renna okkur og eins
áttum við það til að tjalda hér efst í
klaufinni þegar ég var unglingur.
Einhverjir voru eitthvað að drekka
en við félagarnir vorum svo miklir
íþróttamenn að við byrjuðum ekki á
því f)'rr en síðar en létum okkur nú
samt ekki vanta. Maður hefur aldrei
þurft að vera fúllur til þess að láta
eins og asni, segir Auðunn og það er
eitthvað prakkaralegt við bros hans.
Líklega hefúr hann ekki grunað þegar
hann lék sér sem strákur í brekkunni
heima að síðar meir ætti hann eltir
að hafa at\innu af prakkarastrikum
og alls k)Tis ólátum.