Feykir


Feykir - 20.12.2007, Blaðsíða 15

Feykir - 20.12.2007, Blaðsíða 15
48/2007 Feykir 15 r 3. Útsýnisstaóurinn í Hegranesi Eftir að hafa rifjað upp gamla takta á körfuboltavellinum höldum við aftur af stað og að þessu sinni liggur leiðin yfir í Hegranes. Á stað sem Auðunn segist hafa farið á þegar hann hafði farið í fylu, þurft að hugsa eða bara langað til þess að vera einn með sjálfum sér. Einu sinni minnist hann þess líka að hafa tekið þangað með sér stelpu en verður ntóðgaður þegar blaðamaður sp)T hvor þar hafi fyrsti kossinn átt sér stað. -Þegar ég var 17?, spyr Auðunn á móti og uppsker hlátur blaðamanns. -Nei ég nennti nú eldd að labba með dömurnar þarna yfir og þangað fór ég ekki að venja komur rnínar fyrr en eftir að ég tór að keyra sjálfúr. Fyrsti kossinn átti sér stað í Litla skógi í það minnsta sjö árurn f)Tr, bætir hann við. Þegar við komum í Hegranesið snarar Auðunn sér út og tekur sér stöðu þar sent horfa má yfir bæinn. -Hérna stóð ég og lét rjúka úr mér eða bara hugsaði málin. 4. Jöklatún 5 Æskuheimili Auðuns er næsti viðkomu- staður okkar. Jöklatúnið er honum kært og hann segir mér að einhvern tímann langi hann að kaupa íbúðina sem fjölskyldan bjó í. Við göngum inn á lóðina til þess að taka mynd og Auðunn getur ekki stillt sig um að kíkja aðeins á gluggann á forstofuherberginu sem eitt sinn var herbergið hans. Við hringjum bjöllunni til þess að fá levftl til þess að taka mynd og er boðið inn. -Hér átti ég góða tíma maður, segir Auðunn skælbrosandi. -Ég man að einu sinni héldum við partý hérna félagarnir. Ég var með bollu og eitthvað var I ég orðinn í því og tímdi ekki að láta strákana klára þetta allt frá mér og tók mig til og faldi bolluna. Ég faldi hana rneira að segja svo vel að ég ætlaði aldrei að finna hana aftur. Ekki fyrr en ég fór að taka til daginn eftir og steig ofan í hana þar sem skálin bar bak við sófa, bætir hann við. Þar sem við göngum um íbúðina rifjar hann upp herbergjaskipan og af gömlum vana kíkir hann örlítið í eldhússkápana. Æskuheimilið á alltaf sinn stað í hjarta okkar. RABB-A-BABB ) körfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Soya mjólk. Hvað er í morgunmatinn? Herbalife sjeik Uppáhalds málsháttur? Pass Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Tinni Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Lasagna sem ég bý til, konan kemur ekki nálægt því. Hver er uppáhalds bókin þfn? Allar Útkallsbækurnar. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... ...Ég færi pottþétt til Ástralíu. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Á það til að vera ekki alveg með á nótunum. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Frekja og yfirgangur. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Man.Utd af því að jólin 1987 fékk ég búninginn í jólagjöf frá mömmu og pabba. Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu mestar mætur á? Larry Bird besti alhliða körfuboltamaður sem uppi hefur verið (hafiði þið heyrt þennanáður?). Pálmi Sighvats, jafnvígur að dæma í fótbolta og körfubolta. Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Heim í Búðardal fyrir Odd vin minn og vinnufélaga. Hvervar mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þfnu mati? Mamma og pabbi. Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Veiðistöng, hníf og ísland er land þitt bókaflokkinn. Hvað er best í heimi? Vinir og fjölskylda. Nafn: Jón Brynjar Sigmundsson Árgangur: 1977, Besti árgangur frá upphafi í Gagganum. Fjölskylduhagir: Ergifturblóma- rósinni Berglindi Karlsdóttur Starf / nám: Sementsflutning abílstjóri hjá Aalborg-Portland ísland. Bifreið: VW Passat TDI árg. 2001 Hestöfl: 130 Hvað er í deiglunni: Halda jólin í faðmi fjölskyldunnar og hafa það gott. Hvernig hefurðu það? IÉg hef það bara fínt. Hvernig nemandi varstu? Ég held ég hafi bara verið ágætur nemandi en átti það til að hugsa of mikið um körfubolta ; í tímum. Óskar kennari (nú skólastjóri) getur staðfest þetta með körfuboltann. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? , Ljósgræna skyrtan og brúni ; leðurjakkinn. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Flugmaður. Hvað hræðistu mest? Að Vinstri grænirkomisteinhvern tíma til valda á íslandi. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Greatest Hits II með Queen. Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? j Crazy Little Thing Called Love, | Atli Björn Þorbjörnsson veit ástæðuna. Hverju missirðu helst ekki af i sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? 24 Besta bíómyndin? Die Hard myndirnar og James Bond Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? i, Bruce Willis, einfaldlega bestur. í Angelina Jolie, hún er með svo flott tattoo. Hvað fer helst í innkaupa-

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.