Feykir


Feykir - 20.12.2007, Side 9

Feykir - 20.12.2007, Side 9
48/2007 Feykir 9 Fallega skreytt jólaborðið þar sem rauðir, hvítir og gylltir litir ráða rikjum. Anna Lea Gestsdóttir í Blóma og gjafabúðinni ráðleggur lesendum Er jgóda veislu gjöraskal Á jólum drögum við oftar en ekki fram það fegursta úr okkar pússi bæði hvað varðar fæði, klæði og skrautmuni heimilisins. Þegar síðan klukkan slær sex á aðfangadagskvöld setjumst við að uppdekk- uðu jólaborðinu. Margir leggja mikið upp úr borðskreytingum þetta kvöld og búa til skreytingar, fægja silfrið og skrifa jafnvel smá skilaboð til þeirra sem sætin verma. Feykir fékk Önnu Leu Gestsdóttur í Blóma og Gjafabúðinni á Sauðárkróki til þess að sýna okkur hvernig dekka skuli hátíðarborðið. Sjálf segist Anna Lea vera hrifin af því að hafa mikið af ljósum en bætir við að síðan fari það eftir aldri ijölsk)'ldumeðlima hversu öruggt borðið þurfi að vera. -Skagfirðingar vilja nánast undantekningalaust fá rautt og gyllt á jólaborðið og í skreytingar. Heildsölurnar fyrir sunnan eru farnar að þekkja inn á þessar siði hér og tala unt það að þarna komi konan sem \rilji allt rautt og gyllt. Eins eru framleidd f)TÍr mig sérstök kerti í þessum litum írá Jöklaljósum, segir Anna Lea og brosir. Anna Lea hefur átt Blórna og gjafabúðina í þrjú ár en áður hafði hún unnið í búðinni á mörg sumur og oft með skóla ífá því hún var 16 ára. Það er því óhætt að segja að þrátt fvrir ungan aldur hafi hún ntikla reynslu. En skyldu skreytingar hafa breyst mikið á þessum árum. -Já, þær hafa gert það. Sérstaklega aðventukransarnir. Fólk kaupir alltaf meira og meira í einföldum stíl og þá alveg tilbúna sem ekkert þarf að gera við á næsta ári. Það er ekki eins mikil vinna í búðinni að föndra fyrir fólk eins og var hér áður. Hyasinturnar fara síðustu dagana Framundan er aðal annatíminn í búðinni sem, síðustu fimrn dagana fyrir jól segir Anna Lea, að allt fari á fullt. Þá komi fólk og kaupi hyasintur og önnur blóm auk þess sem margir séu á síðustu stundu með jólagjafainnkaupin. Hefúr þú lent í því að það sé komið eftir lokun á aðfangadag og þú beðin að redda gjöfinni sem gleymdist? -Já, það hefúr komið fjTÍr, minnisstæðasta dæmið er þegar eiginmaður einn kom frekar niðurlútur eftir hádegi á aðfangadag og átti þá eftir að finna eitthvað handa konunni. Því var að sjálfsögðu reddað. Ég bý í sama húsi og blómabúðin er staðsett í og því kemur það alltaf reglulega f)TÍr að bankað er upp á hjá mér ef eitthvað vantar. Því er að sjálfsögðu reddað með bros á vör. Mæðgur í rekstri Búðina á Anna Lea í samstarfi við móður sína, Sóleyju Skarphéðinsdóttur og segir Anna Lea að það hafa verið óvænt að það kom til. -Ég var að koma úr námi og vantaði vinnu, örlögin urðu síðan þannig að sama dag og ég fékk samþykkt tilboð í búðina fékk ég líka atvinnutilboð hjá Byggðastofnun. Ég vildi hvorugu sleppa og þá kom mamma inn í þetta nteð mér. Hún stendur síðan vaktina í búðinni þegar ég vinn og ég sé um allan rekstur. Er markaður fyrir blómabúð á Sauðárkrók? -Já, það er það. En með tveimur blómabúðum verður þetta óneitanlega erfiðara enda varla nógu stór markaður fyrir þær báðar, það er bara þannig. En það er engan bilbug á okkur af finna. Við erum með vinsælar merkjavörur sem fólk safnar í og heldur áfrant að kaupa. Ég legg mikið upp úr því að hafa nterkja vörurnar á sama verði og þær eru annars staðar svo það er engin ástæða til þess að keyra langan vel til þess að kaupaþessarvörur. Fólk verður að vera meðvitað um að versla í heimabyggð til þess að halda í þá þjónustu sem hér er í boði, segir Anna Lea að lokum. Takið eftirhversu skemmtilegt erað merkja hveijum og einum sitt sæti. Falleg grenigrein með skrauti gerirfallegan svip á borðstofuna. Fallegur borðbúnaður setur punktinn yfir i-ið. Það getur vehð gaman að kaupa sér eitthvað smálegt til þess að fullkomna veisluborðið.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.