Feykir - 10.04.2008, Page 2
2 Feyklr 14/2008
Hofsós
Hofsóskirkja fær
veglega peningagjöf
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi
Til minningar um Grím Gíslason
í hverju samfélagi áöur fyrr
voru öflug kvenfélög sem
störfuöu af krafti til heilla
sínu umhverfi. Eitthvaö
hefur dregiö úr mesta
kraftinum því starfskraftar
kvenna eru eftirsóttir vföa í
félagsstörfum. En Hofsós
nýtur góös af Kvenfélaginu.
Laust fyrir jólin 2007
boðuðu kvenfélagskonur í
Hofsósi og nágrenni
sóknarnefnd staðarins á sinn
fund og færðu Hofsóskirkju
500.000 krónur að gjöf, áður
voru þær búnar að gefa
kirkjunni 100.000 krónur.
Einnig lögðu þær 100.000 í
væntanlegt íþróttahús á
staðnum. Þetta eru miklar og
höfðinglegar gj afir hjá félaginu.
Megnið af innkomu
Kvenfélagsins fer í menningar
og líknarmál og er vert að
þakka þeim þeirra störf.
Rmmtudaginn 3. apríl var
haldin aö Húnavöllum árleg
framsagnarkeppni grunn-
skólanna í Húnavatnsþingi.
Keppnin er haldin til
minningar um Grím
Gíslason frá Saurbæ í
Vatnsdal. Keppendur voru
tólf og lásu þrisvar hver.
Lesinn var kafli úr sögu
eftir Jón Sveinsson og síðan
kvæði eftir Stein Steinarr og
að lokum kvæði að eigin vali.
Aöalfundur kúabænda í
A-Húnavatnssýslu var
haldinn á dögunum. Á
fundinum flutti Gunnfríður
Hreiðarsdóttir landsráðu-
nautur í nautgriparækt
erindi um skýrsluhald og
nautgriparækt og sfðan
hélt Baldur H. Benjamíns-
son framkvæmdastjóri
Landsambands kúabænda
erindi og fór yfir stööu
greinarinnar í landinu.
Afurðahæsta búið árið
2007 í A-Húnavatnssýslu var
Brúsastaðir með 6.613 kg eftir
árskúnna. í öðru sæti var Hlíð
með 6.156 kg og í þriðja sæti
var Höskuldsstaðir með 6.014
kg. Afurðahæstu kýr á svæðinu
á síðasta ári voru: Sóley frá
Steinnýjarstöðum meðlO.956
kg. Heiðbrá frá Hnjúki með
9.460 kg og Villa frá
Auðólfsstöðum með 9.353 kg.
Á fundinum lýstu fundarmenn
yfir miklum áhyggjum af
Allir keppendur stóðu sig
vel og hlutu lof dómara og
áheyrenda. Það var því erfitt
verk að úrskurða hverjir hefðu
staðið sig best. Sigurvegarar
keppninnar að þessu sinni
voru: 1. Eydís Sigurðardóttir,
Húnavallaskóla. 2. Alma
DröfnVignisdóttir,Höfðaskóla
3. Árný Dögg Kristjánsdóttir,
Grunnskólanum á Blönduósi.
Sérstök aukaverðlaun fyrir
vandaðan lestur hlutu þau:
hækkandi verði á aðföngum
og samþykkti fundurinn
eftirfarandi ályktun um
kjaramál bænda. “Aðalfundur
kúabænda í A-Hún. haldinn
19/3 2008 lýsir þungum
áhyggjum af ört hækkandi
verði á aðföngum tO búrekstrar,
einnig hefur fjármagns-
kostnaður hækkað stórfellt.
Fundurinn telur brýnt að
leiðrétta afurðaverð til
samræmis við hækkanir þessar
strax, svo stéttinni verði búin
viðunandi lífskjör og mat-
vælaöryggi þjóðarinnar verði
tryggt”
Stjórn Félags kúabænda í
A-Húnavatnssýslu skipa
Magnús Sigurðsson á Hnjúki
sem jafnframt er formaður,
Jóhannes Torfason á Torfalæk,
Gróa Lárusdóttir á
Brúsastöðum, Jóhann
Bjarnason á Auðólfsstöðum
og Jens Jónsson í
Brandaskarði.
Bragi Hólm Birkisson, Húna-
vallaskóla og Kristín Karen
Karlsdóttir, Grunnskóla
Húnaþings vestra.
Húnavatnshreppur
Kaupirí
Hveravalla-
félaginu
Húnavatnshreppur hefur
ákveöiö aö nýta sér
forkaupsrétt sinn aö hluta
Bjarka Kristjánssonar f
Hveravaliafélaginu.
Var þetta ákveðið á
síðasta hreppsnefndarfundi
Húnavatnshrepps þar sem
Björn Magnússon var gestur
fundarins. Kynnti Björn þar
aðalfund Hveravallafélags-
ins sem haldinn verður 17.
apríl n.k.
Skagaströnd
Biopol bætir
viðstarfs-
manni
Biopol á Skagaströnd
hefur borist liöstyrkur en
fyrirtækiö réð til Ólafíu
Lárusdóttir líffræöing til
starfa á dögunum.
Ólafía er frá Mosfellsbæ
og flytur því búferlum á
Skagaströnd til þess að fara
að vinna hjá Biopol. Eru
starfsmenn fyrirtækisins
sem stofnað var sl. sumar
því orðir tveir talsins. Helstu
verkefni fýrirtækisins eru
rannsóknir á hrognkelsum.
Húnavatnshreppur
Tveir smiðir
byggivið
Hamarsbúð
Byggöarráö Húnaþings
vestra hefur ákveðiö aö
ganga til samninga viö Tvo
smiði ehf. um viðbyggingu
Hamarsbúöar.
Verksamningurinn tekur
til allrar smíðavinnu og
efniskostnaðar vegna smíða
sbr. teikninga frá Hauki
Árnasyni byggingatækni-
fræðingi. Utan samnings
þessa eru vatns- og raflagnir.
Verkkostnaður er alls kr.
3.650.000- með vsk.
Leiðari
Ég heiti Guðný
og ég er
landsbyggðarhrokagikkur
Ég fór eitthvað að renna yfir gamla leiðara á dögunum
og komst að þeirri niðurstöðu að ég er ekki að verða
neitt skárri en þessir 101 Reykjavík hrokagikkir sem ég
hneykslast svo oft og iðulega á. Fólk sem opinberlega
lýsir vanþóknun sinni á landsbyggðinni og öllu sem
hún stendurfyrir. Fólki sem sér ekki útfyrir nafla eigin
alheims. Nema hvað ég er á hinum endanum. Ég skil
ekkifólk sem velur og kýs að búa í umferðahnút, háu
fasteignaverði og almenni stressi meðan tækifærin
bjóðast hægri vinstri úti á landsbyggðinni og erfiðlega
gengur að manna störfþar nema leita útfyrir
landssteinana. Ég veltiþvífyrir mér smá stund hvað
ég ætti að gera með þessa uppgötvun mína. Á ég að
draga í land og hætta þessum hroka en komst að þeirri
niðurstöðu að það þýði víst lítið. Ég verði bara að
sættast við mín Þingeysku gen og uppeldi í nágrenni
Akureyrar og viðurkenna staðreyndir. Því segir ég hátt
og skýrt á hverjum morgniþegar ég mæti myglaðri
ásýnd minni í speglinum: „Ég heiti Guðný og ég er
landsbyggðarhrokagikkur“. Ég heflíka tekið þá ákvörðun
að vera bara nokkuð sátt viðþetta því ég held að efvið
tölum svæðið okkar og landsbyggðina í heild upp sjálfþá
gerir það enginn annarfyrir okkur.
Landsbyggðin lifi - Norðurland vestra best í heimi.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjórí & abyrgdamiadur
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
pall@nyprent.is © 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Leiðrétting
í frétt á forsíöu Feykis í
lióinni viku var Læknafélag
íslands aó ósekju dregið
inn í deilu milli lækna og
forstöðumanns.
Heilbrigðisstofnunarinnar
á Blönduósi. Heimildarmenn
Feykis vitnuðu í meint afskipti
Læknafélags íslands að
málinu og að þrýstingur væri
frá þeirn um að læknarnir
stæðu fast á sínu. Hið rétta er
að Læknafélag íslands hefúr
engin afskipti haft af málinu
önnur en þau að aðstoða
læknana sem eftir því hafa
óskað með sín kjaramál. Þá
átti heimildarmaður Feykis
við að þrýstingur hefði verði
innan læknasamfélagsins og
tölvupóstar manna á milli um
að standa saman að þvi að
sækja ekki um stöðu á
Blönduósi og átti Læknafélag
íslands engan hlut að því
máli. Er Læknafélag íslands
beðið velvirðingar á þessum
mistökum. Að öðru leyti
stendur blaðið við frétt sína
frá þvi í síðustu viku.
Kúabændur í A - Húnavatnssýslu
Hafa áhyggjur
af hækkandi verði
á aðföngum