Feykir - 10.04.2008, Síða 4
4 Feyklr 14/2008
Landbúnaðarsýning og Bændahátíð
SveitaSæla 2008
Landbúnaðarsýning
& Bændahátíd
Sauðárkróki 15. -
17. ágúst
Undirbúningur fyrir
SveitaSælu 2008 er
hafinn í Skagafirði.
Sýningin er nú haldin í
fjórða sinn í reiðhöllinni
Svaðastöðum og er unnið
að því að gera sýninguna
glæsilegri en nokkru sinni
fyrr. Síðasta hátíð sló öll met,
þegar á fimmta þúsund gesta
allsstaðar af landinu sóttu
sýninguna heim.
Stefnt er að því að stækka
umfang sýningarinnar en
hún verður í grunninn
með svipuðu sniði og fyrri
ár nema hvað ákveðið
hefur verið að þematengja
sýninguna og tileinka hana
íslenska hestinum þetta árið.
Stefnt verður að því að kynna
allt milli himins og jarðar
sem tengist hestamennsku
og landbúnaði almennt,
jafnframt sem vinsælir
dagskrárliðir verða áfram á
sínum stað. Mikilla vinsælda
hefur notið að fá að sækja
nokkur bú heim og verður
einnig boðið upp á það í ár.
Víst er að nóg verður við að
vera fyrir börn og fullorðna
víðsvegar um Skagafjörð.
Sýningarsvæði reiðhall-
arinnar er um 1700 fermetrar
og nóg pláss fyrir fyrirtæki
sem vilja kynna vörur sínar
og einnig er rúmgott útisvæði
við reiðhöllina. Vélasýningin
í fyrra var sú langstærsta sem
haldin hefur verið til þessa og
höfðu aldrei fyrr verið saman
komnir á eina sýningu allir
helstu búvélasalar landsins.
Stjórn sýningarinnar
hefur ráðið til sín tvo
verkefnisstjóra en það
eru þau Eyþór Jónasson,
hestafrömuður og Rósa
María Vésteinsdóttir BA
nemi við Ferðamáladeild
Hólaskóla en þau munu
hafa yfirumsjón með undir-
búningi sýningarinnar.
Nánari upplýsingar ogfréttir
um SveitaSœlu 2008 í Skagafirði
má nálgast á www.horse.is/
landbunadarsyning.
Þórður Ingi Bjarnason skrifar
Sjálfbær þróun í
alþjóðlegu umhverfi
Umhverfismál eru
farin að skipta okkur
mun meira máli í dag
en þau gerðu fyrir
nokkrum árum. Hluti
af umhverfismálum
er góð umhverfisstjórnun
og þar er sjálfbær þróun
mikilvægur þáttur.
Hugtakið sjálfbær þróun
er hægt að túlka á marga vegu
og segja má að sjálfbær þróun
hafi verið ákveðin málamiðlun
milli sjónarmiða þeirra sem
töldu náttúruna í hættu vegna
athafna mannsins og hinna
sem bentu á að hagvöxtur og
efnahagsleg uppbygging væri
forsenda bættra lífsskilyrða
mannsins á jörðinni. Fyrst
var farið að tala um hugtakið
sjálfbæra þróun árið 1987 í
skýrslu Brundtland, fyrrum
forsætisráðherra Noregs. Þar
var sjálfbær þróun skilgreind
á eftirfarandi hátt: „Þróun
sem gerir okkur kleiff að mæta
þörfum okkar án þess að stefna
í voða möguleikum komandi
kynslóða á að mæta þörfúm
sínum."
Á heimsráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um umhverfi og
þjóðir í Ríó de Janerio árið 1992
var talað um heildaráætlun
hvers þjóðfélags fram á 21.
öldina. Áætlunin snýst um
þrjár stoðir; umhverfismál,
efnahagslega og félagslega
þætti. Staðardagskrá21 varðtil
íkjölfarRíófundarins. Tveimur
árum síðar var haldin ráðstefna
á Lanzarote á Kanaríeyjum
um sjálfbæra ferðamennsku.
Þar var aðaláherslan lögð á
stjórnun og sldpulag innan
ferðaþjónustunnar. í fyrstu
grunnreglu í Ríóyfirlýsingunni
segir: „Sjálfbær þróun snýst
utn manninn og möguleika
hans. Fólk á að geta starfað
og lifað heilbrigðu líft í sátt
við náttúruna". Ýmsar skil-
greiningar hafa verið gerðar
um sjálfbæra þróun en sú
sldlgreining sem Alþjóðlegu
ferðamálasamtöldn WTO hafa
komið með er að:
Sjálfbœr þróun í ferða-
mennsku mœtir þörfum ferða-
manna og heimamanna en
stuðlar um leið að verndun og
auknum markaðstœkifœrum til
framtíðar. Það er fyrirséð
að sjálfbær þróun mun verða
ríkjandi þáttur í stjórnun
og ákvarðanatöku varðandi
auðlittdir og náttúruverðmæti í
framtíðinni.
Markmiðin eru aðfullnægja
efnahagslegum, félagslegum
og fagurfrœðilegutn þörfum
á þann hátt að varðveita og
viðhalda menningu, nauðsyn-
legum vistfræðilegum ferlum,
líffræðilegum fjölbreytileika og
nauðsynlegum lífsskilyrðum.
Mörg ferðaþjónustufyrir-
tæki hafa komið sér upp
umhverfisstefnu með það
að leiðarljósi að vinna að
sjálfbærri þróun. Með því að
nýta sér hugmyndafræði um
sjálfbæra þróun þá styrkja
viðkomandi fyrirtæki önnur
fyrirtæJd í sveitarfélaginu með
því að versla allt sem hægt er
að nálgast á viðkomandi svæði.
Með því að vinna skipulega
að sjálfbærni er hægt að draga
úr rekstrarkostnaði fyrirtækja.
Hluti af sjálfbærri þróun er
að vera með floldcun á sorpi,
draga úr því sem hent er og
er ekld endurvinnanlegt. Allt
sem hægt er að endurvinna
á að flolcka til að stuðla enn
meira að sjálfbærni.
Vitund manna um sjálfbæra
þróun hefur vaxið og er alltaf
að verða sterkari og virðing við
umhverfið og náttúru farið að
skipta fólki mun meira máli en
áður var.
Þriðjudaginn 15 apríl er
lokafundurHáskólafúndaraðar
haldinn á Hólum í Hjaltadal.
Þar er yfirskriftin Sjálfbær
þróun: íslensk náttúra, mentting
og þekking í alþjóðasamhettgi.
Ég hvet alla sem hafa kost á því
að mæta og heyra sérfræðinga
á þessu sviði tala um sjálfbæra
þróun frá ýmsum greinum
atvinnulífsins.
Þórður Ingi Bjarnason
Höfundur er nemi við
ferðamáladeild Háskóians á Hólum
ogsitur í undirbúningsnefndfyrir
háskólafundinn á Hólum.
( ÁSKORENDAPENNINN 1
Sigmundurjóhannesson, bóndi
Fréttaskot úr framtíóinni
Nýráðinn blaðamaður
Feykis hafði samband
og skoraði á mig að
skrifa eitthvað á blað
sem hægt væri að birta
undir fyrirsögninni
„áskorendapenninn"
og síðan ætti ég að
skora á einhvern
á mínu svæði, þ.e.
austan vatna , til að
rita næsta pistil.
Þetta mátti vera
um hvað sem væri,
þó innan eðlilegra
siðgæðismarka og
svona hæfilega langt.
Það mætti halda að
ríkti mikil gúrkutíð á
fréttnæma atburði hér
um slóðir. En til að
hughreysta blaðamann
og fylla tilhlökkun, ætla
ég að velta upþ nokkrum
fréttaskotum sem nánast
er borðleggjandi að
muni eiga sér stað, og
þá prýða forsíðu Feykis
síðar á árinu.
Karlakórinn
Heimir kemst í
hann krappan í
Moskvu
Sigfús í Álftagerði slítur
raddband í upphitun
fyrir tónleika á Rauða
torginu. Rússneskir
læknar kalla nú ekki allt
ömmu sína og tekst á
aðeins örfáum mínútum
að græða í hann gömul
axlabönd sem Guðmann
hafði verið með á
buxunum sínum. Tókst
Sigfúsi að ná í tæka tíð
til að flytja aðalnúmer
kvöldsins, þ.e. „Áfram
veginn" og ætlaði
fagnaðarlátunum aldrei
að linna.
Nýtt útibú
Sparisjóður
Skagafjarðar-,
Siglufjarðar-,
Múlasýslu-,
Hólahrepps-, o.s.f.v.,
er að opna afgreiðslu
á Hofsósi. Ekki er Ijóst
hversu margir munu
starfa þar, eða hvers
konar starfssemi muni
fara þar fram, fyrr en
kærufrestur rennur út í
lok mánaðarins.
Tafir á
sundlaugarfram-
kvæmdum á
Hofsósi
Allt er nú stopp við
uppgröft úr grunni fyrir
nýju sundlaugina, eftir
að komið var niður
á beinagrind fremst
á sjávarbakkanum.
Talið er nær öruggt
að þarséu komnar
líkamsleifar Grettis
Ásmundarsonar. Mesta
athygli vakti mjög
heilleg ogvel varðveitt
Speedo sundskýla,
sem bendirtil að þetta
vörumerki er mun eldra
en talið var áður.
Jónsmessumótið
í knattspyrnu á
Hofsósi
ðvænt úrslit urðu
þegar stjörnuprýtt lið
Baltasar Kormáks sem
meðal annars skartaði
þeim Friðriki Þór og
David Beckham,
tapaði úrslitaleiknum
fyrir Llt ogsuður- liði
Gísla Einarssonar.
Það var hinn magnaði
afreksmaður Þórhallur
Ásmundsson sem
skoraði sigurmarkið
beint úr hornspyrnu
eftir að venjulegum
leiktíma var lokið.
Var það svokallaður
bananabolti efst í
hornið fjær.
Eins og þið sjáið
lesendur góðir á
fullt affréttnæmum
atburðum eftirað ske
á árinu, munið því
í öllum bænum að
borga áskriftina svo
Eg skora á Einar
Þorvaldsson
tónlistarkennara á
Hofsósi til að koma
með næsta pistil.