Feykir - 10.04.2008, Blaðsíða 6
6 Feyklr 14/2008
Rafmagnsverkstæðiö Neistinn ehf á Skagaströnd
hefur veriö starfrækt frá árinu 1970 en fyrirtækið er í
eigu Hallbjörns Björnssonar. Hjá fyrirtækinu starfa
þrír rafvirkjar allir með meistararéttindi. Strákarnir á
Neistanum eru þekktir fyrir húmor, hugvit og
einstakan áhuga á formúlunni.
Fyrírtæki vikunnar
Neistinn ehf.
á Skagaströnd
Hallbjöm hefur rekið Neistarm í 38 ár.
Hjalti vinnur við pressu í amerískan ísskáp.
Þegar teikning kemur án Ijósaplans parf að redda sér og það kunna
strákarnir á Neista betur en fleisir.
Bjössi einbeittur á svip enda ekkert grína að komast í stuð.
Aðspurður um hvort Neisti
hafi alltaf verið á sömu
kennitölu segir Hallbjörn að
í árdaga fyrirtækisins hafi
kennitölur ekki tíðkast en
upphaflega hafi þeir verið
tveir sem ráku fyrirtækið
saman. Hinn hætti árið
1980 og eftir það rak
Hallbjörn fyrirtækið á eigin
nafnnúmeri eða alit til
ársins 1996 er fyrirtækinu
var breytt í formlegt
einkahlutafélag.
Hjá Hallbirni starfa í dag
Björn sonur hans og Hjalti
Reynisson, frændi þeirra
feðga. Yngri rafvirkjarnir tveir
lærðu hjá Hallbirni á sínum
tíma auk þess sem þeir hafa
báðir nælt sér í meistara-
réttindi. Saman mynda þeir
því flott teymi sem getur tekið
að sér svo til allt sem viðkemur
rafmagni, sé hluturinn ekki
til, fmna þeir hann bara upp.
En þeir félagar fundu upp
rafstýrðan búnað í kirkju-
klukkuna á Skagaströnd og í
dag situr meðhjálparinn með
fjarstýringu í vasanum og
stýrir með henni hringingum
klukkunnar. - Búnaðurinn í
kirkjunni var bilaður og við
fórum að pæla aðeins í þessu
og enduðum með þennan
búnað. Hann hefur vakið
töluverða athygli og er meðal
annars bent á hann inni á
heimasíðu Kirkjustofu, segir
Hallbjörn hógværðin upp-
máluð. - Við höfum hins vegar
ekki gert fleiri enda höfum
við ekki mikinn tíma til þess
að fylgja þessu eftir með
markaðsstarfi og erum því
svolítið í að hanna hitt og
þetta í okkar frítíma, en
setjum það síðan bara upp á
hillu þegar lausnin er komin,
bætir hann við.
Teiknað á staðnum
Uppfinningar eru ekki það
eina sem strákarnir leysa vel
af hendi en þeir er vinsælir í
hvers lags vinnu og er
blaðamann bar að garði voru
þeir félagar að draga í og vinna
í uppsetningu ljósa og
rafmagns í skrifstofum sem
verið er að koma upp í gamla
kaupfélagshúsinu á Skaga-
strönd. Teikningin var klár en
inn á hana vantaði ljósaplan
og það leystu strákarnir með
því að klippa niður plastbúta
og leggja inn á teikninguna
þar sem þeir töldu að heppilegt
væri að fá ljós. Frumleg lausn
á ferðinni en svínvirkar. Á
verkstæðinu má einnig sjá
heimilistæki sem bíða
viðgerðar auk þess sem Hjalti
hefur sérhæft sig í viðgerðum
á amerískum ísskápum.
Eruð þið líka í að teikna
rafmagnsteikningar? -Já, við
gerum í raun allt sem
viðkemur rafmagni og eru
teikningar þar með taldar. Við
höfum allir leyfi til þess að
teikna og gerum það mikið því
það eru margir sem eru að
byggja eitthvað og ekki til í að
eyða miklum peningum í
hönnun og því erum við oft að
teikna þetta og hanna á staðn-
um sem off eru skemmtileg-
ustu verkin. Við lögðum eitt
sinn rafmagn í rækjuvinnslu
þar sem ekki var til eitt blað af
teikningum og þurfti að hanna
allt rafmagn upp á nýtt. Við
unnum þá vinnu á staðnum
og höfðum með okkur kallana
sem síðar myndu vinna í
húsinu. Sú vinna varð mjög vel
heppnuð og skemmtileg.
Nú hafði þið unnið töluvert í
togurum og bátum. Finnið
þið fyrir samdrætti í sjávar-
útvegi? -Nei, hann bitnar ekki
á okkur. Þessi grein hefur
breyst svo mikið frá því að ég
til dæmis byrjaði í rafmagni að
það er alltaf að koma eitthvað
nýtt inn. í dag er mun meiri
lagnavinna við öll hús og
skrifstofur þar sem gera þarf
ráð fyrir öllum fjarskipta-
lögnum inn í húsið og því
hefur sú vinna komið í staðinn
fyrir það sem þá kannski hefur
dottið út. Rafmagnsvinnan er
svo fjölbreytt og skemmtileg.
Við mætum hér á morgnana
og búumst við að dagurinn sér
fyrirsjáanlegur en förum síðan
kannski heim að kvöldi og
höfum verið að vinna allan
daginn í einhverju allt öðru en
við höfðum ætlað. Eins fáum
við núna meira af heimilis-
tækjum í viðgerð því þegar
kreppir að gerist það sjálfkrafa
að fólk lætur gera við það
gamla í stað þess að henda því
alltaf og kaupa nýtt.
Nú hvað togarana snertir
þá hefur vinnan í þeim aukist
frekar en hitt eftir að Fisk
Seafood keypti Skagstrending.
Við höfum unnið mikið í
rafmagni í Örvari en þegar
hann var tekinn í ísfisk þá
vorum við í tvo mánuði að
vinna þar. Síðan aftur í fyrra
þegar restin var tekin. Það er
mikið og flókið rafkerfi í svona
frystiskipi sem reynir á.
Snarbrattir rafvirkjar
Auk hefðbundinnar rafvirkja-
vinnu sjá strákarnir um að
selja eldavélar og fleiri raftæki
en helstu birgjar þeirra eru í
Reykjavík og á Akureyri. -Við
pöntum fyrir fólk en liggjum
ekki með lager síðan er hægt
að kaupa hjá okkur klær og
þessar algengu rafmagns-
vörur.
Auk strákanna þriggja er
systir Hallbjörns í hlutastarfi
hjá fyrirtækinu og sér hún
umbókhald það má því segja
að um sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki sé að ræða.
Vinnusvæðið er stórt, öll
Austur-Húnavatnssýsla auk
þess sem þeir fara reglulega
yfir á Sauðárkrók að vinna
fyrir Fisk Seafood. Þá eiga
þeir hlut í stórri skemmu
ásamt Vélaverkstæði
Skagastrandar og Trésmiðju
Helga Gunnars, en þessi þrjú
verkstæði hafa tekið höndum
saman um bátaviðgerðir
undir nafninu Bátanaust ehf.
Hver er verkefnastaðan
framundan? -Hún er góð, þó
er það gallinn við þessa
starfsemi að maður sé aldrei
langt fram í tímann og hún
breytist eiginlega stöðugt.
Þannig að þið eruð bara
brattir? -Snarbrattir alveg
hreint, er svarið.
Kaffistofa þeirra félaga er
fánum prýdd og formúlan
skipar heiðurssess. Svona til
þess að hafa móralinn í lagi
eru þeir bara sammála um
hver sé bestur og alveg með
það á hreinu hver það er sem
ræður hverju. Hjalti á
lokaorðin; Bjössi er auðvitað
sonur forstjórans svo hann er
aldrei skammaður en að öðru
leyti er þetta mjög einfalt.
Hallbjörn ræður pólitíkinni,
Bjössi ræður formúlunni og
ég ræð öllu sem ég vil ráða,
segir Hjalti og uppsker
skellihlátur vinnufélaganna.