Feykir - 10.04.2008, Síða 7
14/2008 Feyklr 7
Ingunn Kristjánsdóttir söngkona með meiru
Alin upp í söng
Ingunn Kristjánsdóttir er ung og upprennandi söngkona
á Sauðárkróki. Ingunn hefur, þrátt fyrir ungan aldur,
vakió athygli fyrir frammistöðu sfna í söngkeppnum og
framkomu á skemmtunum. Ingunn mun verða fulltrúi
FNV f Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður
á Akureyri á laugardagskvöld. Feykir forvitnaðist um
bakgrunn og framtíðardrauma Ingunnar.
-Égerfædd 12. júlíárið 1990
á Sauðárkróki. Foreldrar mínir
eru Kristján Örn Kristjánsson
lögregluþjónn og Sigríður
Margrét Ingimarsdóttir
þroskaþjálfi. Ég ólst upp í
Kristjánsklaufinni í húsi sem
heitir Hyrna. Þar var gott
að búa, góðir nágrannar og
stutt upp á Nafirnar þar sem
ég lék mér oft. Við fórum oít
í hjólatúra á Nöfunum og í
brekkunum fyrir ofan húsið
voru margir steinar sem mér
þóttu fallegir og kom mér
upp steinasafni. Enn þann
dag í dag stend ég mig að því
að stinga steinum í vasann,
rifjar Ingunn upp aðspurð um
uppruna sinn.
Spilarðu á einhver hljóðfæri?
-Ég lærði á blokkflautu eins
og margir þegar ég var lítil
og eitthvað lærði ég á píanó
en ég er svo óþolinmóð að
æfingarnar urðu ekki eins og
skyldi. En ég er reyndar nýhætt
að æfa á gítar til að einbeita mér
að söngnum. Ingunn er alin
upp í söng og hefur hann fylgt
henni alla tíð? -Mamma hefur
verið að læra söng í gegnum
tíðina og heíur leiðbeint mér
heilmikið og Dóra amma er
í kirkjukórnum, Ingimar afi
syngur líka mikið og já, ég hef
gaman að því að syngja. Við
fluttum til Reykjavíkur þegar
ég var 7 ára og þar fór ég í
söngskóla Siggu Beinteins. Ég
nennti reyndar ekki að æfa mig
mikið, vildi bara syngja sjálf.
Þar var tekið upp myndband
af mér syngjandi en mér finnst
óþægilegt að horfa á sjálfa mig
á myndbandi og geri það helst
ekki.
Byrjaðir þú snemma að
koma fram opinberlega? -Ég
söng og lék í skólaleikritum
og þegar ég var þrettán ára
var ég beðin um að syngja á
skemmtun með Geirmundi
Valtýssyni upp á Sjúkrahúsi
og þá fór boltinn að rúlla.
Fermingarárið mitt söng ég
eitt lag á afmælisdiski hjá
Geirmundi og svo hringir
hann stundum í mig þegar
hann vantar söngvara t.d. á
jólaböll og svoleiðis.
Auk þess að syngja
með Geirmundi og
víðar var Ingunn hluti af
stelpnahljómsveit Sorins
Lazar sem stofnaður var hér
fyrir nokkrum árum og hann
ætlaði að koma á framfæri.
-Við vorum fimm stelpur í
hópnum og gáfum út jóladisk
en einhverra hluta vegna
varð ekkert meira úr þessu
og við hættum. En þetta var
gaman og ég lærði heilmikið
um stúdíóvinnu og tækni í
kringum músíkina.
Fulltrúi FNV í
Söngkeppni fram-
haldsskólanna
Þrátt íyrir að draumurinn
um stúlknahljómsveit yrði
ekki að veruleika lagði
Ingunn ekki upp laupana
og hefur hún verið áberandi
í söngkeppnum heima í
héraði. -Já, ég söng bakrödd í
Dægurlagakeppninni í Sælu-
vikunni árið 2005. Árið 2006
söng ég lagið „Mikki refur“
eftir Árna Gunnarsson og
það lag bar syngur úr býtum.
í Sæluvikunni í fyrra var
söngskemmtun í staðin fyrir
keppni og ég fékk að vera með
þar. Það var svolítið öðruvísi
fílingur meira frjálsræði og
minna stress. Og núna um
daginn var söngkeppni í
Fjölbrautaskólanum og þar
sigraði ég með lagið „Svo
smá“ með hljómsveitinni
Heart með íslenskum texta
eftir Davíð Þór Jónsson. Með
það lag fer ég í Söngkeppni
framhaldsskólanna sem
fram fer 12. apríl á Akureyri.
Keppninni verður sjónvarpað
beint hjá Ríkissjónvarpinu, og
ALLIR að kjósa rétt!!!, segir
Ingunn spennt.
Hefurðu verið í söngnámi
eftir skólann hjá Siggu
Beinteins? -Já, ég byrjaði í
Tónlistarskóla Skagafjarðar
en flutti svo með Alexöndru
í skólann hennar í Villa Nova
núna í vetur. Þar læri ég
klassískan söng og tónfræði
sem mig vantaði. Ég tek þátt
í uppfærslu skólans á dagskrá
um æfi og störf Sigvalda
Kaldalóns sem sýnt verður í
Sæluvikunni.
Verslunareigandi
Við skiptum yfir í léttara hjal
en Ingunn er ein af eigendum
Topphesta á Sauðárkróki og afi
hennar þekktur hestamaður.
Það er því ekki hægt annað
en spyrja hana hvort hún hafi
ekki smitast af hestabakteríu
afa síns.
-Sem krakki var ég mikið
að hjálpa til í reiðskólanum
hjá Ingimar afa. Þegar við
áttum heima í Reykjavík
hlakkaði ég mikið til að
komast norður á sumrin í
hrossin og íþróttirnar. Ég var
mjög fegin þegar foreldrar
mínir létu undan þrýstingi
frá mér og fluttu norður
aftur. Núna er ég ekki mikið
í hestum, lauma mér stundum
á bak, en á sumrin hjálpa ég
stundum til í reiðskólanum
og hestaferðunum. Þá tók ég
þátt í að setja á stofn hesta- og
gæludýraverslun sem heitir
Topphestar. Við erum fjögur
sem eigum verslunina, þ.e. ég
og kærastinn minn sem heitir
Ebbi, Inga Dóra systir mömmu
og Ingólfur maðurinn hennar.
Ég kem nú reyndar lítið
nálægt þessu en ég kem ef það
vantar hjálp, annars er ég að
vinna annarsstaðar. Ég er að
vinna á N1 og svo í sjoppunni
á Mælifelli um helgar.
Þú nefndir íþróttaiðkun
áðan, stundar þú íþróttir? -Ég
var mikið í íþróttum þegar ég
var yngri sérstaklega í sundinu.
Fjölskyldan hefur verið
viðloðandi sundið í gegnum
tíðina bæði pabbi og Kristján
Hansen langafi, en þetta tengdi
okkur saman. Hann fylgdist
vel með mér í gegnum sundið,
svarar Ingunn og ég spyr hana
út í afrek hennar í sundinu.
-Ég átti einu sinni metið í
Kerlingasundinu sem er sam-
bærilegt við Grettissundið
hjá strákunum. Metið stóð í
nokkrar mínútur en það var
bætt af konu sem synti í næsta
riðli á eftir mér. Annars komst
ég oft á verðlaunapall bæði hér
heima og utan héraðs meira
að segja á Landsmóti. Annars
ætlaði ég aldrei að verða
afrekskona í sundi, hafði bara
gaman af því að synda.
Foreldrar mínir mín
fyrirmynd
Hvert stefnirðu í framtíð-
inni? -Ég er núna á öðru ári í
Fjölbrautaskólanum og stefni
að því að klára tvær brautir
þar, þ.e. fél-fél og fél-sál. Ég
ætla að fara í háskóla en er
ekki enn búin að ákveða hvað
ég ætla að verða, það verður að
koma í ljós. En ég veit það fyrir
víst að ég ætla að læra meira
í söng. Er það þá klassíski
söngurinn sem verður ofan
á? -Ég hef mjög gaman af því
að syngja dægurlög en það
er erfitt að lifa á söng, þetta
er erfiður bransi. En klassíkin
er líka skemmtileg og aldrei
að vita hvert söngurinn leiðir
mann. Svo bíður maður bara
eftir stóra tækifærinu.
Áttu þér einhverjar fyrir-
myndir í söngnum? -Nei,
ég er svo skrítin að þegar ég
hlusta á músík þá hlusta ég
eftir laglínunni og textanum
og læri þau strax en veit
kannski ekkert hver er að
syngja. En ef ég ætti að nefna
einhverja þá hafa foreldrar
mínir haft mest áhrif á mig.
Mamma hefur leiðbeint mér
mikið í söngnum og pabbi
með sviðsframkomuna en
hann er vanur leikari með
Leikfélaginu og var sjálfur í
hljómsveit. En það er engin
sérstök fræg fyrirmynd hjá
mér.
Ef þú fengir eina ósk
uppfyllta, hver yrði hún?
-Mig vantar fleiri klukkutíma
í sólarhringinn, svarar
Ingunn og hlær um leið og
hún minnir sitt heimafólk á
Norðurlandi vestra á söngva-
keppnina í sjónvarpinu á
laugardagskvöld. Orð sem
vert er að taka undir.
Áfram Ingunn!