Feykir - 10.04.2008, Side 8
8 Feykir 14/2008
( ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Jón Örn og Þórdís Erla kokka
Einiberjagrafinn
lambavöóvi
Heiðursparið Jón Örn og Þórdís Erla á Blönduósi urðu
við áskorun Erlu og Óla og eru matgæðingar vikunnar.
Þau skora á hjónin á Sveinsstöðum þau Óla Magg
og Ingu Sóley og munu uppskriftir þeirra birtast að
hálfum mánuði liðnum.
FORRÉTTUR
Einiberjagrafinn
lambavöðvi
með melónu- og
sinnep/limesósu
1 kg. lambavöðvi (snyrtur
ogjafnþykkur ca. 5 cm)
V2 dl. sykur
V2 dl. gróft salt
1 V2 msk. grófmalaður
svartur pipar
1 tsk. mulin einiber
Öllu kryddinu blandað saman.
Kjötið sett í plastpoka og
kryddblöndunnihelltípokann,
hnýtt fyrir og hrist vel saman.
Eða leggið kjötið í bakka og
stráið kryddblöndunni vel
undir og yfir kjötið og breiðið
plastfilmu yfir. Kjötið látið
liggja í kæli í ca. 3-4 daga. Takið
kjötið úr kælinum og skafið
kryddið af og skerið kjötið í
örþunnar sneiðar með beittum
hníf. (gott er að frysta kjötið og
skera það í áleggshníf). Kjötið
lagt í þunnum sneiðum á disk
eða rúllað upp í rós. Borið
fram með þunnum sneiðum
af hunangsmelónu og sinnep,
limesósu.
AÐALRÉTTUR
Grilluð bleikja
1 bleikja, 800 gr. -1 kg
10-15 timjangreinar
Rifinn börkur af 1 sítrónu
1/2 tsk. kóríanderfrœ,
steytt (má sleppa)
Nýmalaður pipar
Salt
2 msk. ólífuolía
l/2gúrka, skorin í
þunnar sneiðar
1 sítróna, skorin í báta
Grillið hitað. Bleikjan skoluð
og roðið skafið og hún síðan
þerruð með eldhúspappír.
Timjangreinum, sítrónuberki
og hluta af kryddinu blandað
saman og þetta sett inn í
bleikjuna. Henni síðan lokað
með 2-3 kjötnálum eða
tannstönglum. Bleikjan er svo
pensluð með olíunni eða velt
upp úr henni, krydduð með
afganginum af kryddinu, sett
á grillið og hún grilluð við
meðalhita í um 9 mínútur á
hvorri hlið. Gúrkusneiðum
og sítrónubátum raðað á fat,
bleikjan sett í miðjuna og
borin fram.
Ég hafði með þessu grill-
aðar kartöflusneiðar og
kastaníusveppi, velt upp úr
ólífuolíu og kryddað með
kóríanderfræi, pipar og salti
kartöflusneiðarnar voru
skornar í 8-10 cm þykkar
sneiðar og grillaðar við nokkuð
góðan hita í 4-5 mínútur á
hvorri hlið, eða þar til þær
voru alveg meyrar og höfðu
tekið góðan lit. Sveppirnir voru
settir á grillið með stilkinn upp
og grillaðir í 5-7 mínútur, ekki
snúið.
EFTIRRÉTTUR
Blaut
súkkulaðikaka
375 gr. súkkulaði
(að eigin vali)
225 gr. smjör
8egg
300 gr. sykur
125 gr. hveiti
Súkkulaði og smjör brætt
saman, egg og sykur þeytt
upp, hveiti sigtað út í. Bakað í
eldföstu móti eða teflonformi
við 160-170°C í 7-8 mínútur.
Kanilís:
8 eggjarauður
250 gr. sykur
11 rjómi
lA mjólk
2 kanilstangir
Eggjarauður og sykur þeytt
létt saman. Sjóðið mjólk og
rjóma með kanilstangirnar
út í vökvanum. Eggjunum og
sykrinum bætt varlega út í og
hitað upp í 67 gráður. Hægt er
að frysta ísinn eða hræra hann
í ísvél.
( TÖLVUPÓSTURINN )
Náttúrustofa Noróurlands vestra stendur á tímamótum um þessar
mundir. Porsteinn Sæmundsson veitir henni forstöóu og okkur lék
forvitni á að vita hvaö væri í deiglunni hjá honum.
Fræðsludagur um
skagfirska náttúru
> >
Hvað er að frétta af kaffistofunni?
-Það er allt gott að frétta af
kaffistofunni, nema það helst að hún
erorðin alltof lítil. Það eryfirleitt mikið
rætt um daginn og veginn. Málefni
líðandi stundar, bæði innan lands
og utan eru rædd ofan í kjölinn og
oft mikið „skotið", en það sem mestu
skiptir allir stíga sáttir upp frá borðum.
Mikið fjör oggottkaffi.
Hvað hefur Náttúrustofa Norður-
lands vestra starfað lengi?
-Náttúrustofa Norðurlands vestra var
sett á fjárlög fyrir réttum 10 árum
síðan og á því 10 ára afmæli ef við
miðum við þá tímasetningu. Starfsemi
hennar hófst þó ekki fyrrenáárinu 2000 þar sem
töluverðan undirbúning þarf til að setja slika stofu
á laggirnar. Forstöðumaðurvarráðinn aðstofunni í
febrúar árið 2000 og hófst þá uppbygging hennar
í þessu fallega húsi við Aðalgötu 2. Þáverandi
Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir opnaði síðan
stofuna formlega 9. maí árið 2000.
Hvað eru margir starfsmenn?
-I dag erum við 3 á stofunni yfir vetrarmánuðina,
en það fjölgar oft mikið á sumrin. Vonir standa
til að það verði hægt að fjölga fastráðnum
starfsmönnum nú á þessu ári með auknum
verkefnum og hækkandi sól.
Nú er fræðsludagur um Skagfirska náttúru
framundan, fyrir hverja?
-Já það hefur staðið til í nokkum tíma að efna til
slíks viðburðar og létum við verða að því núna.
Leitað hefur verið til fjölmargra sérfræðinga,
bæði innan héraðs og víðs vegar af landinu
sem með einum eða öðmm hætti hafa komið
að rannsóknum á náttúrufari Skagafjarðar. Þeir
hafa tekið saman efni um mismunandi þætti
f náttúrufari Skagafjarðar og kynna það í 15
mínútna fyrirlestrum. Einnighafa þeir útbúið stuttar
greinagerðir um sitt viðfangsefni sem gefið er út í
tengslum við fræðsludaginn. Þessi samantekt
veröur bæði hægt að nálgast á fræðsludeginum
og einnig á heimasíðu stofunnar www.nnv.is.
Við vonumst til að þessar samantektir geti nýst
öllum þeim sem vilja kynna sér betur ýmsa þætti
í náttúmfari Skagafjarðar. Fræðsludagurinn er
fyrst og fremst ætlaður fyrir almenning og liður
í því að koma fróðleik um náttúrufar landsins til
almennings, en það er reyndar eitt af lögbundnum
hlutverkum Náttúmstofunnar.
Er ekki kostnaðarsamt að halda slíka ráðstefnu
og koma ekki margir að henni?
-Jú þetta er mjög kostnaðarsamt, en undanfarin
ár hefur stofan lagt til hliðar fjármagn til þess að
standa straum að slíkum kostnaði. Einnig hefur
verið leitað til fyrirtækja og stofnana í Skagafirði og
vom viðtökur mjög góðar. Við þökkum öllum þeim
sem lagt hafa okkur lið kærlega fyrir stuðninginn.
Starfsmenn stofunnar hafa staðið í ströngu við að
koma þessu á laggimar og er í mörg horn að líta.
Mikill liðsauki hefur einnig borist frá Háskólanum
á Hólum, en tveir nemendur á ferðamálabraut
þær Ingibjörg Einksdóttir og Pálína Ósk Hraundal
hafa hjálpað okkur mikið.
Hvar verður dagskráin til húsa og verður
veisla?
-Fyrirlestramir verða í sal Fn'múrara að Borgarmýri
1 og stendur formleg dagskrá frá klukkan 9:00 til
15:45. GuðmundurGuðlaugssonsveitarstjóri mun
setja ráðstefnuna og Þómnn Sveinbjamardóttir
umhverfisráðherra mun halda tölu. Að því loknu
munu 16 sérfræðingar flytja erindi sem hvert um
sig verður 15 mínútur, eins og fram hefur komið.
í lokin mun Skúli Skúlason rektor við Háskólann
á Hólum Ijúka dagskránni með stuttri samantekt.
Boðið verður upp á súpu að hætti Jóns Daníels
verts á Kaffi Krók í hádegi og er gott að fólk skrái sig
svo að við vitum nokkurn vegin fjölda þátttakenda.
Skráning getur farið fram með tölvupósti helgi@
nnv.is eða ísíma 453 7999.
Þegar formlegri dagskrá er lokið mun
þátttakendum og öðrum sem það vilja þiggja í
móttöku í húsakynnum Náttúmstofunnar þar sem
við munum fagna 100 ára afmæli húsnæðisins
og Ijúka þessari dagskrá.
Eitthvað að iokum?
-Já það mætti bæta héraðeinsvið að Náttúrustofa
Norðurlands vestra hefur nú starfað frá árinu
2000 og er að mínu mati búin að festa sig í
sessi í samfélaginu. Með tilkomu hennar bættist
áhugaverður kostur við atvinnulíf í Skagafirði og
má benda að tveir starfsmenn, annar fastráðinn
og hinn sumarstarfsmaður eru fædd og uppalinn
hér á Króknum. Uppbygging náttúrustofunnar
og reyndar náttúmstofa á landinu er sú tegund
starfsemi sem er byggð upp á staðnum en ekki
„flutt“ frá öðmm svæðum. Slíka uppbyggingu tel
ég vera mjög jákvæða og rétta leið til að byggja
upp fjölbreyttara atvinnulíf á landsbyggðinni.
Starfsemi stofunnar er í miklum blóma í dag,
en betur má ef duga skal. Það verður að renna
styrkari stoðum undir hana svo að hún geturvaxið
og byggt upp fleiri áhugaverð störf í héraðinu.