Feykir - 10.04.2008, Page 9
14/2008 Feykir 9
Hesta Um fjöllUn Fcylíis Umsjón med hestasídu: Eyþór r 848 2725 og Gudný (£ 898 2597
Tekið til kostanna o.fí.
Molar
Heyrst hefur þetta um
Tekið til kostanna sem
haidin verður 24. til 27.
aphl:
• Að á kvöldsýningunum á
föstudags- og laugardags-
kvöld verði fluttur leikþáttur
sem segir frá æviskeiði Skag-
firðings nokkurs og samneyti
hans við þarfasta þjóninn.
Skagflrðingur þessi er víst
nokkur gleðimaður en frést
hefur að faðir hans muni
alveg slá honum við. Að gerð
og uppsetningu leikþáttanna
koma vist Sögusetur íslenska
hestsins, Guðbrandur Ægir
Ásbjörnsson leikstjóri, sr.
Hannes Örn Blandon, Stefán
Gislason söngstjóri, vaskir
kórdrengir og fjölmargir
leikendur.
• Að kennslusýningar Hóla-
skóla í reiðhöllinni Svaða-
stöðum á sumardaginn
fýrsta, 24. apríl og laugar-
daginn 26. apríl séu eitthvað
sem enginn fróðleiksfus
hestamaður ætti að láta fram
hjá sér fara. Auk þess sé
ókeypis inná þær.
• Að forsala aðgöngumiða
hófst mánudaginn 7. apríl á
N1 á Sauðarkróki, Fákasproti
á Akureyri og Ástund í
Reykjavík.
• Að aðstandendur kaffi-
húsanna sem verða í reið-
höllinni Svaðastöðum, þ.e.
Kaffibaunin, kaffihús Grunn-
skólanema austan Vatna,
Sauðárkróksbakarí og Herdís
í Áskaffi verði með Reið-
mannarækju, Fljótakleinur
og fleira áhugavert á
boðstólum. Trúlega er tilvalið
að kíkja í kaffi í reiðhöllina,
jafnvel þó maður hafi engan
áhuga á hestum.
Ingimar formaður
Hrossaræktarsamband
Skagafjarðar hélt
aðalfund sinn þann 31.
mars á Löngumýri.
Guðmundur Sveinsson
gaf ekki kost á sér tO
áframhaldandi stjórnarsetu
en nýr inn í stjórn er Eysteinn
Steingrímsson. Stjórnin er
skipuð eftirfarandi mönnum:
Ingimar Ingimarsson for-
maður, aðrir í stjórn; Magnús
Bragi Magnússon, Eymundur
Þórarinsson, Sigurbjörn Þor-
leifsson og Eysteinn Stein-
grímsson. Stjórnin á eftir að
skipta með sér verkum.
Skagaströnd
Böm í hestamennsku
Hestamennska nýtur mikilla
vinsælda um allt land og
hafa hestamannafélög vfða
um landið unnið að þvf að
kynna íslenska hestinn fyrir
ungafólkinu. ÁSkagaströnd
auglýsti Hestamannafélagið
Snarfari eftir áhugasömum
krökkum sem vildu prófa
að „eiga“ hest án allra
skuldbindinga.
-Þetta er kjörið fýrir þá
krakka sem vilja prófa að
„eiga“ hest án skuldbindinga.
Viðkomandi fær ákveðinn
hest til umráða og verður að
sinna honum í samráði við
verkefhisstjóra sem aðstoðar
við hirðingu og útreiðar. Við
töluðum við Ingimar Pálsson á
Króknum um að útvega okkur
sprenglærða reiðskólahesta
sem mundu henta í verkefnið,
segir Erla Jónsdóttir gjaldkeri
Snarfara.
Hvemig gekk að fá krakka í
þetta verkefni?
- Það má segja að við hefðum
mátt vera örlítið fyrr á ferðinni
því núna er mikið um að vera
hjá krökkunum í skólanum.
Fáir sóttu um þess vegna en
við sinnum þeim sem koma
og gerum þetta skemmtilegt,
segir Erla og bætir við að
hestamannafélagið útvegi
hesthús, reiðtygi og fóður fyrir
hrossin.
Verkefninu lýkur Sjómanna-
dagshelgina.
Æskan og hesturinn
Stefnir í glæsilega
sýningu
Sýningin Æskan og hesturinn
verður haldin í reiðhöllinni
Svaðastöðum á Sauðárkróki
þann 3. maf næstkomandi.
Um er að ræða tvær sýningar
sem verða um daginn, önnur
kl. 13 og hin kl. 16.
Auk Skagfirðinga koma
þátttakendur viða að s.s. frá
Akureyri, Dalvík, Siglufirði,
Hvammstanga, Blönduósi og
þeir sem koma lengst að eru
frá Norðfirði. Það eru böm og
unglingar sem sýna ýmis atriði
sem þau hafa æft og miðað við
fyrri sýningar er óhætt að mæla
með sýningunni fyrir alla.
Hestar
Sama „gamla“ stjómin
Hestamannafélagið Léttfeti
hélt aðalfund sinn þann 3.
aphl s.l. Óhætt er að segja
að sama „gamla“ stjórnin
hafi verið kosin en hún hefur
Iftið breyst undanfarin ár.
Kom fram á fúndinum að
Jón Geirmundsson hefur setið
í stjórn í 20 ár og Guðmund-
ur Sveinsson í 21 ár. Annars
er stjómin eftirfarandi: Guð-
mundur Sveinsson formaður,
Jón Geirmundsson ritari, Ragn-
ar Pálsson gjaldkeri, Stefán
Reynisson og Hörður Þórarins-
son meðstjómendur. Á fúndin-
um var m.a. skorað á stjórn að
félagið kæmi sér upp heimasíðu
á netinu og fór sú vinna strax í
gang daginn effir. Nítján nýir
félagar sóttu um inngöngu og
telur þá félagaskráin 223 manns.
Konur í meirihluta
Aðalfundur Hestamanna-
félagsins Stíganda var hald-
inn þann 11. mars sl.
Mikið var lagt upp úr því að
efla unglingastarfið hjá félaginu
og landsmótið í sumar var
ofarlega í huga fúndarmanna.
Nýr formaður var kjörinn og
er stjórnin skipuð eftirfarandi:
Jónína Stefánsdóttir formaður,
Eymundur Þórarinsson gjald-
keri, Líney Hjálmarsdóttir ritari,
Friðrik Þór Jónsson og Margrét
Sigurðardóttir meðstjómendur.
Þá hefúr Stígandi opnað heima-
síðu: www.123.is/stigandafelagar
Árskóli
Kokkakeppni
grannskóla
Nemendur f valhópum
í 9. og 10. bekk í
heimilisfræði f Árskóla
tóku þátt í kokkakeppni
mánudaginn s.l. í
kennsiueldhúsi sfnu.
Það voru 4 lið, sem
áður höfðu keppt í sínum
valhópum og komist áfram,
sem öttu kappi. Liðin höfðu
eina klukkustund til að útbúa
matinn og bera fram fyrir
dómara en dómarar sátu og
dæmdu eftir framsetningu,
útliti og bragði. Það voru þeir
Arnar Freyr Sigurjónsson og
Óli Grétar Óskarsson sem
báru sigur úr býtum með
ostafyllta kjúklingabringu.
Sigurliðið mun taka þátt í
kokkakeppnigrunnskólanna
sem haldin verður þann 12.
apríl n.k. í Menntaskólanum
í Kópavogi. Þetta er í fyrsta
sinn sem nemendum
á landsbyggðinni gefst
kostur á að taka þátt í stóru
keppninni og spennandi
verður að sjá hvernig okkar
nemendum vegnar þar.
Jingabríngft
{-------------------------------
Tll sölu Toyota CoroUa
árgerð 1996, ekinn aðeins 138.000,
mjög góður og lítur vel út,
álfelgur, spoilero.fi.
^SÍmi 899 8245_________________