Feykir - 10.04.2008, Qupperneq 11
14/2008 Feykír 11
( TÖLVUPÓSTURINN )
„Dýllarar" sitja sjaldnast auóum höndum og er þaó engin undantekning
meó Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa hjá UMFÍ. Lítill fugl hvíslaði í eyra
blaóamanns aó hann væri meö eitthvaó mikió á prjónunum í sumar.
Vió höfóum samband.
Heima er best
Hvað er að frétta af þjónustumiðstöð UMFÍ?
-Það er allt mjög gott að frétta frá UMFÍ, iðandi líf og
starfsemi um land allt.
Hver eru verkefni dagsins hjá UMFÍ?
-Það sem liggur á mínu borði er m.a. undirbúningur
Unglingalandsmótsins í Þorlákshöfn á þessu ári, einnig er
vinna hafin vegna Unglingalandsmótsins í Gmndarfirði á
næsta ári og svo er allt komið á fullt vegna Landsmótsins
á Akureyri í júlí á næsta ári. Gönguverkefnið okkar
“Göngum um ísland’’ er einnig að taka á sig mynd þetta
árið og svo er að fara af stað nýtt verkefni sem ber heitið
Gæfuspor. Þetta er það helsta sem að mér snýr en svo em
fjöldamörg önnur verkefni hjá UMFI sem aðrirstarfsmenn
hafa með að gera.
Nú hefur frést af mögulegri bæjarhátíð á Kréknum í
sumar. Átt þú einhvern þátt í því?
-Já ekki get ég neitað því. Þetta hefur verið að mótast
hjá mér smátt og smátt og drög af dagskrá liggja fyrir.
Þetta hefurverið kynnt fyrir sveitarfélaginu sem hefurtekið
þessu mjög vel. Hátíðin er fyrirhuguð síðustu helgina í
ágúst en það verður að ganga frá vissum málum áður en
farið er af stað, það er alveg Ijóst.
Hvað rekur þig í svoleiðis framkvæmdir?
-Ég veit það svei mér þá ekki, ég er alltaf að koma mér í
eitthvað svona, á líklega mjög erfitt með að sitja kyrr. En
kannski fyrst og fremst áhugi minn á að hér sé gaman að
búa, gott að koma og alltaf eitthvað um að vera. Ég er í
fullu starfi hjá UMFÍ sem m.a. krefst mikilla ferðalaga, ég
er í nefndum fyrir KSÍ sem einnig krefjast ferðalaga, ég er
töluvert mikið íkringum félagið mittfindastól, égerforseti
Rótarýklúbbs Sauðárkróks, og svo á ég frábæra fjölskyldu
sem ég reyni að sinna en hún hefur bakkað mig upp í
þessu öllu.
Ertu búinn að bóka skemmtikrafta?
-Það er margt uppi á borðinu og margir möguleikar, já það
er búið að tala við ákveðna aðila. Dagskráin mun vera
fýrir alla aldurshópa og sambland af listum, menningu
og íþróttum.
Kemur þetta fyrirtækjum staðarins til góða?
-Það ætla ég rétt að vona og svo aðallega á þetta að lífga
upp á bæjarbraginn.
Hvernig gengur að fjármagna verkefnið?
-Ágætlega en auðvitað kostar þetta sitt og því vantar
aðeins uppá að fjárhagsáætlun nái að ganga upp, því
miður. Þó hafa nokkrir aðilar komið með fjármagn í þetta
nú þegar. Égmun leita til fýrirtækja íbænum um aðstyrkja
þetta verkefni því ég lít svo á að þetta sé samfélagslegt
verkefni. Þegar ég hef fengið svar frá þeim mun ég svo
meta stöðuna ásamt góðu fólki sem er mér innanhandar
svona í upphafi.
Hver er markhópurinn?
-Markhópurinn eru allir bæjarbúar og sveitungar okkar
á öllum aldri. Að sjálfsögðu eru allir gestir velkomnir
hingað en ég vil byrja þetta rólega og meta svo stöðuna
að þessari hátíð lokinni. En markhópurinn erum við sem
búum í Skagafirði, brottfluttir og svo allir góðir gestir að
sjálfsögðu.
Hvert er þitt lífsmottó?
-Ætli það sé ekki eitthvað í þá áttina að leggja mitt að
mörkum til að hér sé gott mannlíf og einnig að vinna að
heilbrigðum verkefnum fyrir unga fólkið í landinu.
Eitthvað að lokum?
-Ja, ég vona bara að það takist að safna því sem uppá
vantarsvo bæjarhátíðin verði aðveruleika ísumar. Ef þetta
næst ekki þá fer ég bara í sumarfn með fjölskyldunni.
> >
GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 473
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrjum spjallið að þessu sinni með
þessari vísu Kristjáns Eiríkssonar:
Yfirfjöllin fagurblá
fannhvít mjöllin breiðist.
Verða sköllin vísast há
vont eftröllið reiðist.
Davíð Hjálmar Haraldsson hlustaði á
umræður um olíu á Vestfjörðum og orti
Þeirfara á sjóstöng á vestfirska vísu
og veiða á grunni, en stíma svo heim.
Að bryggjunni koma með blásvarta
ysu
og bleikju ogþyrskling með olíukeim.
Kunnug voru víða um land málaferli
sem Snæbjörn Sigurðsson á Grund
í Eyjafirði stóð í við nágranna sína
útaf landamerkjum um miðja síðustu
öld. Fór málið fyrir Hæstarétt og riðu
dómarar þaðan um landið til að skoða
aðstæður. Þá er sú för spurðist út, orti
Rósberg G Snædal þessa lipru vísu:
Undir bú ergott á Grund
gróttukvörn þar malar.
Ekki þarf að halda hund
Hœstiréttur smalar.
Þegar svo dómurinn birtist, orti Rósberg
þessa laglegu hringhendu:
Lengi þéttings gróða gaf
grundin fléttuð blómurn.
Hver einn blettur helgast af
hœstaréttardómum.
Þegar fýr sá er í daglegu tali gengur
undir nafninu Bubbi Morthens varð
fimmtugur, kepptust útvarpsstöðvar við
að spila tónlist tengda honum. Af því
tilefni orti Pétur Stefánsson þessa ágætu
vísu:
Áreiti og eilíft plag
allt vill lífið subba.
Nauðgar eyra í allan dag
org úrþessum Bubba.
Önnur vísa kemur hér eftir Pétur og
mun hún ort í verslunarferð:
Sá semfáa aura á
að því gjarnan hyggi.
í versluninni velja má
verðkönnunarhryggi.
Ein rifjast upp í viðbót eftir Pétur:
Brennivínið léttir lund
lagar ímynd hrjáða.
Eftirgóða gleðistund
geng égsœll til náða.
Mig minnir að það hafi verið hinn mikli
andans maður Hjörtur Gíslason sem
gerði þessa játningu:
Drottinn eins og barn ég bað
um betri og hlýrri klœði.
Betrafólk og betri stað
betra rúm ogfœði.
Síðar mun hann hafa bætt þessari við:
Árangur var ekki stór
ei mér bœttust flíkur.
Himnafaðirinn heyrnarsljór
var hreppstjóranum líkur.
Þegar ákveðin hjú sáust kyssast á
sjónvarpsskjánum á síðasta ári, orti Páll
Pétursson svo auðveldlega:
Helvíti er að horfa á
Haarde þennan sómamann.
Kyssa beint á kjaftinn á
kerlingu sem bítur hann.
Þegar núverandi stjóri í
Reykjavíkurhreppi Ólafur F Magnússon,
tilkynnti í sjónvarpi að kaup á tveimur
gömlum húsum við Laugaveg hefðu
verið hagstæð, komst effirfarandi vísa
á kreik. Man því miður ekki eftir hvern
hún er:
Við borgarstjórn Ólafur byrjar íplús
brilliant samning hann gerði.
Þegar afkaupangi kumbaldahús
keypti á hagstœðu verði.
Læknirinn góðkunni á Akureyri,
Hjálmar Freysteinsson heyrði af gemsi
þessu og orti svo:
Ólafur veskið opnarfús
auðveld sýnist völin.
Þegar bjóðast honum hús
á hálfa milljón fjölin.
Minn góði kunningi á Húsavík, Hreiðar
Karlsson mun líka hafa fylgst með
fréttum og orti svo:
Öll með brosi verk sín vann
vanur í göt að stagla.
Því nœst borga þurfli hann
þúsundkall per nagla.
Áfram heldur Hreiðar:
Skuli heilög varin vé
verður nokkru aðfórna.
Það er sjaldan þurrð áfé
þegar lœknar stjórna.
Sá snjalli hagyrðingur úr Mývatnssveit,
Friðrik Steingrímsson heyrði af þessu
gríni og bætti við:
Gott er að hann geti nýtt
gœðaprísa slíka.
Ef bárujárnið fylgir frítt
ogflestir gluggar líka.
Því miður verður að hætta nú. Gleðjum
okkur með þessari ágætu vísu eins
góðvina þáttarins, Erlendar Hansen
á Sauðárkróki. Er honum hugleikinn
glæsileiki borgarstjóra:
Frjálsa lít égfjallalind
fagurgrœna ása.
AfÓlafi ég mála mynd
meðan stormar blása.
Verið þar
með sœl að sinni.
Guðtnundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154