Feykir


Feykir - 13.11.2008, Blaðsíða 6

Feykir - 13.11.2008, Blaðsíða 6
6 Feykir 43/2008 Benedikt Lafleur hefur reiknað og reiknað Benedikt Lafleur sjósundkappi situr ekki auöum höndum dags daglega því fjölmargt hefur hann á prjónunum. Útgáfufyrirtæki hans Lafleur útgáfan gaf nýlega út fjóróa bindiö af Dýrasögum fyrir börn á öllum aldri og Kvæóakver eftir Björgvin Gunnarsson. En langstærsta verkefnió hans framundan og hingaó til á vegum útgáfunnar er bók hans um númeralógíu eóa talnaspeki. Hún byggir á áratugalöngum rannsóknum hans hérlendis og erlendis á þessari markveróu en lítt þekktu fræóigrein hér. Al íslensk talnaspeki Reiknaóu þig út -Þetta eru eiginlega tvær bækur í einni. Annars vegar opnar hún heim talnaspekinnar íyrir lesendur þannig að fólk getur reiknað út persónuleika sinn og annarra. Tölugildin í nafni og fæðingardegi eru til þess fallnar að glæða skilning okkar á sjálfum okkur. Tölurnar benda okkur á kosti og galla, tilfinningar, skap og framkomu. Það sem er merkilegast við númeralógíuna er að hún virðist smellpassa við raunveruleika okkar. Svo virðist sem engar tilviljanir séu til. Tolurnar setjast á okkur eins og nöfnin sem við skírum börnin okkar með líkt og fyrir tilstilli ósýnilegra lögmála aðdráttaraflsins - laws of attraction. Líkur sækir jú líkan heim. Númeralógían hefur kennt mér mjög margt og hefur dýpkað skilning minn á sjálfum mér og öðrum en mér finnst dýrmætasta lexía hennar fyrir mig hafa verið að hún hjálpar manni að komast yfir fordóma gagnvart öðru fólki. Engar tölur eru bara slæmar tölur eða góðar. Ég er t.d. handviss með árin 2008 og 2009 að það hefði verið hægt að afstýra kreppunni ef réttar ákvarðanir hefðu verið teknar á réttum tíma og gert hefði verið samhent átak víða um heim til að efla trúnaðartraust manna á milli og sneiða hjá grimmd hinnar miskunnarlausu samkeppni sem ríkir á fjármálamörkuðum heimsins. Á meðan hinir ýmsu ólíku hópar þjóðfélagsins hafa ekki sterka tilfinningu fyrir þvi að við erum öll ein órofa heild, þar sem hagsmunir eins snerta hagsmuni annars, þá er hætta á að þvílíkar hörmungar endur- taki sig. Til dæmis finnst mér skorta skilning hjá stjórnvöldum á rekstri fyrirtækja og öfugt og sömuleiðis verð ég var við mikla fordóma opinberra starfsmanna í garð fyrirtækja og öfugt. Erum á byrjunarreit Árið í ár fól í sér dýrmæt tækifæri til að bæta um betur. Víst er að þetta er frábært ár fyrir suma. Bókaútgáfa virðist blómstra og skapandi einstaklingar eins og Páll Öskar hafa aldrei gert það betra. í kreppunni vakna menn loks til vitundar um að við erum öll ein heild og þurfum öll að vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Tækifærin eru óþrjótandi því flest okkar stöndum fýrir því að byrja á byrjunarreit. En þetta má líka lesa úr tölunum, því þversumma ársins 2008, þ.e. 2 plús 8 er 10, eða 1. Á árinu 2009 þá hverfum við æ meir frá fjármálalífinu yfir á hugmyndafræðilegt plan og þá mun uppgjör eiga sér stað í hugsjónum manna og flokka. Mikil andleg hreinsun er í gangi og búast má við uppstokkun í stjórnmálalífinu í landinu, ekki endilega með stjórnarslitum heldur fýrst og fremst með endurskoðun ognýjum áherslum eldri flokka og yfirstandandi stjórnarsamstarfs. Jón Ásgeir og Davíó Oddsson Sú spenna sem hefur ríkt í atburðarás síðustu vikna og hefur kristallast í átökum milli sumra einstaklinga á sér tölulegar skýringar. Rígurinn milli Davíðs Oddssonar og Jóns Ásgeirs helgast af því að þeir eru ólíkir persónuleikar. Við sjáum að tölur þeirra eru mjög ólíkar, engu að síður mjög öflugar. { raun þurfa þeir á hvorum öðrum að halda, þvi styrkur eins bætir veikleika hins upp. Meðan Davíð er ffekar íhaldssamur, sparsamur, fjölskylduvænn og traustur er Jón Ásgeir villtari týpa og meiri hugsjónarmaður sem er tilbúinn að færa tímabundnar fórnir til að ná langtíma markmiðum sínum í þágu heildarinnar. Hann er tilbúinn að taka áhættu sem kann að koma þjóðinni mjög langt til lengri tíma er litið svo framarlega sem hann verður ekki öfgum að bráð. Á móti er Davíð varfærnari og þarf að gæta þess að láta ekki tortryggni og fordóma naga sig og einangrast í stífri hugmyndafræði. Meira má finna um kosti og galla þessara einstaklinga og fleiri þeklctra í bókinni. Þessi bók er fjölskylduvæn þar sem fólk getur leikið sér að því að tölugreina hvert annað. Kannski mun fólk sjá hvort annað í nýju ljósi eða uppgötva leynda hæfileika. Ég hef átt mjög gott samstarf við Nýprent í uppsetningu bókarinnar og vil sérstaklega þakka Þuríði fýrir einkar lipra þjónustu og gott listrænt auga. Fjölskylduvæn bók Þann 21. n.k. ætlar Benedikt að halda útgáfuteiti vegna bókarinnar í Skagfirðingabúð, frá 15.00 til 17.00, þar sem útgáfa hans kynnir hana fýrir gestum og gangandi í samstarfi við Skagfirðingabúð. Daginn eftir mun hann opna Lafleur listasetur að Aðalgötu 20 á Sauðárkróki, í Briemshúsinu, kl. 13.00, þar sem bókaútgáfa hans er til húsa. Þar verður boðið upp á bókakaffi í skammdeginu, þar sem vegfarendum býðst kostur á að kíkja inn og þiggja frítt kaffi og lesa í bók. Stefnt verður að hafa daglega opið í desember mánuði. Margt annað er á döfinni hjá þessum orkumikla listamanni því að í lok mánaðarins ætlar Benedikt að opna myndlistarsýninguíSafnahúsinu, eða 29. nóvember, með myndum sem hann hefur málað á undanförnum árum bæði olíuverk og myndskúlptúrar. Benedikt segist hafa fundið köflun sinni farveg í París þar sem hann bjó í ein sjö ár en innblásturinn fær listamaðurinn úr íslenskri náttúru. Benedikt stefnir svo á sérstakt talnaspekikvöld í Safnahúsinu í byrjun desember, þar sem hann bregður á leik með gestum og rýnir í tölur þeirra. Rétt fyrir jól er svo ætlunin að halda hundraðasta Skáldaspírukv'öldið, en þar koma ýmsir listamenn fram, lesa upp ljóð, leika tónlist og fremja aðra gjörninga á léttu nótunum. Benedikt hefur notið styrks Sveitarfélagsins og Menningarráðs Norðurlands Vestra og þakkir heimamönnum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning þeirra í hans garð.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.