Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1937, Page 14
12
Manntalið 1930
ar og Páls Vídalín árið 1703. Næsta alment manntal fór fram 1762 og
síðan 1769, 1785, 1801 og 1835. Síðan var manntal tekið 5. hvert ár
fram til 1860, en þar eftir 10. hvert ár.
Mannfjöldinn við hvert manntal hefur verið talinn svo sem hér segir:
1703 ............ 50 444 1. október 1855... 64 603
1762 ............ 44 845 1. október 1860 .. 66 987
15. ágúst 1769 ... 46 201 1. október 1870 .. 69 763
1785 ............ 40 623 1. október 1880 .. 72 444
1. febrúar 1801 . . . 47 240 1. nóvember 1890. 70 927
2. febrúar 1835... 56 035 1. nóvember 1901. 78 470
2. nóvember 1840. 57 094 1. desember 1910. 85 183
2. nóvember 1845. 58 558 1. desember 1920. 94 690
1. febrúar 1850... 59 157 2. desember 1930. 108 861
Á 18. öldinni fækkaði Iandsmönnum af landfarsóttum og óáran, en
á 19. öldinni var sífeld fjölgun milli manntala, nema á árunum 1880—90,
er landsmönnum fækkaði nokkuð vegna þess, hve Vesturheimsferðir voru
þá miklar. Síðan í byrjun 19. aldar hefur árleg fjölgun að meðaltali verið
svo sem hér segir.
1801—1840 .... 0.48 %
1940-1860 .... O.si —
1860—1880 .... 0.30 -
1880-1890 ... -H 0.21 —
1890-1901 ..... 0.92 %
1901 — 1910.... 0.91 —
1910 — 1920 ... 1.06 —
1920-1930 ..... 1.40 —
Síðastliðinn áratug hefur vöxtur mannfjöldans verið meiri en nokkru
sinni áður, 1.4 o/o á ári að meðaltali.
Á öllu tímabilinu frá 1. des 1920 til 1. des. 1930 hefur tala lifandi
fæddra barna verið alls 26 132, en dáið hafa á sama tíma 12 752 manns.
Mismunurinn þar á milli verður 13 380 og ætti mannfjöldinn að hafa
hækkað um þá tölu, ef ekki hefðu verið neinir mannflutningar úr land-
inu eða inn í það. Heimilismannfjöldinn var talinn 94 690 við manntalið
1920 og hefði hann samkvæmt því átt að vera 108070, ef mannflutningar
hefðu engir verið. En nú reyndist hann 108 861 eða 791 manns hærri.
Á tímabilinu 1920—30 hafa samkvæmt því bæst við framundir 80 manns
á ári hverju að meðaltali fram yfir aukninguna vegna mismunarins á tölu
fæddra og dáinna. Er það öfugt við það, sem átt hefur sér stað á und-
anförnum áratugum, er útflutningar fólks hafa töluvert háð fólksfjölgun-
inni. Hefur útflutningur manna umfram innflutning numið því sem hér
segir á undanförnum áratugum milli manntalanna.
1870 — 1880 3 274 manns 1901 — 1910 1 812 manns
1880-1890 6 302 — 1910-1920 1 314 —
1890 — 1901 2 732 —