Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Alþingi samþykkti fyrir þinghlé ný lög um eld á víðavangi. Taka þau m.a. til sinubruna í landbúnaði, en mikið hefur dregið úr tíðni þeirra á seinni árum og afraksturinn af þeim er almennt talinn umdeilan- legur. Eiríkur Jónsson, sérfræðingur í jarðrækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, segir viðhorf til þeirra mikið breytt og dvínandi tíðni megi rekja til þess. „Gagn- semin er fyrst og fremst sú að menn hafa verið að losa sig við sinu til þess að opna fyrir undirliggjandi gróðri en í einhverjum tilvikum get- ur þetta skemmt þann gróður sem er undir.“ Afraksturinn sé mestur þar sem er beitiland eða annars konar grasi vaxið svæði. „Þar er þetta fljótleg og auðveld aðferð til þess að losna við sinuna. Hún getur hamlað jarð- vinnslu, til dæmis ef taka á land í ræktun sem ekki hefur verið beitt á lengi eða slegið.“ Nú til dags væri bruni þó ekki fyrsta ráð sem gripið væri til. „Maður mundi frekar mæla því að beita á það t.d. hrossum helst, fram yfir sinubrennslu. Það mundi nán- ast gera sama gagn.“ Losar um koltvísýring Við brunann losnar um steinefni í sinunni sem dreifast í jarðveginn og svört jörðin sem stendur eftir drekkur í sig meira sólarljós og hitnar meira en annars. Þegar sin- an víkur á nýr gróður auðveldara með að spretta upp. Þannig getur bruninn stuðlað að skammtímavexti í ræktarlandi en hefur einnig nei- kvæðar afleiðingar í för með sér. Í brunanum berst koltvísýringur upp í andrúmsloftið, sem hefur vel þekkt umhverfisáhrif, og í kjölfar sinuelda hefur einnig þurft að huga að ösku og öðrum efnum sem borist geta í vatnsból og haft neikvæð áhrif. Brenni jörðin mjög djúpt getur sinubruninn haft þveröfug áhrif. Ef of mikið af rótum og fræjum í jarð- veginum brennur tekur það landið langan tíma að gróa á ný. Viðkvæmur gróður eins og t.d. mosi getur verið lengi að jafna sig eftir bruna, en rannsóknir hafa staðið yfir á breytingum á lífríkinu eftir bruna. bso@mbl.is »18 Hert lög um sinubruna  Sinubrunar fátíðari í seinni tíð samfara viðhorfsbreytingu meðal bænda  Ávinningur af bruna umdeilanlegur  Öðrum meðulum frekar beitt Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Sinueldur Slökkviliðsmaður berst við sinueld í Ísafjarðardjúpi. Heimsleikar íslenska hestsins, sem haldnir eru í þetta skiptið í Herning í Danmörku, hóf- ust í gær í blíðskaparveðri. Mótið stendur yf- ir í viku en því lýkur á sunnudaginn með A- úrslitum í öllum greinum, m.a. tölti. Í gær voru öll kynbótahross byggingar- dæmd og þá lauk einnig fordómi fimm vetra hryssna. Hryssan Ríkey frá Flekkudal sem er fulltrúi Íslands stendur efst með 8,42 í aðal- einkunn, þar af 8,53 fyrir sköpulag og 8,35 fyrir hæfileika. Knapinn er Guðmundur Frið- rik Björgvinsson. Hryssan Sorg frá Slippen, sem kemur fram fyrir Danmörku, er önnur með 8,35 í aðaleinkunn. Knapi hennar er Jó- hann Rúnar Skúlason, en myndin til hliðar er af þeim á stökki. Þess má geta að Jóhann er einnig í íslenska landsliðinu og er ríkjandi heimsmeistari í tölti og á því titil að verja. Það leiðinlega atvik átti sér stað að knap- inn Agnar Snorri Stefánsson féll af baki þeg- ar annað ístaðið slitnaði í miðri sýningu á hryssunni Hind frá Stall Ellingseter sem er fulltrúi Noregs. Agnar var fluttur á spítala til aðhlynningar en hann er óbrotinn og sagður vera nokkuð sprækur eftir byltuna. Heimsleikar íslenska hestsins í Herning í Danmörku hófust í gær Ljósmynd/ Ulrich Neddens / isibless Stökk Jóhann Rúnar Skúlason situr hryssuna Sorg frá Slippen, en hún er fulltrúi Danmerkur. Ríkey efsta fimm vetra hryssan Fimm metra langan grindhval rak á land í Víkurfjöru í gær. Að sögn Guðmundar Kr. Ragnarssonar, íbúa í Vík, fundu erlendir ferða- menn dýrið, sem lítur út fyrir að hafa drepist fyrir nokkru. „Hann er ábyggilega löngu dauður því það vantar allan skrápinn á hann. Þess fyrir utan er hann nokkuð illa far- inn og vond lykt af honum,“ segir Guðmundur. Að sögn hans laðaði dýrið að sér ferðamenn og voru margir í fjör- unni að fylgjast með í allan gærdag. Hvalshræið liggur rétt austan við sjóvarnargarð í fjörunni. Haft var samband við lögreglu um leið og hvalurinn fannst. Fimm metra grind- hvalur í fjörunni Grindhvalur Hvalreki í Víkurfjöru. Frídagur versl- unarmanna var í gær, mánudag. Misjafnt hefur verið hvort kaup- menn gefa starfsmönnum sínum frí þennan dag en í gær voru versl- unarmiðstöðvar og margar stórar verslunarkeðjur lokaðar. Formaður VR, Ólafía B. Rafns- dóttir, segir félagið ekki hafa þrýst á fyrirtæki að hafa lokað. „Við höfum bara minnt á þennan dag sérstaklega með tilliti til þess að þeir sem vinni á þessum degi eigi að fá greitt stórhátíðarálag. Við höfum ekki verið að beita okkur fyrir því að fólk hafi þjónustu sína lokaða.“ Stefna félagsins sé einungis að fólk fái greitt fyrir vinnu á frídög- um. „Við höfum haft það í kröfu- gerðum okkar að greitt verði stórhátíðarálag 1. maí. Það er markmið hjá okkur.“ bso@mbl.is Stórhátíðarálag skal greitt á frídeginum Ólafía Björk Rafnsdóttir Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu höfðu í gærkvöldi borist fjölmargar ábendingar frá fólki í tengslum við skartgriparán í verslunarkjarn- anum Firðinum í fyrrinótt. Birti lögreglan myndband á Facebook- síðu sinni úr öryggismyndavélum þar sem þjófurinn sást athafna sig og létu viðbrögð fólks ekki á sér standa að sögn lögreglu. Enginn hafði þó enn verið kallaður til yfir- heyrslu í gærkvöldi. Um er að ræða karlmann sem var klæddur í bláa Hummel-íþrótta- peysu. Hann er með derhúfu og er skyggnið með íslensku fánalit- unum. Eins er hann með bakpoka sem merktur er Hummel og HK. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni hleypur ránsfengurinn á milljónum króna. Skartgriparán Innbrotsþjófurinn sést hér neðst á myndinni í skartgripaversluninni. Fjölmargar ábend- ingar hafa borist Skúli Halldórsson sh@mbl.is Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, var heiðursgestur á tveimur hátíðum á Íslendinga- slóðum í Vesturheimi um helgina. Flutti hún hátíðarræðu í bænum Mountain í Norður- Dakóta í Bandaríkjunum á laugardag og í bænum Gimli í Manitoba í Kanada í gær. Með biskupi í för er Sveinbjörg Pálsdóttir, skrif- stofustjóri Biskupsstofu, en í samtali við Morgunblaðið segir hún ferðina hafa verið ánægjulega. Dagskrá heimsóknarinnar hófst á föstudag þegar biskup skoðaði borgina Winnipeg og mannréttindasafn Kanada í borginni, áður en ekið var suður fyrir landamærin til bæjarins Mountain í Norður-Dakóta. Þar fóru hátíðar- höld fram á laugardag auk þess sem biskup vitjaði minnismerkis um Stephan G. Stephans- son og Þingvallakirkjugarðinn, en þar má meðal annars finna gröf skáldsins Káins. Íslendingadagur í 126. skipti Í gær var síðan hinn árlegi Íslendingadagur haldinn í 126. sinn í bænum Gimli í Manitoba, þar sem biskup tók þátt í skrúðkeyrslu og hélt loks ræðu fyrir viðstadda. Þetta er fyrsta för Agnesar til Vesturheims en hún er þó ekki fyrsti íslenski biskupinn til að leggja leið sína um slóðir Vestur-Íslendinga. Til að mynda heimsótti Karl Sigurbjörnsson Mani- toba í september árið 2000, en tilefni þeirrar heimsóknar var minningin um landafundi Ís- lendinga og kristnihald í Vesturheimi. Biskupi fagnað í Vesturheimi  Agnes M. Sigurðardóttir biskup heiðursgestur á Íslendingadeginum í Gimli Ljósmynd/Sveinn Arnbjörnsson Fákur Biskup var keyrð um í Ford Mustang í skrúðkeyrslu um bæinn Gimli á Íslendingadeginum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.