Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 26

Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 Fyrir nokkrum árum greindist ég með hjartaflökt. Þakka þó fyr-ir að þetta hafi ekki verið pólitískt flökt. Þar er allt með kyrr-um kjörum og mannslíkaminn, að minnsta kosti í mínu tilviki, er þannig gerður að hjartað slær alltaf vinstra megin,“ segir Kristinn Hermannsson, rafvirki á Selfossi, sem er sjötugur í dag. Þau Margrét Kristjánsdóttir, eiginkona hans, ætla að halda upp á daginn með ferð til Árósa í Danmörku, en ein þriggja uppkominna dætra þeirra hjóna er nú að flytja með fjölskyldu sinni til Árósa. Kristinn er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, en á rætur að rekja austur undir Eyjafjöll eins og svo margir Eyjamenn. „Sem strákur var ég í sveit á sumrin hjá ömmu minni og afa á Raufarfelli og átti þar góða daga. Og tengslin við þessar slóðir hafa alltaf haldist. Við erum nokkrir félagarnir sem förum austur undir Eyjafjöll og í Mýrdal í skemmtireisur tvisvar á ári; í kótelettuferð að vori og annan leiðangur að hausti þegar fýll er á borðum,“ segir Kristinn sem 1979 flutti með sínu fólki til Selfoss. Hefur síðustu 20 árin starfað hjá Ár- virkjanum og þar helst sinnt rafmagnsvinnu innanbæjar á Selfossi. „Í starfinu er ég svo heppinn að eiga þess kost að fara víða um og hitta fólk sem gaman er að rabba við. En nú styttist í að ég hætti að vinna og því kvíði ég ekki, enda er ég félagsvera og áhugamálin eru mörg. Félagi minn í Eyjum sagði að eftir starfslok kæmi einn sam- felldur sunnudagur og inntak þeirra orða hyggst ég tileinka mér.“ sbs@mbl.is Rafvirkinn Samfelldur sunnudagur, segir Kristinn Hermannsson. Hjarta mitt slær alltaf vinstra megin Kristinn Hermannsson er sjötugur í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi S teingrímur fæddist á Gunnarsstöðum í Þistil- firði 4.8. 1955. Hann var í barnaskóla í Svalbarðs- hreppi 1964-69, að hluta í farskóla, lauk landsprófi frá Lauga- skóla 1972, lauk stúdentsprófi frá MA 1976, B.Sc.-prófi í jarðfræði frá HÍ 1981 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1982. Steingrímur var skiptinemi á Nýja-Sjálandi 1974-75, vöru- bifreiðastjóri á sumrum 1978-82, vann við jarðfræðistörf og var íþróttafréttamaður á Sjónvarpinu 1982-83. Steingrímur var alþingismaður Norðurlands eystra 1983-2003 fyrir Alþýðubandalagið, var óháður og fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð og hefur verið alþingis- maður Norðausturkjördæmis frá 2003 fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Hann var landbún- aðar- og samgönguráðherra 28.9. 1988 til 30.4. 1991, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 1.2. 2009 til 10.5. 2009, fjármálaráðherra 1.2. 2009 til 31.12. 2011, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 31.12. 2011 til 31.8. 2012, fór með iðnaðarráðu- neytið í fæðingarorlofi Katrínar Júlíusdóttur 6.7. til 1.9. 2012, var atvinnuvega- og nýsköpunarráð- herra 1.9. 2012, og fékk lausn 28.4. 2013 en gegndi störfum til 23.5. 2013. Steingrímur var fulltrúi nemenda í skólaráði MA 1975-76, sat í stúd- entaráði HÍ 1978-80, hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum innan ung- menna- og íþróttahreyfingarinnar, sat í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1983-87, var kjörinn í samstarfs- nefnd með Færeyingum og Græn- lendingum um sameiginleg hags- munamál 1984, sat þing Alþjóða- þingmannasambandsins 1984 og 1986, sat í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985-88 og 1991- 95, var varaformaður Alþýðubanda- lagsins 1989-95, sat á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna 1991 og 2007, var formaður flokkahóps vinstri sósíalista í Norðurlandaráði 1998-2000, formaður norræna ráðs- ins um málefni fatlaðra 1999-2000, formaður í jafnréttisnefnd Evr- ópuráðsþingsins 2008-2009, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá stofnun flokksins í febrúar 1999-2013, sat í stjórn- arskrárnefnd 2005-2007, var for- maður þingflokks Alþýðubandalags- ins 1987-88, sat í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1991-95, hefur setið í Íslandsdeild Norðurlanda- ráðs 1996-2005, 2006-2007 og frá 2013, í Íslandsdeild Evrópuráðs- þingsins 2007-2009, í nefnd Evr- ópuráðsþingsins um jöfn tækifæri kvenna og karla 2008-2009 og verið formaður þar. Nýbakaður afi Bækur eftir Steingrím eru Róið á ný mið. Sóknarfæri íslensks sjávar- útvegs, 1996, Við öll. Íslenskt vel- ferðarsamfélag á tímamótum, 2006, og Frá hruni og heim, 2013. Hann Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og fyrrv. ráðherra – 60 ára Orðinn afi Steingrímur og Bergný virða fyrir sér fyrsta barnabarnið, hana Móeiði litlu sem fæddist þann 4. júní sl. Nýtur sín í erfiðisvinnu Hlutavelta Ólafía Rún Guðmundsdóttir og Sólrún Lilja Bragadóttir héldu tombólu fyrir ut- an verslunina Kaskó í Reykjanesbæ. Þær söfnuðu 2.339 krónum sem þær gáfu Rauða krossi Íslands. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is COOL - LITE SÓLVARNARGLER ispan@ispan.is • ispan.is M ynd:Josefine Unterhauser

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.