Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook 36–56 Stærðir: ÚTSALAN Í FULLUMGANGI •30–50% afsláttur• Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Útihátíðir og önnur hátíðarhöld fóru víðs vegar fram um helgina sem venja er. Heilt á litið gengu þær vel fyrir sig þótt erill hafi verið hjá lög- reglu vegna ofbeldis- og fíkniefna- brota. Aldrei fleiri á Akureyri Á Akureyri fór hátíðin Ein með öllu fram, en að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Viðburðastofu Norðurlands, gekk hátíðin vonum framar. „Hér eru all- ir í áttunda himni. Hingað kom gríðarlegur fjöldi fólks og engin áföll urðu. Landsmót UMFÍ var líka haldið hér um helgina og þessar tvær hátíðir pössuðu mjög vel sam- an enda báðar fjölskylduvænar,“ segir hann. Veðurspár gengu ekki eftir hvað úrkomu varðar. Þó voru hitatölur ekki háar að sögn Davíðs, en víða hefur verið kalt og blautt á Norður- landi í sumar. Mikil viðburðadagskrá var haldin á Akureyri yfir helgina. Á laugardag var t.a.m. haldin mikil barnadagskrá þar sem Sveppi og Villi, Einar Mikael töframaður og Söngvaborg voru á meðal flytjenda. Hátíðinni lauk svo með svonefndum Spari- tónleikum. „Á tónleikana mæta bæjarbúar og gestir og syngja með í brekkunni og síðan er flugeldasýn- ing í lokin,“ segir Davíð. Stutt stopp vinsæl í Eyjum Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hélt sínu striki í ár. Að sögn Birgis Guð- jónssonar, formanns þjóðhátíðar- nefndar, var í meginatriðum ekki vikið frá gömlu formúlunni og gekk hátíðin í ár mjög vel. „Það er ekki von á öðru en að það gangi vel þegar það er blíða alla dagana. Það var dúnalogn í dalnum og rífandi stemning,“ segir hann. Birgir segir sunnudagskvöldið hafa verið fjölmennast í Eyjum, en sala laugardags- og sunnudagspassa hefur aukist allnokkuð. „Það bætist töluvert í hópinn þessa dagana. Það er mjög vinsælt að kíkja í dalinn á sunnudegi og taka síðan Herjólf til baka um nóttina,“ segir Birgir. Hann áætlar að um 15.000 manns hafi verið í Herjólfs- dal á sunnudag. Birgir segir að eftirlit með gest- um hafi gengið mjög vel, en síðustu ár hafa skipuleggjendur hátíðar- innar lagt mikið upp úr öryggi gest- anna. „Við erum alltaf að auka eftirlitið. Við erum með fimmtán myndavélar um allan dal og það hafa mestar breytingar orðið í þeim málum. Lög- reglan hjálpar okkur líka mikið. Að öðru leyti er hátíðin í föstu formi.“ Talsverður erill var hjá lögregl- unni í Vestmannaeyjum um helgina, en 70 fíkniefnabrot komu upp á há- tíðinni í ár, sem er meira en fyrri ár. Fangaklefar lögreglu voru vel setnir yfir helgina, en talsvert var um pústra og ölvun á hátíðinni. Ánægja með hátíðir helgarinnar  Ein með öllu á Akureyri og landsmót UMFÍ sameinuðust Veður hélst þurrt á Akureyri þvert á veðurspár Vinsælt er að stoppa stutt við í Vestmannaeyjum Töluverður erill hjá lögreglu í Eyjum Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Brekkan Blysin sem lita brekkuna njóta ávallt mikilla vinsælda hjá Þjóð- hátíðargestum. Um 15.000 manns voru í Herjólfsdal á sunnudagskvöld. Ljósmynd/Linda Ólafsdóttir Barnaskemmtun Sveppi og Villi héldu uppi stuðinu á Ráðhústorginu á Akureyri. Þar komu einnig fram Einar Mikael töframaður og Söngvaborg. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Evrópumeistaramótið í mýrar- bolta fór fram á Ísafirði um helgina. Sökum veðurs á laugar- dag var mótið allt haldið á sunnu- dag, en fyrri ár hefur keppnin staðið yfir báða dagana. Að sögn Jóns Páls Hreinssonar, eins af skipuleggjendum mýrarboltans, heppnaðist mótið vel þrátt fyrir breytinguna. „Þetta var allt klár- að á einum degi og gekk mjög vel. Þetta var nú ekkert stórmál,“ segir hann. Í stað mýrarbolta í úrhellinu á laugardag segir Jón Páll að ný íþrótt hafi verið fundin upp og heimsmeistaramót haldið í íþróttamiðstöðinni í Bolungarvík. „Hún hefur lýsandi nafn, hún heitir risaboltasokkaboltabolti,“ segir hann, en í íþróttinni er keppt í fótbolta þar sem notaður er risabolti og allir leikmenn spila á ullarsokkum. Mikil tónleikadagskrá var í Ísafjarðarbæ samhliða boltanum en auk skipulagðrar dagskrár spruttu víða upp sjálfstæðir tón- leikar og viðburðir. Böll voru haldin á hverju kvöldi yfir helgina og á laugardagskvöldið voru haldnir svonefndir Takk tón- leikar, þar sem Mýrarboltafélagið þakkaði bæjarbúum fyrir gest- risnina yfir helgina; ókeypis var inn á tónleikana og vel mætt. Að sögn Jóns Páls voru um þúsund gestir á svæðinu, en það er fækkun miðað við fyrri ár og kennir hann veðrinu um. Helgin gekk stóráfallalaust fyrir sig en Jón Páll segir gestina hafa verið til fyrirmyndar eins og fyrri ár. Bjuggu til nýja íþrótt í vætunni fyrir vestan EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ Í MÝRARBOLTA Ljósmynd/Sigurjón J. Sigurðsson Forynja Liðin í Mýrarboltanum leggja bæði hart að sér í boltanum og búningagerð. „Þetta gerðist einn, tveir og þrír. Ég var kominn í loftið í lítilli rellu um hálftíma eftir að fréttir komu af gosinu og þegar myndin var tekin var ég búinn að vera í lofti í um hálf- tíma. Mökkurinn er kominn alveg upp þá. Þetta gerist mjög hratt. Ís- inn er mjög þunnur í Gríms- vötnum.“ Svona lýsir Jón Viðar Sigurðsson atburðarásinni áður en hann tók meðfylgjandi mynd af Grímsvatna- gosi 1998. Á myndinni má sjá hvern- ig þoturák sveigist utan um gos- mökkinn, í um 10 km hæð. Gosið byrjaði kröftuglega en þvarr fljótlega kraftur og goslokum var lýst yfir 28. desember, tíu dög- um frá upphafi þess. Jón Viðar lýsir atburðarásinni þannig að strax og fréttir bárust af gosinu hoppaði hann ásamt öðrum vísindamanni upp í fyrstu lausu flugvél. Þeir greiddu flugnema sem flaug vélinni fyrir eldsneytiskostnað og flugu að gosstöðvunum. „Við tókum ekki eftir þessu fyrr en að allt í einu sjáum við þennan sveig. Sennilega hefur þotan verið þarna á sama tíma og við, um 90 mínútum eftir að gosið hefst. Þotu- rákin hefði líklega verið horfin ef þetta hefði verið þarna frá því áður en gosið hófst. Að minnsta kosti sýnir myndin að það er flug þarna beint yfir.“ Í síðustu viku var fjallað um ítrekaðar viðvaranir Páls Ein- arssonar, prófessors í jarðeðl- isfræði, um áhrif hugsanlegs Heklu- goss á flugumferð. Jón Viðar tekur aðvaranir Páls alvarlega. Vert sé að gefa virkum eldstöðvum gaum. „Eldstöðvar eins og Grímsvötn, Hekla og Katla eru virkustu eldstöðvarnar sem geta myndað svona háan gosmökk á skömmum tíma. Hekla er lang- hættulegust, hún er komin á tíma og búin að safna í sig kviku. Hún getur gosið hvenær sem er og fyrirvarinn er mjög stuttur.“ bso@mbl.is Sveigði hjá gosmekkinum  Myndaði þoturák utan um gosmökk frá Grímsvötnum í um 10 km hæð Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson Grímsvötn Myndin er tekin við upphaf goss í Grímsvötnum árið 1998. Það varði aðeins í tíu daga en það kom í kjölfar stærra goss árið 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.