Morgunblaðið - 04.08.2015, Side 14
VIÐTAL
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Fríða Hermannsdóttir hjúkrunar-
fræðingur rekur í dag sitt eigið fyrir-
tæki í hjúkrunar- og heimaþjónustu
fyrir eldri borgara, Farsæld. Með
henni í rekstrinum er móðir hennar,
Hallfríður Eysteinsdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
Kveikjan að hugmyndinni kom hjá
Fríðu fyrir tveimur árum þegar hún
var á þriðja ári í hjúkrunarfræðinámi
að læra öldrunarhjúkrun. „Ég og vin-
kona mín vorum á fyrirlestri þar sem
var talað um þjónustuúrræði fyrir
eldri borgara og við fengum í raun að
vita að það væri mjög lítið í boði fyrir
eldri borgara á Íslandi. Samhliða því
lærðum við um aukna þörf í heim-
inum fyrir öldrunarhjúkrun enda
fjölgar eldra fólki mikið. Við tvær
fórum þá strax af stað með þá hug-
mynd að gera eitthvað í þessu sjálfar.
Í kjölfarið fengum við hugmyndina
að lífssögunni, sem við gerðum sam-
an BS-rannsókn á.“
Erna Gunnþórsdóttir, sem vann
lokaverkefnið með Fríðu, varð svo að
hverfa frá frekari áætlunum þegar
hún ákvað að skella sér í læknis-
fræðinám í Slóvakíu.
Fríða lét ekki staðar numið þó að
hún væri orðin einyrki. „Ég fór bara
ein af stað, byrjaði þannig, en dró svo
móður mína með mér. Hún er búin að
vera hjúkrunarfræðingur í mörg ár
og var tilbúin að styðja mig í þessu.“
Lífssöguþjónusta
Eitt af því sem Farsæld býður upp
á er svokölluð lífssöguþjónusta, sem
var umfjöllunarefni lokaritgerðar
Fríðu. Í einföldu máli snýst hún um
það að gera myndræna lýsingu á ævi
og persónu skjólstæðingsins og
hengja sem lítið plakat á vegg.
Þjónustan er sérstaklega, en ekki
eingöngu, hugsuð fyrir fólk sem þjá-
ist af heilabilun í einhverri mynd og á
erfitt með að tjá sig. Með því gefst
umönnunaraðilum færi á því að
kynnast skjólstæðingi sínum og auð-
veldar það samskipti milli þeirra. Í
rannsókn Fríðu komu fram sér-
staklega jákvæð áhrif meðal yngra
starfsfólks og ófaglærðra starfs-
manna hjúkrunarheimilis, en stórum
hluta þjónustu er sinnt af þeim hóp-
um.
Man gömlu tímana vel
Fríða sá möguleikana í lífssögu-
þjónustu strax í náminu. „Ég kynnt-
ist lífssögu í verklega náminu, þetta
var skemmtilegt verkefni þar sem við
vorum með staðlaðan lista af spurn-
ingum fyrir fólk. Ég fann svo upp-
runalegu greinina sem við fórum í að
endurgera. Ég varð alveg ástfangin
af þessari hugmynd, sá þarna ævi
manneskjunnar á einu blaði.
Við Erna höfðum báðar unnið á
hjúkrunarheimilum og séð að ef mað-
ur þekkir ekki manneskjuna, hún tjá-
ir sig ekki og er kannski með langt
gengna heilabilun er erfitt að finna
umræðuefni. Mér fannst þetta svo
heillandi, ef maður hefur ævi mann-
eskjunnar á blaði fyrir framan sig
getur það orðið kveikjan að svo
margvíslegu umræðuefni. Jafnvel þó
að manneskjan svari ekki getur
maður a.m.k. talað um gömlu góðu
tímana. Þetta fólk man þá alveg.“
Einstaklingsmiðuð þjónusta
Fríða leggur mikla áherslu á það í
fyrirtæki sínu að bjóða upp á ein-
staklingsmiðaða þjónustu og segir
hana fyrst og fremst snúast um að
skjólstæðingurinn ráði ferðinni, sér-
staklega í heimaþjónustu. „Skjól-
stæðingurinn má ráðstafa sínum
tíma, þar sem hann er viðskipta-
vinurinn, hvort sem um ræðir hjúkr-
un eða aðra þjónustu.“
Til hliðsjónar nefnir Fríða verk-
efnismiðaða þjónustu Reykjavíkur-
borgar þar sem metið er hvaða þjón-
ustu einstaklingur á rétt á og það sé
það eina sem sé gert.
Fríða segir það mikilvægt í
umönnun að hafa í huga að um heim-
ili fólks sé að ræða þótt það sé t.d. á
hjúkrunarheimili. „Þetta á ekki að
vera stofnun.“
„Þetta á ekki að vera stofnun“
Stofnaði eigið fyrirtæki í umönnunarþjónustu fyrir aldraða Styrkir tengsl skjólstæðinga og
umönnunaraðila með lífssöguþjónustu Leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu við aldraða
Morgunblaðið/Golli
Öldrunarheimili Lokaritgerð Fríðu í hjúkrunarfræði fjallaði um rannsókn á kostum þess að veita lífssöguupplýs-
ingar um heilabilaða íbúa á öldrunarheimili. Hún stofnaði fyrirtæki sem nú veitir þessa þjónustu.
Heilabilun
» Heilkenni fjölmargra sjúk-
dóma sem felur í sér óaftur-
kræfa og framsækna hrörnun á
vitsmunastarfsemi
» Meirihluti tilfella vegna Alz-
heimers-sjúkdómsins. Æðavit-
glöp eru næstalgengust.
» Fólk með heilabilun á oft
erfitt með að tjá sig, sem gerir
starfsfólki erfitt fyrir að kynn-
ast því og þrengir það mögu-
leika til þess að veita ein-
staklingsmiðaða þjónustu.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
35.900,-
Verð Kr.
USG CNIP4
Yfirskápur 4 skúffur.
Sterkur skápur með lás.
88.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B Verkfæraskápur
7 skúffur – 1/4", 3/8“ & 1/2" topplyklasett
Splittatangir, skrúfjárn, fastirlyklar, tangir,
skralllyklar, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir.
115.900,-
Verð Kr.
USG FIRP7B-FOAM Verkfæraskápur
7 skúffur með frauðefnisbökkum. 1/4",
3/8“ & 1/2" topplyklasett. Splittatangir,
skrúfjárn, fastirlyklar, tangir, skralllyklar,
skiptilykill, meitlar, sexkantar, rennimál,
þjalir. 172 verkfæri í sterkum vagni með lás.
15.900,-
Verð Kr.
USG
B5094M
1/2“ & 1/4"
Topplyklasett 94 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft, djúpir-
toppar, kertatoppar, bitajárn.
USG GWB2045M
1/4“ Topplyklasett 45 stk
Skrall 72 tanna, framlengingar,
hjörluliður, átaksskaft,
bitar, sexkantar, bitajárn,
4.990,-
Verð Kr.
USG
GWB3029M
3/8“ Topplyklasett 29 stk
Skrall 72 tanna, hjöruliður,
djúpir & grunnirtoppar,
kertatoppar, framlengingar.
7.990,-
Verð Kr.
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899
Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Umönnun heilabilaðra einstaklinga getur reynst mjög
erfið, sérstaklega eftir því sem einkennin ágerast.
Hegðun þeirra getur orðið óviðeigandi, fólk fer í vörn
eða hættir að tjá sig. Í þeim tilfellum segir Fríða umönn-
un oft verða miðaða við beinar líkamlegar þarfir ein-
staklingsins. Einstaklingar með langt gengna heilabilun
loki oft alveg á umhverfið og þá verði hætta á að starfs-
menn líti á þá sem nokkurs konar tóma skel.
„Það er mikilvægt að kynnast einstaklingnum, að
hann verði ekki bara eitthvert númer. Sumir halda að
það þýði ekkert að gera fyrir fólk í þessu ástandi, það muni ekki eftir því,
en fólk með heilabilun lifir í núinu og það er fullfært um að njóta tímans
á hverri stund fyrir sig.“
Sumir loka alveg á umhverfið
UMÖNNUN FÓLKS MEÐ HEILABILUN
Fríða
Hermannsdóttir
Sigurður Bogi Sigfússon
sbs@mbl.is
„Ferðirnar eru á
forsendum
barnanna, en
hugsunin með
þessu starfi er að
fjölskyldur geti
sameinast í
skemmtilegu
áhugamáli og átt
gæðastundir sam-
an,“ segir Páll
Guðmundsson
framkvæmdastjóri Ferðafélags Ís-
lands. Góð þátttaka var í fjögurra
daga ævintýradvöl að Valgeirsstöð-
um í Norðurfirði á Ströndum sem FÍ
stóð fyrir á dögunum undir merkjum
Ferðafélags barnanna.
Leikir og fjöruferð
Það er undirdeild frá móðurfélag-
inu, en þar hefur verið leitast til að ná
til ungs fólks. Í því skyni var félag
barnanna stofnað og nú síðast ungt
fólk, það er aldurshópinn 18 til 24 ára.
„Við áttum góða daga á Ströndum.
Farið var í leiki og fjöruferð, gengið á
Reykjaneshyrnu, við heimsóttum
veðurathugunarstöðina í Litlu-Ávík
og svo mætti áfram telja. Fyrir
krakkana var þetta ævintýri í fram-
andi veröld,“ segir Páll.
Þau Brynhildur Ólafsdóttir og
maður hennar, Róbert Marshall al-
þingismaður, hafa verið driffjaðrirn-
ar í starfi Ferðafélags barnna. Páll
Guðmundsson og Auður Elva Kjart-
ansdóttir kona hans hafa þó tekið
stöku ferðir eftir atvikum, svo sem
Strandaferðina. Á dagskránni hafa
einnig verið ferðir í Kerlingarfjöll,
um Laugaveg og svo sérstök drauga-
ferð í Hvítárnes.
Breikka starfið
Í ferðum sem spanna einhverja
daga hafa gjarnan verið 20 til 30 þátt-
takendur en í dags- og fræðsluferð-
um þar sem náttúruskoðun er aðal-
atriðið hafa á þriðja hundrað manns
stundum blandað sér í leikinn.
„Reynslan af þessu starfi er góð og
almennt því að breikka starf FÍ með
þátttöku ungs fóks,“ segir Páll Guð-
mundsson.
Ævintýri í fram-
andi veröld
Ferðafélag barnanna Gæðastundir
fjölskyldu Gengu á Reykjaneshyrnu
Páll
Guðmundsson