Morgunblaðið - 04.08.2015, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 8.30-16.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Garðabær Bútasaumur kl. 13, Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45,
hádegismatur kl. 12, meðlæti með síðdegiskaffi selt kl. 14-16.
Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Leikfimi gönguhóps kl. 10,
ganga um hverfið kl. 10.30.Tölvukennsla, hafið samband við
umsjónarmann. Blöðin liggja frammi, heitt á könnunni.
Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40,
jafnvægisþjálfun kl. 14, létt hreyfing kl. 15.
Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Blöðin og púslin liggja frammi. Opið inn í
handavinnustofu. Þrektækin á sínum stað. Pútt kl. 10.30. Minnum á
netið og spjaldtölvuna. Hádegisverður seldur kl. 11.30-12.30. Kaffi og
meðlæti selt kl. 14.30-15.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar í dag eftir sumarfrí en
starfsemin hefst á morgun miðvikudaginn 5. ágúst. Opið kl. 8.50-16.
Blöðin, taflið og púslin liggja frammi. Opið inn í listasmiðju og þar
byrjar vinnusmiðja fyrir bland-aðar kynslóðir á morgun. Minnum á
netið og spjaldtölvuna.Tekið á móti matarpöntunum fyrir morgun-
daginn. Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30.
Norðurbrún 1 í dag, þriðjudag kl. 9-12 tréútskurður. Miðvikudagur
kl. 9-12 tréútskurður, kl. 14-16 félagsvist, Bónusbíllinn fer kl. 14.0.
Fimmtudagur kl. 9-12 tréútskurður. Föstudagur kl. 9-12 tréútskurður.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Opið kl. 8-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-
10.30. Blöðin og púslið liggja frammi.Tekið á móti matarpöntunum
fyrir morgundaginn. Kaffi og meðlæti selt kl. 14.30-15.30.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
ÍþróttirTil sölu
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
Háþrýstiþvottur
og sandblástur
á nánast hverju sem er.
Öflug tæki - Gott verð
Sími 860 2130
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Þjónustuauglýsingar 569 1100
Verðlaunagripir -
gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, póstkassaplötur, plötur á leiði,
gæludýramerki - starfsgreinastyttur
Fannar
Smiðjuvegi 6, Rauð gata
Kópavogi, sími 5516488
Elsku pabbi
minn var, er og
verður mér allt.
Allt sem hann
gerði það gerði ég
líka. Allt sem hann varð langar
mig líka að verða. Tja, nema
þá kannski ekki bridsspilari,
þar hafði hann betri hendi.
Elsku pabbi minn. Þú elsk-
aðir að vera innan um okkur
og vini þína sem eru ótalmarg-
ir, bæði tví- og ferfætlinga,
með eða án rófu, hala eða
tagls. Standa upp og segja sög-
ur, fara með kvæði og sýna
leikrit. M.a.s. söngstu ófeiminn
við öll helstu tækifæri þrátt
fyrir lagleysi því þú mundir
alla texta og fannst einstak-
lega vænt um kvæðið Dóri
stóri sem ómaði í hverjum
fjallakofanum ár eftir ár og
mun óma áfram. Þú kunnir ófá
spakmæli, orðatiltæki, máls-
hætti o.fl. og það síðasta sem
þú fórst með var föstudags-
kvöldið 17. júlí þegar við vor-
um búin að ríða saman með
hrossin frá Steinsholti yfir í
Lindarsel, vinir okkar og við
vorum að hefja slátt daginn
eftir og kvöldroðinn var svo
fallegur:
Kvöldroðinn bætir og segir satt,
morgunroðinn vætir og mígur í
hatt.
Einstakur faðir hefur nú
✝ Halldór Ein-arsson fæddist
13. október 1939.
Hann lést 18. júlí
2015. Útför hans
fór fram 28. júlí
2015.
kvatt mig og okk-
ur öll og besti afi í
heimi, langt, langt
út í geim, eins og
nafni þinn myndi
segja, hefur nú
farið á annan góð-
an stað og ég vona
innilega að kall-
arnir hafi verið
búnir að járna fyr-
ir þig í þetta skipt-
ið, en eins og
margir vita þá æfðirðu okkur
aðeins fyrir nokkrum árum í
þessu en þá ráku þeir þig til
baka þar sem þeir voru ekki
búnir að járna fyrir þig.
Pabbi minn var stór maður,
dugnaðarforkur á við þrjá
menn ef ekki fleiri, var úr-
ræðagóður og leysti öll verk-
efni, stór og smá, af mikilli þol-
inmæði og yfirvegun. Hann
kvartaði aldrei og ef hann var
spurður hvernig hann hefði
það þá svaraði hann yfirleitt á
þessa leið: „Allt bara svona
meinhægt“ og nuddaði lærið,
stólarminn eða borðið fyrir
framan sig með stórri grófri
hendinni.
Þú skilur eftir þig ótal góðar
og hjartahlýjar minningar og
ekki er auðvelt að sætta sig við
að þær verði ekki ennþá fleiri.
Það sem stendur mér næst eru
ógleymanlegar stundir með
þér á ferðalögum, bæði þegar
ég var krakki og ekki síður eft-
ir að ég varð fullorðin, og við
vorum í hestaferðum saman
eða allar fjallferðirnar þar sem
þú varst ómetanleg stoð og
einnig kennari sem kenndi mér
örnefni og sagðir mér til. Nátt-
úran og fjöllin kölluðu alltaf og
þú sinntir þeim af tærri snilld,
svo að mikill missir er að.
Stórt skarð verður eftir í
veröldinni í kring um okkur en
hjartað verður ávallt fullt af
þér, bæði hjá mér og besta vini
þínum, Halldóri Magnúsi afa-
strák.
Þegar kallið mitt kemur veit
ég að þú verður búinn að járna
fyrir mig og við ríðum aftur út
saman og förum í þá ferð sem
við ætluðum núna í vor. Spari-
merin verður í góðum höndum
og ef þig vantar eitthvað eða
vilt gera hlutina öðruvísi, þá
hefurðu bara samband og ég
redda því.
Hér að lokum vil ég segja,
ég elska þig, góða ferð og ég
bið að heilsa.
– Jæja! –
Þórdís.
Það er mér þungt að þurfa
að kveðja þig, elsku Halldór.
Ekki grunaði mig þegar ég
kvaddi þig síðast að aðeins ör-
fáum klukkutímum síðar yrðir
þú farinn. Við vorum komin á
fullt í að græja allt fyrir hey-
skapinn og hlökkuðum öll mik-
ið til. Ég skrapp bara með
dekkið af snúningsvélinni í við-
gerð. Ekki grunaði mig heldur
að kvöldið áður, þegar ég
stökk á bak með ykkur síðasta
spölinn niður í Lindarsel, að
það yrði síðasti reiðtúrinn okk-
ar saman. Þú varst svo hress
og glaður, þreyttur kannski en
hress og glaður. Þú varst
ánægður með vel heppnaða
hestaferð og spenntur fyrir
heyskapnum og sumrinu. Svo
var nafni þinn líka mættur til
að gleðja ykkur.
Þessar síðustu stundir með
þér lýsa þér kannski bara
nokkuð vel. Alltaf eitthvað um
að vera og aldrei nein logn-
molla eða hangs. Alltaf varstu
kátur og stutt í húmorinn. Það
brann þér fátt fyrir brjósti og
þú tókst á við allt með blöndu
af ró, húmor, dugnaði, hjálp-
semi og stundum smá ævin-
týraþrá. Stundum fannst
manni nóg um allar þessar
hestaferðir þvers og kruss um
landið en ég skildi þig vel. Á
fjöllum leið þér best. Á góðum
hesti á hálendinu með góðum
vinum getur ekkert klikkað.
Þú varst vinamargur og
maður þurfti ekki að hafa
þekkt þig lengi til að sjá hvers
vegna. Hvar sem þú komst
varstu hrókur alls fagnaðar og
hafðir einstaklega gaman af
því að segja sögur af sjálfum
þér og ferðum þínum. Þú varst
alltaf reiðubúinn að hjálpa
þeim sem til þín leituðu og
lagðir þig mikið fram til að að-
stoða vini þína.
Það er ekki hægt að segja
að þú hafir setið auðum hönd-
um. Alltaf varstu með mörg
járn í eldinum og alltaf voru
næg verkefni í bígerð hjá þér.
Á síðustu árum tókstu húsin
ykkar á Setbergi og á Flúðum
gegn, gerðir upp traktor, tókst
garðinn í gegn á Flúðum,
ræktaðir upp tún og rakst nið-
ur ótalinn fjölda girðinga-
staura í Lindarseli. Allt þetta
ásamt hestunum, hestaferðum,
bridsinu og öllum hinum ótelj-
andi verkefnunum sem þú
sinntir. Að sitja með hendur í
skauti var ekki þín þjóðarí-
þrótt.
Það var alltaf gaman að vera
í kringum þig í öllu sem við
gerðum saman. Hestaferðir,
járna hrossin (sem þú kenndir
mér), ferðast eða bara út í
Lindarseli að spá og spögu-
lera. Þessar stundir geymi ég
og mun segja nafna þínum frá.
Það eru fátækleg orð að
segja takk fyrir allt. En ég er
þér óendanlega þakklátur fyrir
þann tíma sem við áttum sam-
an. Þú hafðir að geyma ein-
staka persónu og karakter. Ef
allir hefðu ekki nema lítið brot
af þinni góðmennsku, dugnaði
og hjálpsemi væri heimurinn
betri.
Takk fyrir allt, Halldór, þú
varst einstakur.
Guðbjartur (Baddi).
Í dag kveðjum við, félagar í
Bridgefélagi Hafnarfjarðar,
góðan vin og félaga, Halldór
Einarsson.
Halldór tók virkan þátt í
starfi félagsins í yfir 50 ár.
Sinnti ýmsum trúnaðarstörfum
og var meðal annars formaður
í tvö ár. Kunnum við honum
ævarandi þakkir fyrir.
Við komum til með að sakna
gleði hans og kímni við spila-
borðið á spilakvöldum félags-
ins. Hann verður þó örugglega
með okkur í anda og hver veit
nema við heyrum stöku sinnum
hlátur hans og finnum kátín-
una sem oftast skein af honum.
Allir vissu hvernig spila-
mennskan gekk hjá honum því
þá skein sérstaklega af honum.
Við sendum eiginkonu hans
og fjölskyldu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd félaga í Bridge-
félagi Hafnarfjarðar,
Pétur Sigurðsson.
Skjótt skipast veður í lofti.
Á hverju ári í meir en þrjá ára-
tugi hafa Halldór og Unnur
heimsótt okkur á Daðastaði og
við átt góðar stundir saman. Í
ár áttum við von á þeim eins
og áður. Það hlaut að koma
símtal hvað úr hverju þar sem
þau boðuðu komu sína, það
brást aldrei. Það kom því aftan
að okkur þegar þær fréttir
bárust að ekkert yrði af heim-
sókn þetta árið, Halldór hafði
kvatt snögglega, nýkominn úr
hestaleiðangri og farinn að
huga að heyskap ásamt nafna
sínum, Halldóri yngri.
Hugur okkar hvarflar til
baka. Þessi litla fjölskylda hef-
ur verið stór þáttur í lífi okkar.
Við fluttum í kjallarann hjá
Unni og Halldóri með þrjú
börn um 1980 meðan verið var
að byggja hús í Setbergslandi
og Þórdís, dóttir Unnar og
Halldórs, kom gjarnan niður,
okkur til ánægju. Á Setbergi
tengdumst við sterkri sam-
hentri fjölskyldu sem tók okk-
ur afar vel. Elísabet Reykdal,
móðir þeirra Setbergssystkina,
opnaði strax faðminn fyrir
okkur. Þessi hugumstóra,
sterka og hlýja kona er okkur
ógleymanleg.
Árið 1982 flytjum við norður
í Daðastaði og Halldór flytur
búslóðina okkar norður á vöru-
bílnum sínum, lítur á hestana á
staðnum og ákveður að Gunnar
þurfi góðan gangnahest og
stuttu síðar er Kári kominn,
stór og sterkur gangnaklár
sem entist í tuttugu og fimm
ár. Svona mætti lengi telja.
Alltaf leit Halldór til með okk-
ur á sinn hátt og erum við
þakklát fyrir tryggð og velvild
hans og Unnar í gegnum árin.
Við söknum vinar í stað en eig-
um dýrmætar minningar.
Elsku, Unnur, Þórdís, Baddi
og Halldór.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur frá okkur á Daðastöð-
um.
Gunnar, Guðrún,
Kristján Ingi, Ólafur
Daníel, Elísabet,
Reynir og Birkir.
HINSTA KVEÐJA
Fosslækur hvíslar
en hláturinn þinn heyrist
þar ekki framar.
Sigurður Ingibergur
Björnsson.
Halldór
Einarsson