Morgunblaðið - 04.08.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Heimsóttu Færeyjar
eða meginland Evrópu
Frábært verð í september og október
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Norræna siglir í september og október á miðvikudögum frá Seyðisfirði og komið til baka á þriðjudagsmorgnum.
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Andlit bæjarbúa verðaáberandi á Ljósanótt íár. Ljósop, félag áhuga-ljósmyndara á Suður-
nesjum verður þess heiðurs að-
njótandi að eiga ljósanætursýningu
þessa árs í Listasafni Reykjanes-
bæjar. Sýning félagsins heitir
„Andlit bæjarins“.
Björgvin Guðmundsson er
grafískur hönnuður að mennt.
Hann fékk brennandi áhuga á ljós-
myndun, sérstaklega stafrænni
ljósmyndun, þegar hann var í námi
í stafrænni margmiðlun í Álaborg í
byrjun aldar. Þar var ljósmyndun
hluti námsins. Hann festi fljótlega
kaup á stafrænni myndavél og
fyrst um sinn myndaði hann mest-
megnis hljómsveitir á tónleikum.
Björgvin flutti aftur heim árið
Andlitum bæjarins
fjölgaði allverulega
Björgvin Guðmundsson ljósmyndari hefur brennandi áhuga á ljósmyndun og hóf
að taka andlitsmyndir af flottum karakterum í bæjarfélagi sínu, Reykjanesbæ.
Vatt það vel upp á sig og verða andlit bæjarbúa áberandi á Ljósanótt þetta árið.
Sýnir hann á vegum Ljósops á ljósanætursýningunni í Listasafni Reykjanesbæjar.
Ljósmynd/Björgvin Guðmundsson
Heiðrún Eva Gunnarsdóttir
Ljósmynd/Björgvin Guðmundsson
Júlíus Guðmundsson
„Skannaðu þetta bara til mín,“ er
setning sem margir ættu að kann-
ast við í nútímasamfélagi. Kvittanir,
nótur, samningar eða önnur skjöl
þarf oft að senda manna á milli. Í
stað þess að þurfa í hvert skipti að
leita uppi skanna sem inna myndi
þetta hlutverk af hendi hefur nú
verið fundið upp snjallsímaforrit,
eða app, sem leysir þetta vandamál
fljótt og örugglega.
TurboScan er app sem gerir þér
kleift að skanna eitt eða mörg skjöl
inn í símann til eignar eða senda
þau áfram. Hægt er að skanna mörg
skjöl í einu og safna þeim í eina
skrá. Þá er einnig hægt að senda öll
skönnuð skjöl og skrár áfram í
tölvupósti sem pdf-skjal eða jpg-
mynd. Til boða stendur að fram-
senda skjöl strax í Dropbox. Myndir
úr skannanum eru skýrar og lausar
við alla skugga. Er þetta því tilvalið
app til að spara fólki sporin í amstri
dagsins.
Vefsíðan https://play.google.com/store/apps
Skannaðu skjöl með símanum
Umræður um valkostina í lífinu,
hvernig hægt sé að mæta hindrunum
í lífinu og muninn á innri og ytri
hindrunum er á meðal þess sem verð-
ur rætt í Sesseljuhúsi á Sólheimum
næstkomandi þriðjudag, 4. ágúst,
klukkan 17.
Þar mun Jóhanna Magnúsdóttir,
guðfræðingur og forstöðumaður fé-
lagsþjónustu Sólheima, fara yfir
þessi málefni af miklum myndugleik.
Allir eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Sesseljuhús er umhverfissetur þar
sem fram fer alhliða fræðsla, m.a. á
málþingum, fundum og námskeiðum.
Ókeypis og áhugaverður umræðufundur á Sólheimum
Óteljandi val-
kostir í lífinu
Náttúra Fallegt er á Sólheimum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Þessa vikuna eru hinsegin dagar í
fullum gangi en þeir ná hápunkti sín-
um á laugardaginn þegar gleðigang-
an fer fram í miðbæ Reykjavíkur.
Í vikunni verður mikið um dýrðir
þegar kemur að hinsegin fræðslu og
þeim viðburðum sem boðið verður
upp á fyrir allan almenning.
Á fimmtudaginn, 6. ágúst, standa
Hinsegin dagar fyrir málstofu um
kynferðisofbeldi í hinsegin samhengi
í samstarfi við Stígamót.
Segir á Facebook-síðu málstof-
unnar að umræða um kynferðisof-
beldi hafi aukist á Íslandi undanfarin
misseri. Ítrekað hafi komið fram
hversu mikilvægt það sé að draga
þessa umræðu fram í dagsljósið og
skapa umhverfi þar sem líklegra er
að brotaþolar kynferðisofbeldis leiti
sér aðstoðar. „Markmið þessarar
málstofu er að skoða kynferðisof-
beldi út frá reynslu hinsegin ein-
staklinga, bæði þegar það beinist
gegn okkur og þegar um er að ræða
aðila innan okkar samfélags, ásamt
því að skapa umræðu um þessi mál í
hinsegin samfélaginu á Íslandi,“ seg-
ir á vefsvæðinu.
Starfsfólk Stígamóta flytur fyrir-
lestra, sagðar verða reynslusögur og
í lokin verða pallborðsumræður.
Málstofa Hinsegin daga, sem rýfur þögn
Kynferðisofbeldi í hinsegin
samhengi á hinsegin dögum