Morgunblaðið - 04.08.2015, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
Litir Það var líflegt um að litast á Ingólfstorgi þar sem fólk frá Sádi-Arabíu, Katar, Óman og Kúveit kynnti menningu sína fyrir gestum og gangandi og þáðu margir sveskjur af þessari stúlku.
Eggert
Óli Björn Kárason
skrifar mikla grein í
Morgunblaðið um það
sem hann kallar Ög-
mundar-möntru, en
það á að vera skír-
skotun til þeirrar
kenningar þessa vara-
þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins og um
skeið aðstoðarmanns
heilbrigðisráðherra að
skrif mín um heilbrigðismál að
undanförnu og varnaðarorð gegn
einkavæðingu á því sviði séu fyrst
og fremst til að ná tvíþættu mark-
miði, sverta Sjálfstæðisflokkinn og
formann hans sérstaklega, en einn-
ig beri að skoða umfjöllun mína í
ljósi innanflokksátaka í Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði!
Með eigin orðum
Best er að láta Óla Björn segja
þetta sjálfan: „Ég er þess fullviss
að Ögmundur Jónasson trúir flestu
sem hann skrifar en varla öllu.
Stundum skrifar hann til „heima-
brúks“ fyrir félaga sína og skoð-
anasystkini. Skrif af því tagi eru
eðlileg og oft nauðsynleg í innan-
flokksátökum og deilum … Ög-
mundur ákvað að fara niður í svað
aðdróttana og samsæriskenninga.
Með ódrengilegum hætti dylgjar
hann um Bjarna Benediktsson, for-
mann Sjálfstæðisflokksins. Úr verð-
ur risastórt samsæri. Í boði ríkis-
stjórnarinnar gæti „draumur frjáls-
hyggjunnar um alvöru markað á
sviði sjúkdóma og lækninga verið
að rætast“ … Sérstaklega er Ög-
mundi illa við fyrirtækjasamstæðu
sem hann tekur fram að sé undir
stjórn fyrrverandi bæjarstjóra í
Garðabæ (heimabær Bjarna Bene-
diktssonar og eitt helsta vígi sjálf-
stæðismanna) og formanns Fjár-
málaeftirlitsins en vanhelgi hans er
að formaður Sjálf-
stæðisflokksins skuli
hafa skipað viðkom-
andi í stöðuna …Ög-
mundur þekkir for-
mann Sjálfstæðis-
flokksins betur en svo
að hann trúi bulli sínu
og rógburði.“
Heilbrigðismál eru
mál málanna
Við fyrstu sýn fagn-
aði ég því að sjá grein
Óla Björns með ýms-
um tölulegum upplýsingum. Ástæð-
an var sú að ég hef lengi kallað eftir
málefnalegri umræðu um stefnuna í
heilbrigðismálum – og þess vegna
átakaumræðu, ég er ekki einn af
þeim sem eru andvíg átakaumræðu
um átakamál. Verstur er sofanda-
háttur spjallstjórnmálanna.
En lítum á hvað sjálfskipaður
talsmaður Sjálfstæðisflokksins hef-
ur fram að færa. Fyrst nokkur orð
um meintar hvatir mínar.
Gamall málsháttur segir að
margur haldi mig sig. Þegar stað-
hæft er að skrif mín séu þáttur í
pólitískum innri átökum í mínum
pólitíska ranni læt ég nægja að
minna á þennan málshátt. Allan
minn feril á vettvangi verkalýðsbar-
áttu og stjórnmála hef ég litið á
heilbrigðisþjónustu sem okkar
mikilvægasta málefni. Hvorki meira
né minna.
Fjárfestir í Fjármálaeftirliti
Óli Björn Kárason segir að sér-
staklega sé mér „illa við“ nýja fyrir-
tækjasamsteypu undir stjórn fyrr-
verandi bæjarstjóra í „heimabæ
Bjarna Benediktssonar“, einu
„helsta vígi sjálfstæðismanna“ svo
og formanns stjórnar Fjármála-
eftirlitsisns. Það er rétt hjá Óla
Birni að ég hef harðlega gagnrýnt
áform Ásdísar Höllu Bragadóttur,
fyrrverandi bæjarstjóra í Garðabæ
og forstjóra BYKO, um að koma á
laggirnar einkarekinni heilbrigðis-
þjónustu með arðsemi að leiðarljósi.
Þá finnst mér vera gagnrýnivert að
hagsmunatengdur einstaklingur í
fyrirtækjarekstri – og læt ég liggja
á milli hluta að viðkomandi er „fjár-
festir á velferðarsviði“ – skuli vera
settur í forsvar fyrir Fjármálaeftir-
litið. Þá hef ég gagnrýnt lífeyris-
sjóðina fyrir að stefna hraðbyri inn
í einkarekna heilbrigðisþjónustu og
hef ég hvatt til umræðu í baklandi
þeirra.
Aldrei lagt einkapraxís og
arðsemisrekstur að jöfnu!
Margoft hefur komið fram af
minni hálfu að einkapraxís í tak-
mörkuðum mæli í heilbrigðisþjón-
ustunni sé ekki gagnrýniverður.
Öllu máli skipti hvar landamærin
séu dregin. En þegar hér rís
sjúkrahúsrekstur í þágu fjárfesta –
hvort sem það eru lífeyrissjóðir sem
heimta arð úr rekstrinum eða aðrir
– þá tel ég okkur komin á ranga
braut. Margt bendir hins vegar til
þess að nákvæmlega þetta sé að
gerast hér á landi – enda yfirlýstur
pólitískur ásetningur.
Þora ekki að kannast við
óvinsæla einkavæðingu
Stjórnmálamenn verða að þora
að kannast við eigin skoðanir.
Vandinn er sá fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að einkavæðing
heilbrigðisþjónustunnar er óvinsæl
með þjóðinni. Þess vegna er farið
með löndum þegar þau mál eru
rædd. Það er helst að fyrrverandi
sérfræðingur Viðskiptaráðsins og
núverandi þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, Sigríður Á. Andersen,
þori að tala tæpitungulaust um
„heilbrigðismarkaðinn“.
Að vissu marki hefur Óli Björn
Kárason gert það einnig og á hann
vissulega lof skilið fyrir að taka um-
ræðuna.
Arðsemisrekstur dýrari
Þegar skoðaðar eru tvær nýlegar
greinar þingmannsins á síðum
Morgunblaðsins, frá 22. júlí og 29.
júlí, má ráða eftirfarandi.
Í fyrsta lagi telur Óli Björn að
einkarekið heilbrigðiskerfi sé ódýr-
ara en ríkisrekið. Þennan þátt þarf
að taka til gaumgæfilegrar skoð-
unar í ljósi reynslunnar. Í Svíþjóð
er nú verið að hverfa frá tilraunum
til einkareksturs á þessu sviði eftir
að í ljós hafa komið ókostir á borð
við þá að þjónustan gjaldi fyrir að
arðsemi sé sett í öndvegi og sænska
Ríkisendurskoðunin bendir á að
töluverð brögð séu á því fjárfest-
arnir skjóti arðgreiðslum sínum í
erlend skattskjól. Við þetta blikka
varnaðarljós í mínum huga hvað
varðar hvatirnar sem búa að baki.
Mismunandi verðlag í boði
Í öðru lagi talar Óli Björn fyrir
því að fjármagn fylgi sjúklingi.
Þetta er hugsun sem vel er þekkt
úr frjálshyggjufræðum, hljómar vel
í fyrstu en reynslan hefur víðast
hvar orðið sú að einkaaðilar hafa
sótt inn á svæði sem „gefa vel af
sér“ en síður þangað sem tekjur
eru minni og fólk síður í stakk búið
að greiða það sem smurt er ofan á
ríkisframlagið. Við skulum ekki
gleyma því að samhliða því að ríkið
eigi að borga grunninn vilja
markaðssinnar að lögmál mark-
aðarins fái einnig að njóta sín. Þess
vegna hefur stundum verið tekist á
um það á Alþingi hvort ekki skuli
leyfðar auglýsingar um verðlag
fyrir læknisþjónustu. Óli Björn
verður að hafa manndóm í sér að
skýra hugsjónir félaga sinna heild-
stætt en sáldra ekki í okkur völdum
en villandi molum.
Skorið niður um fjórðung!
Í þriðja lagi má ráða af framsetn-
ingu Óla Björns að framgöngu
stjórnmálamanna megi mæla í
framlagi til málefnisins. Hann birtir
þannig graf um framlag ríkisins til
heilbrigðismála og sýnir að út-
gjöldin fari nú hækkandi. Dýrasta
heilbrigðskerfi heimsins, hið banda-
ríska, þenst út án afláts en er þó
einkarekið að uppistöðu til. Horfa
þarf til þess hvernig fjármagnið
nýtist almenningi og þá hvort það
er á grundvelli mismununar eða
jafnaðar.
Sigri hrósandi bendir Óli Björn á
að niðurskurðurinn á síðasta kjör-
tímabili hafi verið meiri en á öðrum
tímum! Veit þingmaðurinn ekki að
þegar tekjustofnar ríkissjóðs
hrundu samfara bankahruninu var
skorið niður í rekstrarútgjöldum
ríkisins um tæpan fjórðung?
Við höfum sum hver sagt að
niðurskurðurinn til heilbrigðismála
hafi verið of mikill en alla tíð höfum
við gengist við honum. Að sjálf-
sögðu!
Góði dátinn
En aftur að inntakinu í grein Óla
Björns Kárasonar, sem segist hafa
„skilning“ á því að menn ræði um
einstök málefni stjórnmálanna til að
koma sinni persónulegu ár fyrir
borð innanflokks. Það sé full-
komlega „eðlilegt“.
Þessu er ég ósammála. En Óli
Björn Kárason talar hér fyrir sjálf-
an sig og eflaust á hann einhverja
pólitíska samferðarmenn sem
kunna honum þakkir fyrir að vilja
vera góður liðsmaður í baráttunni
við hin illu öfl. Hvort það gerir mál-
efninu gott er svo önnur saga.
Eftir Ögmund
Jónasson » Óli Björn verður að
hafa manndóm í sér
að skýra hugsjónir fé-
laga sinna heildstætt en
sáldra ekki í okkur völd-
um en villandi molum.
Ögmundur Jónasson
Höfundur er fyrrverandi
heilbrigðisráðherra.
Óla Birni svarað