Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
www.mh.is
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
um miðjan ágúst í stærðfræði og eftirfarandi tungumálum:
Danska/Danish (6 einingar/10 fein*), fös. 14. ágúst kl. 16:00.
Enska/English (9 einingar/15 fein*), fim. 13. ágúst kl. 16:00.
Franska/French (12 einingar/20 fein*) fös. 14. ágúst kl. 16:00.
Ítalska/Italian (12 einingar/20 fein*), mið. 12. ágúst kl. 16:00.
Norsk/Norwegian (6 einingar/10 fein*), fös. 14. ágúst kl. 16:00.
Spænska/Spanish (12 einingar/20 fein*), mið. 12. ágúst kl. 16:00.
Stærðfræði/Mathematics (stæ103/5 fein, stæ203/5 fein, stæ263/5 fein) mið. 12. ágúst kl. 18:00.
Sænska(Swedish (6 einingar/10 fein*), fös. 14. ágúst kl. 16:00.
Þýska/German (12 einingar/20 fein*), mið. 12. ágúst kl. 16:00.
*hámarks einingafjöldi sem hægt er að ná, frá og með fyrsta áfanga á framhaldsskólastigi.
Rafræn skráning (On-line registration) í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans
http://www.mh.is/skolinn/exam/. Frekari upplýsingar á (more information on) www.mh.is.
Rektor
STÖÐUPRÓF/PLACEMENT TESTS
er í rauninni ekki hægt að starf-
rækja Þjóðlagasetrið við núverandi
aðstæður. Þjóðlagasetur okkar Ís-
lendinga getur því aðeins þrifist að
það komist á föst fjárlög Alþingis.“
Hvaðan sprettur áhugi þinn á
þjóðlögum?
„Ég hafði í upphafi engan sér-
stakan áhuga á þjóðlögum. Ég var
miklu fremur vegfarandi sem kom
að slysi og björgunarstarf var
óumflýjanlegt. Þjóðlagaarfurinn
okkar hafði um árabil verið í ösku-
stónni. Lítið sem ekkert hafði ver-
ið fyrir hann gert. Sú iðja að kveða
rímnalög og syngja þjóðlög var að
mestu horfin úr menningu okkar.
Mér rann blóðið til skyldunnar að
taka þátt í að lífga þjóðlagaarfinn
við.“
Varðveisla menningarinnar
Þú ert tónlistarkennari, stofnar
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins,
stjórnar Háskólakórnum og semur
ævintýraóperu fyrir börn. Er mik-
ilvægt fyrir þig að þekking berist
milli kynslóða?
„Það fylgir því vissulega mikil
ástríða að miðla tónlist til ungs
fólks. Að varðveita eigin menningu
skiptir mig miklu máli. Ég hef líka
bent á að náttúra landsins sé hluti
af menningu okkar og að okkur
beri að varðveita hana. Dómskerfið
hefur reyndar ekki alveg verið mér
samstiga í þeim efnum.“
Er það samfélagsleg ábyrgð sem
rekur þig áfram í tónlistinni?
„Ég held að það sé bæði list-
rænn metnaður og viljinn að láta
gott af sér leiða sem hvetji mig
áfram. Vissulega skiptir það máli að
allir leggi sitt af mörkum í sam-
félagi okkar, það gerir okkur öll
ríkari og lífið skemmtilegra. Sam-
félagsleg ábyrgð felst reyndar í því
að gera barnafjölskyldum kleift að
komast á ævintýraóperur óháð fjár-
hag. Þannig er aðgangseyri á
Baldursbrá mjög stillt í hóf.
Fyrirhugaðar sýningar á Bald-
ursbrá eru aðeins tvær en ef al-
menningur sýnir óperunni áhuga
fjölgum við sýningum. Við stöndum
nefnilega í þeirri trú að draumur
Baldursbrár um að sigrast á fjöll-
um og firnindum þrátt fyrir kol-
fastar rætur eigi erindi við alla,
ekki aðeins börn heldur einnig við
fullorðna.“
á á svið í Hörpu
Ljósmynd/Jón Ólafur Björgvinsson
Ljósmynd/Kristín Sigurjónsdóttir
Frumsýning Frá barnaóperunni Baldursbrá í Siglufjarðarkirkju.
Ljósmynd/Kristín Sigurjónsdóttir
Sprell Gaman á frumsýningu barnaóperunnar Baldursbrár.
Ljósmynd/Jón Ólafur Björvinsson
Þakkir Gunnsteinn þakkar áheyrendum með Star Wars tónlist á Siglufirði.